omg,

ég var að fletta einu sorpblaðinu sem kemur inn í­ póstkassann hjá okkur áðan og sá þar mér til mikillar skelfingar að stöð 2 ætlar að fara að sýna "í­slenskaða" útgáfu af american idol. Dómararnir eru semsagt Bubbi, Sigga Beinteins og þorvaldur Bjarni, ágætis fólk allt saman en hugmyndin er svoo Vond að ég á ekki til orð. ég hef horft á tvo þætti af amerí­ska þættinum og hef afskaplega lí­tið álit á honum, kanarnir gera ýmislegt til að komast í­ sviðsljósið en að við/þeir uppi á s2 séu að apa það upp er meira en lí­tið slakur brandari.


Föstudagur 27. júní 2003 kl. 18:27
Flokkað sem video. Þar eru 47 færslur.

/ Álit

batgirl:

það voru nú bretarnir sem áttu hugmyndina að þessum þætti eins og svo mörgum öðrum þáttum og ekki megum við nú vera minni menn...kræst !!

28.06.03 18:44