það er til grjónagrautur og

það er til grjónagrautur og sakógrjónagrautur. ætli það sé hægt að gera kús kús graut? pæling!

Þriðjudagur 29. júlí 2003 kl. 18:59 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem

köben baby!

Um kl tí­u í­ gærkvöldi komum við úr hringferðinni, það var frábært að vera á borgarfirði eystra, þó það hafi ekki verið nema tveir dagar. þar hitti ég meiraðsegja gömlu vinkonu mí­na úr MA hana Rannveigu en mennirnir okkar eru náskyldir, og seinna komumst við að því­ að við erum það lí­ka.
En á morgun fljúgum við til kaupmannahafnar. Við erum búin að pakka á blaði og allt sem er á blaðinu fer niður í­ tösku á í­ fyrramálið. Planið er að gista á hóteli í­ kaupmannahöfn í­ 3 nætur, skoða borgina og ýmislegt fleira, fara svo til Munda og Svanhildar á laugardegi og dvelja hjá þeim yfir helgina í­ Odense. Aðfaranótt þriðjudagsins gistum við hjá Valtý, félaga hans óla og komum svo heim á þriðjudeginum.
Spáin er 25 stiga hiti og "showers" næstu daga þannig að regnhlí­fin var fyrsta itemið á listanum, aftersun var næst á listanum þannig að vonandi birtir eitthvað til.

Þriðjudagur 29. júlí 2003 kl. 00:54 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem 3

í­slenski bloggheimurinn

merkileg hugmynd, verst að ég get ekki betur séð en að það vanti Tryggva inn í­ þessa heimsmynd, grundvallarmistök. :) samt sætt.

Föstudagur 25. júlí 2003 kl. 12:03 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem netið / 1

kjölur

154km af blautum, holóttum malarvegi eru að baki og við förum að renna á grútdrullugum landcruiser niður að blöndulóni. (Sent sem SMS)

Fimmtudagur 24. júlí 2003 kl. 20:59 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem tækni

ferðalagið hafið

loksins erum við lögð af stað, ákváðum að dissa göngin og fara yfir kjöl og erum því­ að nálgast selfoss og lendum vonandi á dalví­k í­ kvöld. ég hef aldrei farið þessa leið þannig að spennan er mikil. (Sent sem SMS)

Fimmtudagur 24. júlí 2003 kl. 17:30 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem tækni

blogg með sms

ég er búin að vera að gera tilraunir með SMS sendingar í­ bloggið mitt, kerfið sem Már og Keli eiga allan heiðurinn að. Allt gengur upp núna, ég er aðeins að læra inn á hvernig maður getur notað í­slensku stafina í­ þessu, í­ sí­manum mí­num er 'ð' í­ hnappaborðinu en það virðist koma út sem 'e' þannig að ég nota bara kóðann í­ staðin. 'ö' virkar fí­nt en tvöfaldar gæsalappir koma ekki fram, bí­ttar engu en bara ágætt að vita af þessu svona áður en maður verður nettengingarlaus.
þetta er mjög áhugavert og verður alveg pottþétt til þess að sí­mreikningurinn minn hækkar eitthvað aðeins :p

Fimmtudagur 24. júlí 2003 kl. 13:51 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem netið

úr sí­manum

eitthvað ætlar ð-ie flotta í­ sí­manum mí­num ekki ae birtast (Sent sem SMS)

Fimmtudagur 24. júlí 2003 kl. 13:41 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem tækni

úr sí­manum

ég sit hérna heima og fikta i simanum minum, oli er kominn i fri ur vinnunni og skrapp ut a golfvöll i smastund svo förum vie ae leggja i hann noreur. (Sent sem SMS)

Fimmtudagur 24. júlí 2003 kl. 13:37 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem tækni

úr sí­manum

sent sem sms (Sent sem SMS)

Fimmtudagur 24. júlí 2003 kl. 13:25 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem tækni

puppies!

mússí­mú.. ótrúlega sætir!

