post birthday
gærdagurinn var svakalega fínn, þegar ég kom heim seinnipartinn í gær beið mín nýr fjölskyldumeðlimur! Baddý systir hafði læðst inn fyrr um daginn og skilið eftir gullfisk í glerskál á borðinu frá fjölskyldunni. Hann er alveg ótrúlega sætur, pínu feiminn en á það til að taka smá spretti. Hann hefur fengið nafnið Tetris. Mér finnst skálin alveg einstaklega flott en það sem ég hef lesið mér til um gullfiska er að þeim finnst víst ekkert voðalega þægilegt að vera í svona þröngu rými, þó svo að skálin sé nokkuð stór.
Núna er málið að fá sér nokkur accessories, hitamæli, kastala eða fjársjóðskistu og svoleiðis.
í gærkvöldi kíktu svo óli, Eva, Tryggvi og Kolla við í smá kaffi og spjall um málefni heimsins.
í tilefni dagsins splæsti ég
í tilefni dagsins splæsti ég einum svona á mig og mína. þetta er græja sem maður á að vera löngu búinn að fá sér.
Annars fórum við óli í hádegismat á cafe Paris á austurvelli í góða veðrinu. ég er að spriiinga eftir taco salat og jömmí gulrótarköku. Svona eiga afmæli að vera!
fallegur dagur
ég fékk snemmbúna afmælisgjöf í gærkvöldi, bókin sem ég pantaði mér frá amazon kom inn í gær og þvílík snilldarbók. "Allt" það flottasta í grafískri hönnun í heiminum sl. 2-3 ár. þar fann ég líka, mér til mikils svekkelsis, letur sem heitir "Stitch me" .. krosssaums pixel letur! arg! en æi.. mátti búast við því.
Allavega, ég á afmæli í dag ... *25* ára. ég stækkaði ekkert í morgun en held ég hafi séð nýja hrukku :s í kvöld ætla ég að taka mér frí, fara heim um 6 leytið og setja á rísbotninn sem ég gerði fyrir nokkrum vikum í einhverju kasti og er enn spakur inni í frysti, nú svona ef einhver vildi kíkja í kotið.
En skemmtileg niðurstaða! Hversu fullkomið
En skemmtileg niðurstaða! Hversu fullkomið ætli þetta próf sé? Spurningarnar virðast vera gerðar eftir afstöðu flokkana til mikilvægra mála. Spurning samt hvort allt eigi að vega jafnt, sum mál eru mikilvægari en önnur. Svo er spurning hvað vantar. Allavega mjög skemmtilegt þó svo að niðurstaðan sé ekki í samræmi við hug minn til þessara flokka. Svo er spurning hvað hefur áhrif á það sem ég hef ákveðið að kjósa, kannski bara ímynd eða bindið hans Steingríms J.!
Flokkað sem
rosa gangstera mynd af mér!
rosa gangstera mynd af mér! spurning um að fá þig til að taka nýja svona við tækifæri dagný mín;)
harður rockur
það er banastuð í Færeyjum
þær eru snilldarlegar MMS hreyfimyndirna
þær eru snilldarlegar MMS hreyfimyndirna frá Zoom inni á vit.is, sérstaklega finnst mér þessi brilliant, hún er komin í símann minn.
Reyndar er ég ekki alveg nógu ánægð með fontinn sem þeir nota til að merkja myndirnar, hann er mjög mismunandi og hann og copyright merkið verður óþekkjanlegur í sumum myndunum. það er samt góð og gild ástæða fyrir því þar sem skjáir gsm síma eru misstórir. þetta er samt eitthvað sem er vert að tækla.
