það er ekki hægt að
það er ekki hægt að segja annað en hilluæði hafi gripið um sig á heimilinu. í gær kíktum við í habitat og fórum út með eina bókahillu og eina litla þægilega hillu sem er komin upp í forstofunni undir síma, veski, lykla, póstinn og annað sem maður þarf að henda frá sér. Bókahillan fór upp í dag og allar sætu grahö og listaverkabækurnar komnar á sinn stað. það er svo gaman að vera organized =)
Vigga var að gera nýtt
Vigga var að gera nýtt á síðuna sína. mjög flott hjá stelpunni
þessa dagana eru óli og
þessa dagana eru óli og Eva að sleikja sólina í Vín. Nei, ekki Vín - Eyjafjarðarsveit heldur Vín - Austurríki.. kannski Eva finni netcafe og komi með pistil..
ég væri allavega alveg til í að fara til útlanda svona bráðum.
Flokkað sem
óli er í fríi á
óli er í fríi á morgun þannig að framundan er löng helgi, sem byrjaði reyndar í dag. á meðan hann skrapp í golf í morgun fór ég í sund, ekkert betra en að flatmaga í morgunsólinni! Eftir hádegi fór ég í starfsviðtalið margfræga sem var stutt en fínt, örugglega ágætisnáungar. Svo núna rétt fyrir kvöldmat kíktum við í húsasmiðjuna og versluðum tvær hillur og nokkra snaga í geymsluna því núna á að setja order á hlutina sem hafa verið hent inn undanfarið!
Annars væri ekki vitlaust af manni að kíkja eins og einn golfhring með kallinum yfir helgina, hann er orðinn svo brúnn í framan!
Við sitjum hérna slefandi yfir
Við sitjum hérna slefandi yfir nýja bílnum hans Tryggva. Til hamingju með bílinn Tryggvi, .. en ekki segja mér að bíllinn geti sent þér skilaboð?
Ofursvalt!
Sveitta umsóknin bar árangur, ég
Sveitta umsóknin bar árangur, ég fer í viðtal eftir hádegi á morgun.
þess má líka geta að ég breytti lúkkinu á portfolioinu mínu af því ég telst ekki lengur nemi í grafískri hönnun heldur fullgildur grahö! Sem minnir mig á það að ég þarf að skila lyklunum að skólanum fyrir helgina, úff.. það verður erfitt, þá er einhvernvegin of raunverulegt að námsferli mínum á íslandi sé að ljúka. Nema ég fari bara í kennarann.
Annars veit ég ekkert hvernig viðtalið fer, geri mér engar sérstakar vonir um að það gangi endilega upp, reyni bara að brosa og vera sæt.. ætti ég kannski að fara í fleygna bolnum?
ég er ótrúlega mislukkuð.. fór
ég er ótrúlega mislukkuð.. fór og náði í fréttablaðið í póstkassann í gær, las það á meðan ég labbaði upp stigann og var svo djúpt sokkin í blaðið að gerði mér ekki grein fyrir því þegar ég var komin upp að tröppurnar voru búnar og ég steig harkalega niður á enga tröppu.. og núna er ég að drepast í bakinu, þvílíkur auli!
smá kvikmyndagagnrýni
Við fórum á matrix reloaded í gær, að vísu tókum við smá upphitun í fyrrakvöld og horfðum á fyrri myndina svo söguþráðurinn væri í fersku minni. En þvílík vonbrigði með þessa mynd! Eins flottur og hugmyndafræðilegi heimurinn sem Matrix snýst um var í fyrri myndinni var ekkert í þessari seinni mynd sem bætti hann heldur datt hann algjörlega ofan í klisjur. Borgin Zion var eins og klippt út úr Waterworld myndinni.
Ef menn vilja bara bardagaatriði, flotta myndatöku og tæknibrellur þá stendur myndin alveg fyrir sínu. æi ég veit ekki, kannski er fattarinn minn bara ekki að kveikja á þessu.
ég tók mér örlítið frí
ég tók mér örlítið frí frá sólinni til að gera sveittustu og sætustu atvinnuumsókn norðan suðurpólsins, skila henni inn á morgun og vona að hún skili árangri. segi ekki meir.
annars veit ég ekki hvort ég skrifi nokkuð meira fyrr en eftir helgina ef veðrið heldur áfram að vera svona brilliant.