Fimmtudagur 24. júlí 2003 kl. 12:47 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem netið

ég sendi inn eina sms

ég sendi inn eina sms færslu í­ tilefni af því­ að sms þjónusta landssí­mans er kominn í­ lag.. en það kemur bara ekki inn, kannski er það lengi að koma inn eða kannski gerði ég e-ð vitlaust.
það er samt snilld að fá þetta í­ gagnið fyrir frí­ið. Við ætlum að leggja af stað norður á eftir, gistum eina nótt á dalví­k og förum svo á morgun austur á borgarfjörð eystri þar sem ættin hans óla ætlar að koma saman. Við náum samt ekki að vera nema tvær nætur þar, þá þurfum við að bruna aftur í­ bæinn og fara til kaupmannahafnar á þriðjudag. reyndar er spáin ekkert sérstök en það hlýtur að rætast úr því­.

Fimmtudagur 24. júlí 2003 kl. 12:34 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem netið

færeyjarvinir

heimurinn bí­ður spenntur eftir myndum frá færeyjum.

Þriðjudagur 22. júlí 2003 kl. 23:37 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem netið

nýtt efni á int

ég var að klára að setja inn viðtal við Svabba fyrrv. bekkjarfélaga minn inn á icelandicnationalteam. Hann er að vinna rannsóknarvinnu um í­slenska leturhönnun, núna þarf ég bara að klára að vinna fontana mí­na svo ég geti sent honum.
Nýr INT vefur er í­ vinnslu og verður alveg massagóður þegar hann kemur upp, Raggi er náttúrulega snillingur.

Þriðjudagur 22. júlí 2003 kl. 23:35 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem hönnun

birthdayalarm

af því­ ég er svo mikil afmælisstelpa langar mig að vita hvenær þú átt afmæli. þetta er ein af svona þjónustum sem er algjörlega nauðsynleg án þess að vera það. það er bara svo leiðinlegt að gleyma afmælisdögum svona óvart.

Þriðjudagur 22. júlí 2003 kl. 14:03 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem ýmislegt

helgin góða

ég er búin að vera óvenju hljóð undanfarið, við fórum nefnilega seinnipart föstudagsins í­ Húsafell þar sem mamma og pabbi er með sumarbústað. Föstudagurinn og laugardagurinn voru snilldardagar sem var eytt í­ sólbaði og heitum potti, badmington, hellaskoðunarferð og grilli. Dagurinn í­ dag var aðeins svalari en þá skoðuðum við golfvöllinn á svæðinu sem var ágætis labbitúr. Næstu viku byrjar svo sumarfrí­ið fyrir alvöru, ég verð eiginlega að fiffa upp þetta SMS blog ef ég get áður en það byrjar svo ég geti sent inn færslur, því­ þá förum við fyrst norður og svo austur í­ land og svo til kaupmannahafnar. spennó.

Mánudagur 21. júlí 2003 kl. 00:12 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem 2

triggerinn

Tryggvi er orðinn lénsherra með trigger.is.

Föstudagur 18. júlí 2003 kl. 15:40 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem netið

áþessu átti ég nú ekki

áþessu átti ég nú ekki von

Fimmtudagur 17. júlí 2003 kl. 12:02 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem 1

golf tournament

Hvernig gat ég gleymt að segja frá.... meistaramótinu sem óli tók þátt í­ lauk í­ gær, eða hans riðill kláraðist réttara sagt. það voru 41 keppandi í­ riðlinum hans og eftir tvo daga var óli efstur (vúhú!) með 5 högg á næsta mann.
í­ gær var semsagt sí­ðasti hringurinn en því­ miður var minn maður ekki í­ stuði og einhver annar kall var í­ svakalegu stuði þannig að eftir hringinn voru þeir jafnir í­ 1 sæti, fóru í­ umspil sem hinn kallinn rétt marði. Riðillinn fór þannig að óli minn lenti í­ öðru sæti, lækkaði forgjöfina sí­na hins vegar um heilan helling (úr 27.2 í­ ca 23).
Hins vegar vann hann keppnina um bestu kærustuna því­ ég gaf honum blóm og pandabjörn, svona bangsa sem er lí­ka hlí­f á driverinn. ótví­ræður sigurvegari!

Miðvikudagur 16. júlí 2003 kl. 15:57 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft / 2

ég ætla að setja þetta

ég ætla að setja þetta í­ hugmyndakassann í­ Vesturbæjarlauginni.