ég gaf mér smá tíma
ég gaf mér smá tíma og kíkti í kringluna áður en ég fór í skólann í morgun. Get ekki verið þekkt fyrir að hafa ekki litið inn í nýju NEXT búðina þar sem ég var búin að heyra að hún væri nokkuð lík Zöru og þar sem ég er áskrifandi að Zöru gat ég ekki staðist þetta lengur. Jú, hún er nokkuð svipuð en ekki eins góð finnst mér, eitthvað of mikið "Lycra" í gangi þar. í Zöru finn ég mér yfirleitt alltaf eitthvað sem mig langar í,.. reyndar helst það ótrúlega í hendur við inneignina á reikningnum mínum.. því minni sem hún er því meira af flottu finnur maður.
Allavega, ég endaði bara í hagkaup þar sem ég keypti nærföt á Glasgow verði, ekki slæm kaup það!
jæja, ég gaf mér allavega
jæja, ég gaf mér allavega tíma til að fríska aðeins upp á okkur hérna.. mér líður næstumþví eins og nýrri manneskju.. vhúff!
morguninn var tekinn snemma,
morguninn var tekinn snemma, ég var komin upp í skóla um 9 leytið.. í þessu brilliant góða veðri. Svo er alveg bilað heitt hérna uppi á efstu hæð, sólin er grillar þakið og vinnustofan okkar er eins og bakaraofn. Steikin er að verða til!
Annars er ég að reyna að bægja frá allar hugsanir um það hvað mig langar að vera að gera annað en hanga hérna, taka til í fataskápnum, taka sprett á Fisher...
ég væri alveg til í að hafa svona dag eins og ása, það er þvílíkt langt síðan ég hef kíkt í IKEA og þó það sé alltaf sama dótið þar þá fær maður fráhvarfseinkenni eftir smá tíma.
Annars veit ég ekki hvort ég fari nokkuð heim fyrr en seint í kvöld. óli fór nefnilega norður í gær með óla og Evu, fór víst á einhverja byssusýningu í dag og er í golfi núna. þannig að það er ekkert að sækja heim í bili.
Og ég plataði tengdamömmu mína til að taka smá þátt í lokaverkefninu mínu, hún bjargar því alveg því ég hefði verið þvílíkt lengi að gera það sem ég veit að hún rúllar upp með stakri snilld. og svo ætlar hún að baka kleinur handa okkur þessi elska. =)
þó þetta verkefni sé ofsalega gaman þá er það ótrúlega þreytandi og viðbúið að það verði mikið spennufall þegar sýningin loksins opnar.. á þessum tíma eftir 2 vikur!
omg.
óréttlæti heimsins
hvað er málið með alla þessa frídaga? mér finnst þetta meira en lítið ósanngjarnt þegar allir eru í fríi að spóka sig í sólinni, úti á golfvelli eða bara heima og tjilla og bora í nefið nema ég!
Sumarið er löngu komið, samt eru allir í fríi á morgun og krúsjal þjónusta eins og hannyrðaverslanir og prentstofur loka á auma nemendur sem eru að vinna lokaverkefni þar sem hver dagur skiptir máli! Viljið þið ekki bara slökkva á internetinu líka??
fjandans
dagurinn
ég er búin að vera í skólanum síðan hálf níu í morgun. ég býst við að næstu vikur (allavega tvær) verði þannig svo að þetta verkefni klárist á tíma. ég fékk nefnilega martröð einhverntíman í febrúar sem var þannig að sýningin myndi opna á morgun og ég var ekki ennþá búin að ákveða hvað ég ætlaði að gera fyrir hana. Mjög svo óskemmtilegur draumur!
Planið er að allt verði tilbúið 3. maí þannig að mánudaginn 5. maí ætla ég að hengja upp verkefnið mitt og anda rólega í þeirri viku. Svo þarf að útbúa portfolioið betur og fara á stofuflakk.
En núna ætla ég að drífa mig heim, óli er búinn í körfubolta og ætlar að taka mig með í heimleiðinni. Ef við ættum baðkar heima myndi ég leggjast ofaní það.
næsta skref af bloggi?
næsta skref af bloggi?
góða veðrið
mig langar í frisbí
Potterinn
Hver ætli sé annars munurinn á venjulegu útgáfunni af Harry Potter og á Adult edition? ætli það sé bara kápan eða er hún kannski svæsnari.. hmm
bækur
ég gerðist mjög djörf í morgun og pantaði mér nýju grahö biblíuna sem var að koma út. Mjög undarlegt, hún kostar ca 14 pund á breska amazon en 40 dollara á bandaríska amazon. Sem gerir um 1500kr mun í íslenskum krónum. Hún er náttúrlega gefin út af Taschen í Bretlandi þannig að það gæti spilað inní.
