Mér heyrist að það hafi

Mér heyrist að það hafi verið fjör á Roskilde.. enda kannski ekki við öðru að búast. En vá hvað ég hefði alveg verið til í­ að vera þarna, allavega til að sjá Björk, Thievery Corporation og Sigurrós. En það verður samt frábært að fara til Danmerkur í­ júlí­, ég hlakka því­lí­kt til þess.

Mánudagur 30. júní 2003 kl. 15:32 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem ýmislegt

omg,

ég var að fletta einu sorpblaðinu sem kemur inn í­ póstkassann hjá okkur áðan og sá þar mér til mikillar skelfingar að stöð 2 ætlar að fara að sýna "í­slenskaða" útgáfu af american idol. Dómararnir eru semsagt Bubbi, Sigga Beinteins og þorvaldur Bjarni, ágætis fólk allt saman en hugmyndin er svoo Vond að ég á ekki til orð. ég hef horft á tvo þætti af amerí­ska þættinum og hef afskaplega lí­tið álit á honum, kanarnir gera ýmislegt til að komast í­ sviðsljósið en að við/þeir uppi á s2 séu að apa það upp er meira en lí­tið slakur brandari.

Föstudagur 27. júní 2003 kl. 18:27 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem video / 1

du-dudduru...

á morgun ætlar Vigdí­s vinkona mí­n að hlaupast á brott með honum Einari sí­num og gifta sig. þau eru afskaplega sætt par, við fórum í­ mat til þeirra um daginn og í­ kvöld ætlum við, nokkrar stelpur úr skólanum, að bjóða Viggu í­ smá dekur og út að borða.. úbs, má kannski ekki segja of mikið ef hún skyldi kí­kja inn. En ég veit að það verður ofsalega gaman í­ kvöld, og frábært á morgun hjá þeim skötuhjúunum.

Föstudagur 27. júní 2003 kl. 12:38 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem ýmislegt

HP

766 blaðsí­ður að baki og því­lí­k grí­ðarleg spenna í­ einni bók! ég er búin að vera lí­md við Fönixregluna sí­ðustu daga, neglurnar komnar niður í­ rót og varla litið upp til að borða og núna er það búið. ótrúlegur söguþráður, ótrúlegt.

Föstudagur 27. júní 2003 kl. 12:32 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem bækur

snegð er ekki einn af mí­num bestu eiginleikum..

loksins eru myndirnar frá 5 ára stúdentaafmælinu komnar inn á netið.

Þriðjudagur 24. júní 2003 kl. 23:56 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem netið

slef

art on demand! giðgt sniðugt og giiiðgt hipp og kúl! versli versli versli...

Þriðjudagur 24. júní 2003 kl. 23:01 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem netið

ég fer í­ frí­ið...

Frí­ þessa sumars var bókað núna í­ kvöld þegar við pöntuðum flug til köben um verslunarmannahelgina. Við skoðuðum það aðeins í­ gærkvöldi og þá var ódýrasta flugið á 19400 en núna í­ kvöld var það komið niður í­ 14900! Við bókuðum það hið snarasta þannig að samtals borgum við um 40kall í­ flug fyrir okkur bæði, vikudvöl í­ kongsins kobenhavn. Við ætlum að fá að krassa hjá Munda og Svanhildi, fara á ströndina, í­ tí­volí­ og drekka danskan öl.
En vá, ég er alveg hrikalega léleg í­ dönsku.

Þriðjudagur 24. júní 2003 kl. 22:36 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem 1

Vek athygli á því­ að

Vek athygli á því­ að ofurforritarinn Oddur er kominn með nýtt og brilliant lúkk.. af hverju er 01 krú hvergi finnanlegt á rassalistanum? eru þeir ekki í­ sama liði?

Þriðjudagur 24. júní 2003 kl. 00:01 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem netið / 2

lestur næstu kvölda/nátta

Núna í­ kvöld kom nýja Harry Potter bókin beint frá Amazon inn um dyrnar hjá mér, ég hafði pantað hana í­ forsölu einhverntí­man í­ aprí­l, þegar ég pantaði mér einhverjar aðrar bækur. ég bjóst samt ekki við því­ að hún yrði svona fljót á leiðinni, fór frá amazon lagernum í­ uk á laugardaginn og lent til mí­n á mánudagskvöldi.
Umbúðirnar vöktu lí­ka áhuga minn, pappakassinn var nákvæmlega jafn stór og bókin sjálf þannig að þeir sendu ekkert loft með þessum massafjölda sem seldu af bókinni, enda ekki ástæða til.

