lífið er að komast í
lífið er að komast í samt lag. To do listinn inniheldur ekki lengur eitthvað sem þarf að gerast í dag heldur bara á næstu vikum, meðal annars að taka til í fataskápnum.
Annars fann ég svolítið svakalegt í morgun, veit ekki hvort ég eigi að segja frá því en það var skjannahvítt hár á hausnum á mér. ég var ekki viss hvort ég ætti að öskra eða gráta,.. eða bæði. Svo ákvað ég að þetta væri pottþétt ekki ellimerki heldur streitumerki og framvegis ætla ég að setja 'slaaka' efst á to-do listann, þar á eftir er heimsókn á hárgreiðslustofu
Miðvikudagur 14. maí 2003 kl. 15:24
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 270 færslur.
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 270 færslur.
/ Álit
hæ sæta, ég var búin að commenta á þig en það hefur ekki vistast, bara innilegar hamingjuóskir með þetta, hlakka til að sjá myndir og letrið ;)

