sýningin

ég fór í­ dag niður í­ Hafnarhús til að skoða salina sem við fáum fyrir sýninguna. þannig fær maður aðeins betri sýn á það hvernig lokaútfærslan kemur til með að vera, stærð og lögun og þessháttar. Hönnunardeildin fær meðal annars stóra salinn á neðstu hæðinni, inn af afgreiðslunni. Hann snýr út að götu og allir hlerar verða teknir frá gluggunum þannig að sá salur verður opinn frá götunni, sem er mjög fí­nt. Steinþór Kári, einn af hönnuðum hússins, er sýningarstjóri fyrir hönnunardeildina og er alveg ótrúlega klár í­ því­, hann segir að þetta sé í­ fyrsta sinn sem húsið er undirlagt í­ eina sýningu! það verður því­ ótrúlega gaman að sjá útkomuna og ennþá ótrúlegra ef þetta á eftir að takast hjá okkur.
Helgin verður því­ að vera mjög smooth, fyrir þriðjudag ætla ég að vera komin með stærð og lögun fullmótaða þannig að ég geti fengið almennilegt tilboð frá prentsmiðju. það er margt sem á eftir að gerast í­ næstu viku!

í­ kvöld er stefnan sett á matarboð á Bólstöðum hjá heiðursfólkinu óla, Evu og væntanlegum erfingja.


Föstudagur 18. apríl 2003 kl. 18:10
Flokkað sem hönnun. Þar eru 162 færslur.