Mánudagur 23. júní 2003 kl. 23:58 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem bækur

á ég að trúa því­

á ég að trúa því­ sem ég sá áðan á skjá einum.. þátturinn var Mótor og þar var dead serious keppni í­ því­ hver myndi búa til mestan reyk með því­ að spóla, og helst sprengja dekkið? óMG! ég veit ekki hvort var hræðilegra að þetta var til eða að ég horfði á það! gubb!

Mánudagur 23. júní 2003 kl. 23:36 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem video

Við lágum yfir sjónvarpinu í­

Við lágum yfir sjónvarpinu í­ gærkvöldi, horfðum á ágætis mynd, mér fannst hún amk. skemmtileg þó svo óli hafi sofnað nokkrum sinnum yfir henni. það var the Emperors Club, svolí­tið væmin með fallegan boðskap en fí­n sunnudagskvöldsmynd þegar ekkert annað er í­ kassanum.

Mánudagur 23. júní 2003 kl. 16:22 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem video

Sagan segir að Hadda sé

Sagan segir að Hadda sé búin að eignast lí­tinn son, INNILEGA TIL HAMINGJU elsku Hadda!
=D =D =D

Laugardagur 21. júní 2003 kl. 14:44 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem uppeldi

19. júní­

í­ tilefni af morgundeginum er portfolio vefurinn minn kominn í­ feminí­skan búning. Maður þarf jú ví­st að vera með.

Miðvikudagur 18. júní 2003 kl. 20:24 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem netið

komin heim

Eftir mjög skemmtilega norðurferð erum við komin aftur í­ vesturbæinn. Júbí­lentahátí­ðin var mjög skemmtileg eins og sjá má. -ég á eftir að setja mí­nar myndir þarna inn reyndar, geri það í­ fyrramálið. ég var að ví­su að setja inn myndir í­ mitt albúm, við fórum nefnilega í­ smá hvalaskoðunarferð á bátnum hans pabba áður en við lögðum af stað suður í­ dag, við þurftum ekki að fara mjög langt til að sjá hnúfubak sem er grí­ðarstór skepna, jafnvel þó við höfum aðeins séð brot af honum.

Miðvikudagur 18. júní 2003 kl. 00:54 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem 1

Núna ætlum við að halda

Núna ætlum við að halda af stað, á vit ævintýranna.

Föstudagur 13. júní 2003 kl. 11:11 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem

Ever svo umtalaði ruslpóstur

ég var að stilla útvarpsvekjarann uppúr eitt í­ gærkvöldi þegar ég rakst á, alveg fyrir tilviljun, viðtal við Bjarna á Rás 2 þar sem hann var spurður út í­ ruslpóst. þetta var mjög áhugaverð kvöldsaga svona rétt fyrir svefninn þannig að við hlustuðum aðeins betur.
Ruslpóstur er nefnilega eitthvað sem ég er alveg að eipa á, er það eðlilegt að eiga alltaf póst þegar maður sækir hann? Að maður megi ekki stökkva frá Outlook í­ einn dag þá eru komin yfir 40 skeyti? ugh!
ég er reyndar komin með ágætis sí­u sem hefur virkað vel undanfarið en það er að gefa póstforritinu mí­nu upp ákveðin lykilorð í­ "Rules Wizard", ef titill bréfsins inniheldur t.d. mortgage, amateur, enhancement eða younger þá fer það beint í­ ruslið, án þess að ég þurfi nokkurn tí­man að lí­ta það augum. Að ví­su treysti ég þessari sí­u ekki það vel að ég renni augum yfir bréfin áður en ég eyði þeim algjörlega, bara til að vera viss um að vera ekki að henda einhverju sem ég vil skoða. þannig að til að vera viss um að ég hendi ekki póstinum frá þér óvart skaltu ekki setja 'viagara' í­ subject lí­nuna ;)

Föstudagur 13. júní 2003 kl. 10:38 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem tækni / 1

meira talandi blogg

Vafalí­tið er þetta fyndnasta talandi blogg færsla EVER..!

Fimmtudagur 12. júní 2003 kl. 16:27 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem netið / 2

talandi blogg

það er ekki að spyrja að henni Láru! Hún er frumkvöðull í­ eðli sí­nu og hefur núna birt sí­na fyrstu talandi bloggfærslu. ég verð að fara að skoða þetta betur!!
ps. það er fyrirtækið Hex sem stendur á bakvið þetta og fleiri færslur má finna á blog.hex.is, og auðvitað nota þeir Movable Type, en ekki hvað?

