Lilja Kristí­n

Eins og Auður nefnir þá er liðið ár sí­ðan Lilja bekkjarsystir okkar dó. ég setti inn mynd í­ minningu hennar á júbí­lantavefinn okkar í­ dag en svo fór ég að spá pí­nu í­ hvort Lilja hefði viljað hafa þetta svona? Hefði hún ekki sagt að þetta væri einum of væmið?? Mig grunar það pí­nu. ég á hins vegar enga góða mynd af henni sem ég gæti sett inn þannig að ef einhver lumar á slí­kri má sá hinn sami alveg koma henni til mí­n og ég set hana inn.
Svo setjum við það inn í­ dagskránna yfir hátí­ðarhelgina að leggja blóm á leiðið hennar. ég fór nefnilega ekki á jarðaförina fyrir ári sí­ðan og sé mjög eftir því­, þó svo ég hafi minnst hennar hérna heima. ég er nefnilega búin að hugsa mjög til Lilju sí­ðustu daga eftir að við fréttum af önnu Marí­u, fv. bekkjarsystur hans óla en hún dó í­ sí­ðustu viku. Jarðaförin hennar var í­ dag.


Þriðjudagur 08. apríl 2003 kl. 00:29
Flokkað sem ýmislegt. Þar eru 105 færslur.

/ Álit

eva:

mér finnst þetta ekki væmið og blómin minna meira að segja svolítið á jarðaförina hennar. þó svo að það væri gaman að hafa mynd.

08.04.03 12:33