atvinnuleitin
Portfolio mappa dauðans er að skríða saman. ég er náttúrulega búin að hafa nógan tíma til að vinna í henni, meira en mánuður síðan ég útskrifaðist. So far veit ég um tvo sem hafa fengið vinnu í grahö bransanum sem útskrifuðust með mér, bæði hefur fólk ekki verið mjög bjartsýnt og ekki verið að sækja um á stofum og stofurnar hafa ekki verið að ráða, sérstaklega ekki óvana. ég ætla hins vegar að láta til skarar skríða bráðlega með góða möppu, allar ábendingar hvert skal fara eru vel þegnar.
Miðvikudagur 02. júlí 2003 kl. 22:54
Flokkað sem hönnun. Þar eru 162 færslur.
Flokkað sem hönnun. Þar eru 162 færslur.
/ Álit
Gauja:
Gangi þér vel, elskan. Ég get ekki ráðlagt þér neitt um það hvert halda skuli, enda ert þú best fær um það sjálf. Ég segi bara tu-tu !!!