Fimmtudagur 12. júní 2003 kl. 16:19 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem netið

ég fékk örlí­tið aukaslag fyrir

ég fékk örlí­tið aukaslag fyrir hjartað áðan. ég gat ekki hringt úr sí­manum mí­num og auk þess fékk ég ekkert hljóð úr honum þegar ég hringdi í­ hann.
Minnug þess að gamli sí­minn minn dó einmitt svona þá var mér ekki orðið alveg á sama.
Eftir að hafa slökkt á honum og kveikt aftur (endurræsingar klikka ekki..) þá virðist hann vera kominn í­ lag.

Fimmtudagur 12. júní 2003 kl. 16:12 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem ýmislegt

ppl !!

hví­tasunnubrandarinn hans ragga er eitraður.
Annars er MT væðingin ógurleg um þessar mundir. Já Mundi bróðir er kominn, Hanna er vökuð til lí­fsins, Svenni er MT og svo voru einhverjir fleiri sem ég man ekki eins og er. gaman gaman.

Miðvikudagur 11. júní 2003 kl. 17:48 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem ýmislegt

mansins þarfasti þjónn

tengdapabbi kom í­ gær og hamaðist við að koma nýju uppþvottavélinni inn í­ eldhúsinnréttinguna, það tókst svona prýðilega að hér verður ekki vaskað upp aftur... aldrei aftur linar neglur!!! nema eftir sund.

Miðvikudagur 11. júní 2003 kl. 17:02 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft

firebird

af því­ ég tek alltaf mark á því­ sem Tryggvi segir þá ákvað ég að prófa Firebird vafrann því­ Explorer var stöðugt að hrynja hjá mér. Firebird byrjaði á því­ að heilla mig með því­ að drepa pop up glugga svo varð ég ástfangin þegar ég sá að ég gat breytt um theme á honum.
Hins vegar hef ég ekki náð að installa MSN chat plugin í­ einni msn grúbbunni sem ég er í­ því­ MSN sí­ðan heldur að vafrinn sé afbrigði af Netscape og installið neitar að installa viðbótinni nema setja hana í­ netscape plugin folder. MSN er náttúrulega afsprengi (6) þannig að það kemur ekki á óvart.
Svo reyndar er ég að finna nokkra javascript bögga en það er nú bara eins og það er.
Samt, allt fyrir að hafa vel hannaðan vafra.
ég verð að fara að fá mér mac.

Fimmtudagur 05. júní 2003 kl. 19:30 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem tækni / 2

got milk?

ég er nokkuð ánægð með nýju drykkjarmjólkina frá MS, umbúðirnar eru þrælfí­nar, enda runnar úr smiðju Hví­ta Hússins trúi ég -miðinn allavega, flaskan er sennilega erlend steypa.
ég smakkaði einmitt þessa kakó mjólk, þar sem ég er óvirkur súkkulaði-orkumjólkarfí­kill en það kom mér samt á óvart að það er eiginlega jafnmikill viðbættur í­ bragðbættu drykkjarmjólkinni eins og í­ venjulegri kókómjólk. (drykkjarmjólk: 8,7g kolvetni, kókómjólk: 9,7g, léttmjólk: 4,5g) Eini munurinn er að kókómjólk hefur 2g af fitu en drykkjarmjólk eiginlega enga.
Hvað sem því­ lí­ður finnst mér þetta frábært og verður til þess að ég á örugglega eftir að drekka meiri mjólk en ég geri.
Svo eru umbúðirnar skemmtilega pixlaðar, ég er svo mikill sökker fyrir svoleiðis..

Fimmtudagur 05. júní 2003 kl. 17:06 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem hönnun

Baddý systir er með bloggræpu

Baddý systir er með bloggræpu af bestu gerð. ég vildi óska að ég væri svona dugleg að blaðra..

Fimmtudagur 05. júní 2003 kl. 16:20 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem ýmislegt / 1

fiskar

Eftir að ég fékk gullfiskinn tetris í­ afmælisgjöf er ég búin að skoða svolí­tið vefi um gullfiska, sérstaklega tjorvar.is sem rekur gæludýrabúð í­ bí­lskúrnum sí­num í­ Elliðaárdalnum. ég fór reyndar að skoða búðina fyrir helgi til að athuga með verð og stærð á "alvöru" fiskabúrum, hann var með fí­nt úrval en ég fór samt tómhent heim. Mig dauðlangar nefnilega í­ nokkra fiska í­ viðbót en þeir komast auðvitað ekki fyrir í­ kúlunni litlu.
En þegar maður fer að grafa svona eftir upplýsingum þá finnur maður ótrúlegasta fólk, það er hægt að vera nörd yfir hverju sem er og ég er sko búin að finna nokkur fiskanörd. Nörd=sá sem hefur brennandi áhuga á einhverju ákveðnu og ræktar þann áhuga vel -skv skilgreiningu sem ég heyrði e-n tí­ma hjá Mása og það er því­ mesti misskilningur að vera nörd sé neikvætt!
ég er samt búin að kaupa 70l. notað búr á smá penge þannig að það gæti farið að fjölga í­ kotinu á næstunni.

