lestur næstu kvölda/nátta

Núna í­ kvöld kom nýja Harry Potter bókin beint frá Amazon inn um dyrnar hjá mér, ég hafði pantað hana í­ forsölu einhverntí­man í­ aprí­l, þegar ég pantaði mér einhverjar aðrar bækur. ég bjóst samt ekki við því­ að hún yrði svona fljót á leiðinni, fór frá amazon lagernum í­ uk á laugardaginn og lent til mí­n á mánudagskvöldi.
Umbúðirnar vöktu lí­ka áhuga minn, pappakassinn var nákvæmlega jafn stór og bókin sjálf þannig að þeir sendu ekkert loft með þessum massafjölda sem seldu af bókinni, enda ekki ástæða til.


Mánudagur 23. júní 2003 kl. 23:58
Flokkað sem bækur. Þar eru 19 færslur.