4 dagar í­ opnun

ég var orðin svo mygluð seinnipartinn í­ dag að ég ákvað að taka smá pásu eftir að vera búin að senda plakötin í­ prentun. ég fór heim, skrapp í­ sund og synti fram og tilbaka og fór svo í­ Smáralindina því­ ég var ekki alveg að fatta það að mig vantaði dress fyrir laugardaginn. Eins og Eva orðaði það vel að ef verkefnið manns er sí­ðan bara ljótt þá getur maður kannski bætt það upp með því­ að vera sætur á opnuninni.
ég sá ýmislegt í­ Zara en tók með mér bara eina skyrtu og bol, ekkert endilega til að vera í­ á laugardaginn, hún passaði bara svo fí­nt og var eitthvað svo ódýr.
Annars elska ég hvað þessi stuttubuxnatí­ska ætlar að dragast á langinn.. aldrei hafa eins margar buxur smellpassað á mig eins og sí­ðustu misserin.
Spurningin er bara, á maður að vera fansí­ og fí­nn eða hip og kúl? Svo fann ég reyndar röndótta skyrtu, skærgræna brúna og bleika alveg geðveikislega flotta en það er helví­ti að finna buxur við hana, nema svartar plein leiðinlegar.. úff.. djúpar hugsanir...


Þriðjudagur 06. maí 2003 kl. 22:57
Flokkað sem hönnun. Þar eru 162 færslur.

/ Álit

Raggó:

Hipp og Kúl! Sipp og hoj!

07.05.03 02:10


veiga:

úff sama vandamálið hér. ég er ekkert búin að vera að gera mér grein fyrir að maður þarf víst að vera sæmilega til fara...

07.05.03 14:40