fiskar
Eftir að ég fékk gullfiskinn tetris í afmælisgjöf er ég búin að skoða svolítið vefi um gullfiska, sérstaklega tjorvar.is sem rekur gæludýrabúð í bílskúrnum sínum í Elliðaárdalnum. ég fór reyndar að skoða búðina fyrir helgi til að athuga með verð og stærð á "alvöru" fiskabúrum, hann var með fínt úrval en ég fór samt tómhent heim. Mig dauðlangar nefnilega í nokkra fiska í viðbót en þeir komast auðvitað ekki fyrir í kúlunni litlu.
En þegar maður fer að grafa svona eftir upplýsingum þá finnur maður ótrúlegasta fólk, það er hægt að vera nörd yfir hverju sem er og ég er sko búin að finna nokkur fiskanörd. Nörd=sá sem hefur brennandi áhuga á einhverju ákveðnu og ræktar þann áhuga vel -skv skilgreiningu sem ég heyrði e-n tíma hjá Mása og það er því mesti misskilningur að vera nörd sé neikvætt!
ég er samt búin að kaupa 70l. notað búr á smá penge þannig að það gæti farið að fjölga í kotinu á næstunni.
Flokkað sem ýmislegt. Þar eru 105 færslur.