Humarinn er með góða bók
Humarinn er með góða bók á náttborðinu hjá sér, held meira að segja að ég eigi þá bók! hehe
skólinn er búinn á laugardaginn
skólinn er búinn á laugardaginn þegar útskriftin verður. ég er búin að ná í allt dótið mitt upp í skóla, á eftir fiffa aðeins 105 síðuna yfir á skólaserverinn og þá get ég skilað lyklunum. ég keypti mér skó og dragt í dag (svarta mjög einfalda en samt flotta) og er því að verða nokkuð tilbúin. Baddý systir útskrifast á morgun og því ætlum við að fara út að borða annaðkvöld, ma og pa eru búin að vera hérna í nokkra daga og við erum búnar að snúast heilmikið með þeim í góða veðrinu. á laugardaginn verður smá eurovisionpartý eftir útskriftina á lau, það er bara búið að vera svo mikið að gera að ég hef ekki náð að hugsa mig um hvernig það verður, kannski er það líka óþarfi, kannski fer það bara eins og það fer.
vá skrýtinn dagur. óli fór
vá skrýtinn dagur. óli fór í golf í morgun klukkan tíu og ég vaknaði um svipað leyti, nema setti hausinn aaaðeins ofan á koddann og steinsofnaði aftur, vaknaði svo þegar hann kom heim aftur klukkan eitt! mér finnst ég hafa misst af deginum. úff
þetta er búinn að vera
þetta er búinn að vera slakur dagur, slakur í merkingunni afslappaður. ég og fisher erum búin að vera eitt síðustu daga og ég fór í smá hjólreiðitúr í dag, í gær hjólaði ég upp í skóla og það er verulega gaman að fara í gegnum miðbæinn, þó hann sé rotinn. Mikið væri samt gaman að hafa góða almennilega hjólastíga og hjólamenningu hérna, eins og í Amsterdam hefur hjólreiðafólk óskráð yfirráð yfir götunum og maður má verulega passa sig að verða ekki fyrir þeim. það er æðsti draumur minn og fishers. Kannski við ættum bara að fara til Amsterdam, þar er allavega næga vinnu að fá.
gunna er fræg. ég tók
gunna er fræg. ég tók við hana viðtal.
ondushresign
raggo er farinn að blogga í sumarfríinu, gott hjá honum.
myndir frá opnuninni + partýinu
myndir frá opnuninni + partýinu á eftir... já hérna!
lífið er að komast í
lífið er að komast í samt lag. To do listinn inniheldur ekki lengur eitthvað sem þarf að gerast í dag heldur bara á næstu vikum, meðal annars að taka til í fataskápnum.
Annars fann ég svolítið svakalegt í morgun, veit ekki hvort ég eigi að segja frá því en það var skjannahvítt hár á hausnum á mér. ég var ekki viss hvort ég ætti að öskra eða gráta,.. eða bæði. Svo ákvað ég að þetta væri pottþétt ekki ellimerki heldur streitumerki og framvegis ætla ég að setja 'slaaka' efst á to-do listann, þar á eftir er heimsókn á hárgreiðslustofu
sýningardagurinn
Gærdagurinn var hreinasta snilld. Sýningin opnaði kl 14, ég var reyndar komin niður í safn um kl. 12 og hjálpaði til við að ganga frá og hreinsa til áður en gestirnir kæmu. Dagurinn áður, eða þann 9. var ótrúlega atburðaríkur, best að skrifa það sem ég man bara á meðan það er í fersku minni, ekki endilega að þú nennir að lesa það heldur sérstaklega fyrir mig að lesa seinna....
til þín:
til þín:

ég er búin að finna
ég er búin að finna góða lausn á nammifíkn. í staðin fyrir að kaupa sér bland í poka er betra að fá sér raspberry born lippy varasalva úr body shop. Lyktin af honum er þannig að það er eins og maður sé að bera gúmmíbirni á varirnar á sér, svo er hann fínn á bragðið og örugglega ekki svo margar kaloríur. nice
haldið þið að við bekkjarsysturnar
haldið þið að við bekkjarsysturnar höfum ekki gerst ultimate gellur í morgun þegar við ákváðum að fá okkur "HOLLYWOOD TAN" í Lindarsól! (mæli með myndböndunum á síðunni, þau eru hillarious!). Brúnkan er að koma smám saman fram, nær sennilega hámarki um miðnætti og kemur sem betur fer ekki í flekkjum eins og ég var hrædd um, en ó mæ god, mér líður eins og skímó gelgju!
