jæja, vínarborg! þar sem ég
jæja, vínarborg! þar sem ég dvaldi síðustu helgi, en allt í lagi að blogga um það núna. það var rosalega gaman, borgin er voðalega falleg. sá klimt og hundertwasser, en ekki schiele :(. svo sáum við leðurblökuna í óperunni sem var mjög gaman þegar maður skildi þýsku brandarana. ég fékk reynda bjúg dauðans af öllu labbinu. ekki sniðugt fyrir vanfærar konur að taka tvö flug, labba út um allt og sofa svo ekki neitt fyrir næstu tvö flug til baka. en þetta var allt þess virði :). nú er ég ekki lengur forstöðukona, skólinn búin og ég verð hópstjóri á leikjanámskeiði fyrir fatlaða í sumar svo ef til vill á ég eftir að blogga meira, hef svosem sagt þetta áður þannig að við skulum bara sjá til.
Sunnudagur 08. júní 2003 kl. 17:33
Flokkað sem
Flokkað sem

