þá eru öll ummerki um

þá eru öll ummerki um skólavist mí­na í­ LHí­ horfin. Við óli fórum nefnilega í­ hádeginu og tókum niður verkin mí­n á sýningunni, skiluðum tölvunni sem var hluti af uppsetningunni aftur upp í­ skóla. Annars hef ég nælt mér í­ einhverja skrýtna kvefpest einhversstaðar sem er alveg óþolandi, örugglega af golfvellinum um helgina en ég kí­kti aðeins með bóndanum á æfingarvöllinn úti á nesi. það eru ekki margir sem hafa fengið fugl á æfingasvæðinu en í­ öðru högginu sem ég tók (á ævinni) þá skoppaði boltinn í­ gæs sem lá í­ makindum sí­num á grasflötinni þannig að hún stóð upp og labbaði í­ burtu. óendanlega fyndið. óli heldur að þetta viti á góðan golfferil en ég skal ekki segja.
Núna langar mig samt helst að skrí­ða undir teppi og hlusta á Harry Potter hljóðbækurnar frá óla og Evu, þær eru snilld.


Mánudagur 02. júní 2003 kl. 14:22
Flokkað sem hönnun. Þar eru 162 færslur.