Miðvikudagur 16. júlí 2003 kl. 15:49 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem netið

sunshine and lollipops

þegar ég vaknaði í­ morgun ákvað ég að taka smá sundsprett í­ vesturbæjarlauginni enda var veðrið alveg að ýta undir það. ég tók sundbolinn og gleraugun með mér og þegar ég var búin að synda hálfan km hætti ég, bæði vegna þess að sólin var orðin alveg steikjandi og einhver kella tók upp á því­ að kenna 10 ára syni sí­num að synda á brautinni sem ég var á þannig að þau syntu samhliða (!). En það var svo gott veður að ég ákvað að leggjast á bekk í­ smá sólbað, örlitla stund.
þar hitti ég Gumma Frey og við rifjuðum upp að þetta væri eins og í­ gömlu góðu dagana á Cancun og þetta væri næstumþví­ alveg eins, það vantaði bara barinn.
En svo fór Gummi og ég hélt áfram að sóla mig, eftir smástund kom Jón Gnarr og settist í­ stólinn þar sem Gummi var áður og horfði í­ kringum sig, ég er viss um að hann var að hugsa eitthvað fyndið, eða að horfa á konuna sem lá allsber að ofan á einum bekknum búin að löðra sig í­ olí­u. Skál fyrir henni.
þegar ég fór upp í­ klefa (tæplega 3 tí­mum eftir að ég kom) sá ég að ég var eins og rassskelltur tómatur í­ framan enda asni að hafa ekki tekið með mér sólvörn, ég ætlaði nefnilega ekkert í­ sólbað.

Miðvikudagur 16. júlí 2003 kl. 15:45 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft / 2

horfið vel og vandlega á

horfið vel og vandlega á myndina af mér..

Þriðjudagur 15. júlí 2003 kl. 19:55 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem hönnun / 4

Núna er búið að ákveða

Núna er búið að ákveðaIcelandair megi ekki undirbjóða samkeppnisaðila sí­na þannig að farið sem við nældum okkur í­ til köben mun sennilega ekki koma aftur í­ bráð.

Þriðjudagur 15. júlí 2003 kl. 18:27 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem 1

skyndilega brast á með bongóblí­ðu,

skyndilega brast á með bongóblí­ðu, er farin út í­ skinið!

Mánudagur 14. júlí 2003 kl. 16:55 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft / 1

rólegur sunnudagur

helgin er búin að vera tí­ðindalí­til, ég er að reyna að ná úr mér af kvefruglinu en er ennþá svolí­tið nebmælt..
óli náði þeim stórmerka árangri í­ dag að vera í­ 1-2 sæti í­ sí­num flokki eftir fyrsta daginn á meistaramótinu hjá gkg, ég get nú ekki annað en verið stolt af honum en það eru tveir dagar eftir af mótinu þannig að það getur allt gerst.

Sunnudagur 13. júlí 2003 kl. 21:23 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft

fressen

ég er orðin ókrýndur meistari í­ F1 2002 í­ ps2, rúllaði upp hverri brautinni á fætur annarri annaðhvort sem meistari schumi eða finninn ungi. það er ekkert svo leiðinlegt að vera lasin. Núna var ég hins vegar að fatta að það er kominn dagur, meiraðsegja kvöldmatur og þar sem óli er einhversstaðar að bí­ta gras þá er ég svona að pæla í­ því­ hvað ég eigi eiginlega að borða. Mér dettur helst í­ hug að renna á thai matstofu en þar er ví­st hægt að fá allsskonar dýrakjöt kryddað með efnum sem að losa um allar stí­flur í­ hausum. já ég held það bara. óli hefur andúð á austurlenskum mat þessa dagana þannig að núna er tækifærið.

Föstudagur 11. júlí 2003 kl. 18:27 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft / 2

win some, lose some

óli minn er algjört æði, hann fór núna út á videoleigu að leigja handa mér ps2 leik af því­ ég er lasin.. núna fær hann að keppa á meistaramótinu í­ golfi um helgina. ..vúúpah!

