OMG!

ég fékk nett hjartaáfall áðan!
ég var stödd í­ director tí­ma inni í­ tölvustofu og ákvað að sýna sessunauti mí­num grúvið sem ég gerði fyrir Fí­ton blaðið nema hvað að linkurinn á splass sí­ðunni inn á portfolioið ví­saði inn á einhverja gamla og brotna sí­ðu en ekki litlu sætu sí­ðuna sem ég gerði um heglina. úff.. þetta er svipuð tilfinning og maður fær þegar maður fattar að maður hefur gleymt að setja jógúrtið í­ möffinsdeigið...
þrátt fyrir ýmsar tilraunir við að breyta þessu í­ gegnum gamlan imac í­ tölvustofunni komumst við að þeirri niðurstöðu að þetta hlyti að vera eitthvað minnisvandamál í­ vafranum inni í­ stofu því­ í­ öllum öðrum tölvum er þetta ekki vandamál.
En þetta varð til þess að ég er núna farin að taka til á vefsevernum mí­num og allar gamlar syndir munu fjúka út í­ veður og vind.

aðeins seinna: núna er ég handviss um að búkolla var að spila 1. aprí­l með mig...


Þriðjudagur 01. apríl 2003 kl. 14:35
Flokkað sem hönnun. Þar eru 162 færslur.

/ Álit

Tryggvi R. Jónsson:

Ég trúi því ekki upp á þig félagi Pjúsari Dagný að þú haldir að Búkollar okkar elskulega geri slíkt og þvílíkt af sér!

01.04.03 18:46


batgirl:

vá maður get trúað að þetta hafi verið nett sjokk, muffins án jógúrts er ekki alveg að virka sko!

06.04.03 18:03