OMG!!
það er orðið nokkurn vegin opinbert. Sýningin okkar verður í Hafnarhúsinu 10-29. maí nk. þýðir þetta að maður þarf að fara að gera eitthvað?
Svona spauglaust þá er ég frekar tens yfir þessari sýningu. áætlað er að um 8000 manns komi til með að sjá hana, húsið verður undirlagt.. meira að segja ERRó beygir sig fyrir okkur.. og það verður alveg smekkfullt á opnuninni þar sem þetta er kosningadagur og margir verða á ferðinni.
ég er þessa dagana að klára hönnunina á skjáletrinu sem ég er að gera. ég skrifaði ritgerðina um skjáletur (sem ég ætlaði reyndar einhverntíman að setja út á netið) og hef verið að skoða handskriftir þannig að letrið mitt er í raun nokkurs konar handskriftar skjáletur:

þetta sendi ég í símann minn í gær, planið er að hafa bæði stór plaköt með pixelum í yfirstærð, síma með letrinu á og líka old-fashioned, pínu lummó, útsaumaðan púða með sama letrinu. það er sýnin allavega núna, hver veit hvað gerist á einum mánuði.. þegar stressið tekur yfirhöndina...
Málið er nefnilega líka það að við erum fyrsti árgangurinn sem innritaðist í hönnunardeild og þar með fyrst til að útskrifast úr henni. þannig eru miklu meiri kröfur á okkur á að sýna fram á "hönnun" í verkum okkar heldur en hefur verið áður. Best er ef við getum fundið eitthvað vandamál til að leysa eða finna nýja og betri lausn á einhverju sem er gamalt og gróið. Hjá okkur gengur ekki að vera með einhverja myndlistarstæla þó svo þeir séu skemmtilegir út af fyrir sig. Margir í bekknum mínum (grafískri hönnun) eru í markaðshugleiðingum; að búa til herferðir eða umbúðir fyrir ýmsar vörur. ég er hins vegar ekki á sama róli, ég hef (þannig séð) engan kúnna og þarf ekki að beygja mig fyrir neinum nema miðlinum sem skapar formið fyrir mig. það finnst mér mjög áhugavert og þó þetta sé stressandi þá er þetta líka alveg ofur gaman.
Raunveruleikinn er líka að banka smám saman á dyrnar, ég fór í atvinnuviðtal í síðustu viku sem ég er að reyna að hafa ekki hátt um, því mig langar mjög í það starf!
p.s. vá.. langt!
Flokkað sem hönnun. Þar eru 162 færslur.