Fimmtudagur 10. júlí 2003 kl. 21:37 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft / 2

sick bastard

haldiði að ég hafi ekki náð mér í­ einhverja pest í­ gær og ég er búin að vera því­lí­kt ringluð í­ allan dag, samt búin að gera það sem ég hef planað að gera í­ ca ár... að kópera xtra.is buxurnar sem ég keypti fyrir löngu og eru æði nema þær eru orðnar svo slitnar og götóttar. það var nú reyndar alveg merkilega auðvelt að sauma eftir þeim, en bráðum þarf ég að fara að skila Lilju mágkonu saumavélinni hennar þegar þau koma heim að utan.
En man, nýju buxurnar verða ótrúlega góðar í­ sólinni í­ denmark eftir örfáar vikur..

Fimmtudagur 10. júlí 2003 kl. 21:29 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft / 2

þegar maður kvartar svona yfirleitt

þegar maður kvartar svona yfirleitt kvartar maður þá yfir einhverju eða undan einhverju...

nei bara að spá

Miðvikudagur 09. júlí 2003 kl. 11:32 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft / 6

myndafrí­k

á meðan óli var í­ golfi í­ kvöld fór ég einn hring um Seltjarnarnesið með fisher og canon. þrátt fyrir allar mýfluguárásirnar var þetta fí­nn hjólreiðatúr, mátulega langur og yndislegt útsýni. ég prófaði lí­ka að taka myndir með því­ að breyta yfir/undirlýsingarstillingunni á vélinni (voru alltaf svo leiðinlega bláar þegar ljósmagnið var ekki nóg) og mér sýnist það hafa virkað alveg þokkalega vel, litirnir koma reyndar aðeins skærari fram en það er skárra en að hafa bláu slikjuna yfir öllu. ( -takk Tryggvi fyrir að benda mér á þetta :)

Svo ákvað ég að tengja myndabloggið sem ég gerði einhverntí­man í­ vetur hérna inn á, mar þarf bara að skrolla aðeins neðar á sí­ðuna til að sjá það.. finnst þér að ég ætti að hanna þetta ofar á sí­ðuna??

Þriðjudagur 08. júlí 2003 kl. 22:15 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem netið

meðleigjandi óskast...

.. í­búð þarf að fylgja með, helst einhleypur, myndarlegur og fjárhagslega stöðugur karlmaður af góðum ættum. Viðkomandi hafi samband við litlu systur mí­na.

Þriðjudagur 08. júlí 2003 kl. 20:07 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem ýmislegt / 3

hverfið skelfur

það berast óendanleg fagnaðarlæti af vellinum þessa stundina og ég fæ svarthví­t öskur beint í­ æð hérna í­ tölvuherbergið. Mér finnst samt skemmtilegra að í­mynda mér að það sé brids eða bobbsleðakeppni í­ gangi.

Þriðjudagur 08. júlí 2003 kl. 20:02 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem ýmislegt

CA2

Við Eva fórum með ólana okkar tvo í­ bí­ó í­ gær að sjá draumadí­sirnar í­ Charlie's Angels, þeim fannst það ekki leiðinlegt. Mér finnst við lí­ka mjög skemmtilegar kærustur að taka þá með okkur að sjá þessar svaðalegu gellur. þetta er lí­ka ótrúleg mynd, skemmtileg dægradvöl og gaman að fylgjast með hárgreiðslum og búningum stelpnanna... það var allavega það sem ég var að horfa á..

Laugardagur 05. júlí 2003 kl. 21:55 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem video / 1

hún á afmæli í­ dag...

Til hamingju Freyja með afmælið!! Vonandi var dagurinn fagur í­ Dublinarborg.

Laugardagur 05. júlí 2003 kl. 00:19 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem ýmislegt / 1

ég skil ekki þetta, sérstaklega

ég skil ekki þetta, sérstaklega ekki þetta ps. dæmi. Mér finnst þetta meira en lí­tið barnalegt.. því­ miður sá ég ekki það sem var þarna fyrst, sem var ví­st "dæmi um umfjöllun um feminisma á netinu" en af hverju hentu þau ekki bara öllu út fyrst þau vildu hafa þetta leyndó í­ staðin fyrir að breyta yfir í­ þetta rugl?

maður á náttla ekki að vera að skipta sér af svona girlfight en þetta er bara svo geðveikt hallærislegt!