ég notaði líka tækifærið og pantaði mér fönixregluna til að lesa í sumar. Hún kemur reyndar ekki út fyrr en í maí en ég vona að hin komi fyrir afmælið mitt.
þetta er það sem ég
þetta er það sem ég er búin að vera að gera sl. vikur
tadammm...

nafnatillögur óskast á þetta letur, já og komment ef þú vildir vera svo væn(n) =)
påske måske?
páskarnir störtuðu vel, á brilliant heimboði til ó+E á föstudaginn langa. Síðan þá er ég eiginlega búin að búa uppi í skóla og óli á golfvellinum. Við tókum samt upp á því í síðustu viku að kaupa okkur eitt lítið páskaegg saman. Svo þegar Hanna systir og þorsteinn kærasti hennar komu í borgina á skírdag færðu þau okkur sitt hvort eggið frá mömmu og pabba, sem ákváðu að eyða páskunum í Dublin. Systur mínar og mágur ætla svo að koma í mat í kvöld, það verður grillað fram á rauða nótt!
sýningin
ég fór í dag niður í Hafnarhús til að skoða salina sem við fáum fyrir sýninguna. þannig fær maður aðeins betri sýn á það hvernig lokaútfærslan kemur til með að vera, stærð og lögun og þessháttar. Hönnunardeildin fær meðal annars stóra salinn á neðstu hæðinni, inn af afgreiðslunni. Hann snýr út að götu og allir hlerar verða teknir frá gluggunum þannig að sá salur verður opinn frá götunni, sem er mjög fínt. Steinþór Kári, einn af hönnuðum hússins, er sýningarstjóri fyrir hönnunardeildina og er alveg ótrúlega klár í því, hann segir að þetta sé í fyrsta sinn sem húsið er undirlagt í eina sýningu! það verður því ótrúlega gaman að sjá útkomuna og ennþá ótrúlegra ef þetta á eftir að takast hjá okkur.
Helgin verður því að vera mjög smooth, fyrir þriðjudag ætla ég að vera komin með stærð og lögun fullmótaða þannig að ég geti fengið almennilegt tilboð frá prentsmiðju. það er margt sem á eftir að gerast í næstu viku!
í kvöld er stefnan sett á matarboð á Bólstöðum hjá heiðursfólkinu óla, Evu og væntanlegum erfingja.
síðasta kvöldmáltíðin
kvöldmaturinn? kjúklingur að hætti Lilju mágkonu (bringa í bitum böðuð í sólþurrkuðum tómötum, fetaosti, pesto og olíu, eldað í ofni), eftirréttur? Rjúkandi nýjar biscotti að hætti húsbóndans!
celeblog!
En ótrúlega fyndið að lesa bloggið hans Poul Nyrup Rasmussen. það er ágætt við svona tilefni eins og að rekast á danska forsætisráðherran að rifja aðeins upp dönskuna, mér sýnist í fljótu bragði hún vera nokkuð skýr hjá honum.
Mér finnst pínu skrýtið að íslenskir stjórnmálamenn hafi ekki tekið þetta meira upp á sína arma, þó svo að það séu náttúrulega nokkrir duglegir /duglegar. ég hefði nefnilega haldið að bloggið væri eitt auðveldasta, einfaldasta og skemmtilegasta tæki til að koma skoðunum sínum á framfæri á þessum síðustu og verstu. Er BB eini bloggari D listans? Hvar er Davíð?
