á morgun
á morgun ætlum við að skella okkur upp á Skaga í eitt stykki fermingarveislu. Mig minnir að ég hafi ekki komið á Akranes síðan ég fór með Akraborginni yfir sundin blá í skólaferðalagi í sjöunda bekk.
En allavega, þetta er frændi hans óla sem er að fermast þannig að meginþorri tengdafjölskyldunnar verður þarna og alveg bókað að það verður margt hægt að spjalla um. Auk þess sem við höfum ekki komist í almennilega rjómatertu í marga mánuði!
Annars vorum við bekkjarfélagarnir að spjalla um fermingar um daginn og þá kom í ljós að einhver sem einhver þekkir og hefur haldið víst nokkuð margar fermingarveislur, skellir bara upp félagsvist á nokkrum borðum þannig að alla veisluna situr fólk og spilar þannig að allir ná að spjalla við alla og það vantar aldrei umræðuefni.
Annars vona ég að veðrið á morgun verði aðeins verra en það var í dag, maður þarf jú að sinna Verkefninu.
Flokkað sem ýmislegt. Þar eru 105 færslur.