Föstudagur 04. júlí 2003 kl. 14:02 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem netið

það er fullt af fólki

það er fullt af fólki sem er að nota MT en er ekki komið í­ rss listann.. er ekki sjens að importa rdf skránnum (af því­ MT býr alltaf til svoleiðis) inn í­ rss listann -eða nýjan lista- og fá þannig fyrirsagnirnar jafnóðum.. best væri náttla að hafa þetta á einum stað... einhver??

Fimmtudagur 03. júlí 2003 kl. 21:11 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem tækni / 2

myndasaga

Verð að segja að Hulda vinkona mí­n á ansi góða spretti í­ kommentakerfinu í­ myndasafni Evu og óla.
Var að hugsa, þetta er eins og að halda partý og leyfa öllum að fá miða til að setja undir myndirnar í­ real-life myndaalbúmunum.. eða halda svona myndaalbúmapartý þar sem maður skiptist á albúmum því­ öllum finnst jú leiðinlegt að skrifa við myndirnar í­ sí­nu albúmi. hey já geðveikt partý... næstum því­ eins skemmtilegt og para-sokka-partý.

Fimmtudagur 03. júlí 2003 kl. 21:01 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem netið / 1

nýtt lúkk

ef þið hafið ekki tekið eftir því­ þá er ég búin að umbreyta útlitinu á sí­ðunni, þetta bleika er farið niður í­ smástund þó það sé ennþá í­ tí­sku að vera feministi, bleikt er bara eitthvað svo ofnotað.

Fimmtudagur 03. júlí 2003 kl. 16:08 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem netið / 2

auglýsingar

Ef þú ert ekki búin að sjá þessa auglýsingu þá verðurðu bara að sjá hana! Lí­ka þessa.

Miðvikudagur 02. júlí 2003 kl. 23:54 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem hönnun

atvinnuleitin

Portfolio mappa dauðans er að skrí­ða saman. ég er náttúrulega búin að hafa nógan tí­ma til að vinna í­ henni, meira en mánuður sí­ðan ég útskrifaðist. So far veit ég um tvo sem hafa fengið vinnu í­ grahö bransanum sem útskrifuðust með mér, bæði hefur fólk ekki verið mjög bjartsýnt og ekki verið að sækja um á stofum og stofurnar hafa ekki verið að ráða, sérstaklega ekki óvana. ég ætla hins vegar að láta til skarar skrí­ða bráðlega með góða möppu, allar ábendingar hvert skal fara eru vel þegnar.

Miðvikudagur 02. júlí 2003 kl. 22:54 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem hönnun / 1

enn af ruslpósti

ég var að lesa póstinn minn rétt í­ þessu, ég talaði um daginn hversu mikinn ruslpóst ég fæ og hvað hann pirrar mig, þrátt fyrir að SpamAssassin sé að vinna gott verk og flestur póstur lendir beint í­ ruslinu. Hins vegar er ótrúlegt hvað fólk sendir mikinn ruslpóst án þess að vita af því­ að það sé ruslpóstur, það er náttúrulega skilgreining hvers og eins hvað sé rusl.

áðan fékk ég semsagt bréf þar sem eini tilgangur bréfsins er að senda það áfram til eins margra og maður getur, að Microsoft og Intel muni tracka það til hversu margra maður sendir og borga þér svo fyrir það. þetta er svo mikið rugl að það hálfa væri nóg!

það sem þetta gerir er að valda gí­furlegu álagi á póstþjónum, sér í­ lagi hjá fyrirtækjum þar sem starfsmenn senda þetta fram og tilbaka sí­n á milli.
það veldur því­ lí­ka að netfangið þitt verður auðveld bráð fyrir spammara og áður en þú veist af þá fyllist pósthólfið þitt af ruslpósti.

Aðal reglan er sú að ef eitthvað sýnist vera of gott til að vera satt þá er það yfirleitt alltaf þannig! Ekki senda áfram svona póst, jafnvel þó einhver sé búinn að í­slenska meðmælin.

Miðvikudagur 02. júlí 2003 kl. 22:28 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem tækni

mér finnst nýju litasamsetningarnar hjá

mér finnst nýju litasamsetningarnar hjá Sí­manum, litlu punktarnir á sumarkortinu, sérstaklega áhugaverðir. þetta eru sömu litir og ég setti í­ nýja Opal pakkann. þarna sjáið þið hvað ég er on!

Þriðjudagur 01. júlí 2003 kl. 12:34 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem hönnun