það er eiginlega ekki föstudagur
það er eiginlega ekki föstudagur í dag hjá mér eins og hjá flestum. óli fer í 5 daga frí líka en ég verð að vinna í lokaverkefninu alveg á fullu svo það geti virkað vel 10. maí.
Staðan núna er sú að ég er búin að hanna letrið, núna er "bara" að setja það upp á áhrifaríkan hátt... þannig að það virki og skilaboðin komist til skila.
design n stuff
Endilega kíkið á Undirhyggjublaðið - 0203, gefið út af nemendum í skólanum.
ég var á Bowling for
ég var á Bowling for Columbine. get ekkert annað sagt en þessa mynd verða bara allir að sjá. mér er alveg sama þó hann hafi ýkt nokkur atriði, hún var góð og kom vel til skila því sem henni var ætlað.
auður og bjarkey hafa mikið
auður og bjarkey hafa mikið rætt um persónulegt blogg undanfarið og ábyggilega dagný líka fyrir stuttu. vá hvað ég er komin stutt með þetta. mér finnst meira að segja erfitt að blogga um hverstagslega hluti, bara hvað ég gerði í dag eða e-ð. mér finnst alltaf erfitt að ímynda mér að einhverjum gæti fundist þetta merkilegt. ég vil bara segja húrra fyrir þeim og öllum hinum hugrökku bloggurunum. þetta spjall þeirra hefur hleypt í mig lífi (allavega um stundarsakir) og vonandi mun ég blogga eins og brjáluð!!
á morgun
á morgun ætlum við að skella okkur upp á Skaga í eitt stykki fermingarveislu. Mig minnir að ég hafi ekki komið á Akranes síðan ég fór með Akraborginni yfir sundin blá í skólaferðalagi í sjöunda bekk.
En allavega, þetta er frændi hans óla sem er að fermast þannig að meginþorri tengdafjölskyldunnar verður þarna og alveg bókað að það verður margt hægt að spjalla um. Auk þess sem við höfum ekki komist í almennilega rjómatertu í marga mánuði!
Annars vorum við bekkjarfélagarnir að spjalla um fermingar um daginn og þá kom í ljós að einhver sem einhver þekkir og hefur haldið víst nokkuð margar fermingarveislur, skellir bara upp félagsvist á nokkrum borðum þannig að alla veisluna situr fólk og spilar þannig að allir ná að spjalla við alla og það vantar aldrei umræðuefni.
Annars vona ég að veðrið á morgun verði aðeins verra en það var í dag, maður þarf jú að sinna Verkefninu.
gunna.net
Hún Gunna, mín hugaða æskuvinkona sem sigldi burt af klakanum í febrúar er búin að landa giggi í Dublin, þangað sem hún flúði til að finna nýtt umhverfi og ný tækifæri. Til hamingju Gunna! í dag Dyflin.. á morgun London París Róm...
(vá væmið!)
það er svo gaman hvað
það er svo gaman hvað það þarf lítið til að gleðja mann.
bike
það er svo gaman þegar það er vor í lofti, við litum aðeins upp af tölvuskjánum um kvöldmatarleytið í gær og fórum smá rúnt á Fisher og gamla fáknum hans óla eftir að sá gamli fékk nýjan barða og slöngu í gær. Fisher var mjög glaður að komast út og fá smá loft ekki síður en eigandi hans.
Flokkað sem
áskorun
fékk email..
> 12. apríl nk. kl.21.00 munu allir mótmæla með að slökkva á öllum
> rafmagnstækjum, og kveikja á kerti á götum úti í 10 mínútna þögn til
> heiðurs látnum í írak.
>
> í öllum heiminum !!!
>
> Ekki gleyma að senda þetta áfram á alla sem þú þekkir, til að rödd
> heimsins
> heyrist í þögninni .
þetta rétt sleppur passar, spaugstofan er búin kl 20:50 þannig að landinn ætti að geta tekið þátt.
< / end sarcasm >
G-ið rúlar bara. ég er
G-ið rúlar bara. ég er búin að vera að fylgjast með þessari sigurgöngu okkar og ég verð að segja að ég er stolt. já og ég var að setja inn myndir frá útskriftinni. gaman af þessu.