4 dagar í opnun
ég var orðin svo mygluð seinnipartinn í dag að ég ákvað að taka smá pásu eftir að vera búin að senda plakötin í prentun. ég fór heim, skrapp í sund og synti fram og tilbaka og fór svo í Smáralindina því ég var ekki alveg að fatta það að mig vantaði dress fyrir laugardaginn. Eins og Eva orðaði það vel að ef verkefnið manns er síðan bara ljótt þá getur maður kannski bætt það upp með því að vera sætur á opnuninni.
ég sá ýmislegt í Zara en tók með mér bara eina skyrtu og bol, ekkert endilega til að vera í á laugardaginn, hún passaði bara svo fínt og var eitthvað svo ódýr.
Annars elska ég hvað þessi stuttubuxnatíska ætlar að dragast á langinn.. aldrei hafa eins margar buxur smellpassað á mig eins og síðustu misserin.
Spurningin er bara, á maður að vera fansí og fínn eða hip og kúl? Svo fann ég reyndar röndótta skyrtu, skærgræna brúna og bleika alveg geðveikislega flotta en það er helvíti að finna buxur við hana, nema svartar plein leiðinlegar.. úff.. djúpar hugsanir...
lokaverkefnið
sjitt, núna eru plakötin mín farin í prentun. Snilldarfyrirtækið Dikta ætlar að prenta þau út fyrir mig þannig að nú verður ekki aftur snúið. þau verða tilbúin á morgun og ég vona að ég geti platað þá til að „fóma“ þau á fimmtudag. Núna fer vinnan á fullt í að gera slideshowið, Director ætlar að vera vinur minn í nokkra daga.
stundum snýst hönnun bara um
stundum snýst hönnun bara um ákvarðanir.
l
ég skrifa voða lítið hérna þessa dagana. ástæðan er einföld: ég á ekkert líf! ég hangi hérna uppi í skóla alla morgna, daga og kvöld að púsla lokaverkefninu saman þannig að ég þurfi ekki að labba fram af bryggju á laugardaginn kemur eða fá taugaáfall á föstudagskvöld... nema bæði verði, það kemur allt í ljós.
Eve
3 dagar í að EVE komi út? frábært!! þetta er örugglega einn mesti gradient og lens-flare leikur sem hefur komið út. Og alveg frábært að hann skuli koma út því ég er viss um að það eru nokkuð margir sem höfðu enga trú á því, en þolinmæðin og eljan hjá CCP er aðdáunarverð.. og eitthvað held ég að bankabókin þeirra sé tómleg.
Tetris
það eru komnar myndir af Tetris, sæta gullfiskingum, hérna og hérna. Hann er stuðstrákur. óli Magg á allann heiðurinn að nafnagiftinni, það var annaðhvort Tetris eða Tekken, tekken er meira stelpunafn held ég og kannski ef hann eignast kærustu einhverntíman þá fær hún kannski það nafn. Hann er jú myndarlegur drengurinn.
í kvöld var fiskur í
í kvöld var fiskur í matinn. þó ekki gullfiskur =þ
Núna stefni ég að því að klára seinni pósterinn svo ég geti sent þá báða í prentun í fyrramálið.. þetta er nefnilega ekki venjuleg prentun heldur líkara framköllun, fyrirtækið Dikta gerði mér mjög góðan díl í plakötin.
ég fór með strákunum niður í Hafnarhús í dag að skoða aðstæður því okkur var úthlutað sýningarsvæði í gærkvöldi. Svæðið sem ég fæ er uþb 5x3 m inni í salnum á jarðhæðinni, semsagt alveg flennistórt!
1