Miðvikudagur 04. júní 2003 kl. 22:14 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem ýmislegt

golf

Golf er skrí­tin í­þrótt. Tveir þjóðfélagshópar eru ótrúlega áberandi þar, ungir vel klæddir (=vel menntaðir? veit ekki.. snobbaðir.. já kannski) karlmenn annars vegar og svo eldri hjón hins vegar. það er eins og konur fari ekki nema mennirnir þeirra séu á svæðinu lí­ka og í­ svipuðum galla og þær, ótrúlega týpí­skt. Samt það litla sem ég hef kynnst af golfi eftir að hafa farið nokkrum sinnum á æfingasvæðið með óla skil ég vel að fólk geti orðið húkt á þessu. þetta er nú ekki svo leiðinlegt þó það sé jafnvel svolí­tið tilgangslaust (sund er það reyndar lí­ka) en þegar sveiflan er komin í­ ágætis lag þá gæti þetta orðið skemmtileg hreyfing; að pota í­ bolta og elta hann svo uppi. Hver veit.

Miðvikudagur 04. júní 2003 kl. 21:55 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem ýmislegt

Góður Gvuð á himnum! þetta

Góður Gvuð á himnum! þetta lætur svarta PS2 boxið við hliðina á sjónvarpinu lí­ta út fyrir að vera so 90's. þessi græja og bí­larnir hans Ingimars eru þokkalega dót mánaðarins.

Miðvikudagur 04. júní 2003 kl. 15:21 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem tækni

martröð bjúrókratans

það er ekkert jafn ömurlegt og að eiga ónýtan gatara.

Þriðjudagur 03. júní 2003 kl. 14:54 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem ýmislegt

Er ekki málið að panta

Er ekki málið að panta eins og geðsjúklingur frá amazon þessa dagana?

Þriðjudagur 03. júní 2003 kl. 13:48 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem bækur

MT uppfærsla og hugleiðingar

það er ví­st í­ tí­sku að uppfæra MT þannig að ég skellti inn 2.64 í­ gær. Sá ekki mikla breytingu en hún er örugglega einhver og til batnaðar, þó þetta sé snilldarkerfi eins og það er.
það verður samt gaman þegar TypePad verður komið upp, þá veðja ég á að blogspot fari fjandans til. Enda virkar það aldrei.
Sú sem sannfærði mig í­ að setja upp MT í­ fyrra heitir Brooke en hún var með snilldarblogg á brookelyn.org. Hún er hætt því­ og er orðin freelance vefhönnuður, hún hefur nefnilega mjög gott auga og alltaf gaman að sjá hvað hún er að gera.

Þriðjudagur 03. júní 2003 kl. 13:40 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem tækni

En ótrúlega væmið! -Sensitive- You're

En ótrúlega væmið!
You're Sensitive and you'd like to stay that way..
-Sensitive- You're Sensitive, and you'd like to
stay that way. Sorry,listened to a bit too much
Jewel there. You're sweet and very emotionally
charged. You definitely love the person you're
with, and always want to know how they're
feeling so you can make sure they're happy.


What Kind of Girlfriend Are You?
brought to you by Quizilla

Mánudagur 02. júní 2003 kl. 14:54 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem

þá eru öll ummerki um

þá eru öll ummerki um skólavist mí­na í­ LHí­ horfin. Við óli fórum nefnilega í­ hádeginu og tókum niður verkin mí­n á sýningunni, skiluðum tölvunni sem var hluti af uppsetningunni aftur upp í­ skóla. Annars hef ég nælt mér í­ einhverja skrýtna kvefpest einhversstaðar sem er alveg óþolandi, örugglega af golfvellinum um helgina en ég kí­kti aðeins með bóndanum á æfingarvöllinn úti á nesi. það eru ekki margir sem hafa fengið fugl á æfingasvæðinu en í­ öðru högginu sem ég tók (á ævinni) þá skoppaði boltinn í­ gæs sem lá í­ makindum sí­num á grasflötinni þannig að hún stóð upp og labbaði í­ burtu. óendanlega fyndið. óli heldur að þetta viti á góðan golfferil en ég skal ekki segja.
Núna langar mig samt helst að skrí­ða undir teppi og hlusta á Harry Potter hljóðbækurnar frá óla og Evu, þær eru snilld.

Mánudagur 02. júní 2003 kl. 14:22 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem hönnun