G bekkurinn er að rústa
G bekkurinn er að rústa öðrum í skráningu á stúdentavefinn okkar, yfir 50% svarhlutfall! Geri aðrir betur.
dót allra vikna
ég kíkti með Guðjóni í hádeginu í dag í dótabúðina sem er rétt handan við hornið frá skólanum. Dótið þar var rosalega flott. Helst langar mig í mac og videovél til að geta haldið áfram að taka video og klippa. Flestar camerur eru nefnilega með firewire og þó svo pésarnir okkar væru til í að klippa smá þá er það bara svo "miklu auðveldara á mac".
tilgangurinn
Bekkjarsystur mínar eru að ræða saman fallega hluti og komust að góðum sannleika um tilgang lífsins, kannski hinum eina sanna? það verður hver að dæma fyrir sig.
ég pæli stundum í því hvað í ósköpunum ég er eiginlega að gera í þessu lífi, listnám er ekki mjög vænlegt til árangurs í kapphlaupi nútímans ef maður ætlar að taka þátt í því, þó svo að ég sé kannski á hagkvæmustu braut skólans en það að geta starfað við það sem maður hefur mestan áhuga á finnst mér ótrúlega stórt hluti af því að vera hamingjusamur í lífinu, þó svo maður sé ekki að moka inn peningum.
Svo er sagt að maður sjái ekki tilgang lífsins fyrr en börnin manns fæðast.
Annars er ég nokkuð ánægð með Auði, það er yndislegt að verða vitni að því þegar fólk sýnir sínar einlægu hugsanir og ég mætti alveg vera aðeins duglegri við það sjálf.
Einu sinni var ég leynibloggari, frá mars 2000 fram á mitt ár 2001 var ég afskaplega feimin við þetta og vildi ég ekki segja neinum í kjötheiminum frá þessum "dagbókarskrifum" jafnvel þó það væri fjarri því að vera merkilegt sem ég var að segja, fjallaði bara um hinar og þessar síður sem ég fann á netinum og yfirleitt ekki neitt persónulegt. Samt er ég á því að það er miklu skemmtilegra að lesa það sem er persónulegt heldur en hitt.
ég er alltaf að reyna að hugsa þannig að ég sé bara að tala við sjálfan mig og af virðingu við aðra reyni ég að tala ekki mikið um þá. Tilgangur (svo maður komi nú aftur að honum) þessara "dagbókar"skrifa er í meginatriðum sá að varðveita hugsanir manns sjálfs og þess vegna er maður að gera þetta fyrir sjálfan sig og engan annan, maður fær bara eitthvað kikk út úr því að aðrir geti lesið þetta. eða hvað?
áhugavert...! Er ekki málið að
áhugavert...! Er ekki málið að læra af reynslunni? ég held það
pjúsarar eru víða..
Borgarholtsskóli er með ágætis upplýsingavef um auglýsingakúrs sem er kenndur í skólanum. Neðarlega á síðunni er listi yfir það sem þeim finnst vera áhugaverðar krækjur og viti menn hvað finnum við þar fyrir ofan SIA? enga aðra en Pjúsarafélagið!
OMG!!
það er orðið nokkurn vegin opinbert. Sýningin okkar verður í Hafnarhúsinu 10-29. maí nk. þýðir þetta að maður þarf að fara að gera eitthvað?
Svona spauglaust þá er ég frekar tens yfir þessari sýningu. áætlað er að um 8000 manns komi til með að sjá hana, húsið verður undirlagt.. meira að segja ERRó beygir sig fyrir okkur.. og það verður alveg smekkfullt á opnuninni þar sem þetta er kosningadagur og margir verða á ferðinni.
út er komin þýðing á
út er komin þýðing á faðirvorinu yfir á nútímamál. Er þetta ekki það sem þeir meintu allan tíman?
breytti pínu, og ég veit
breytti pínu, og ég veit ekki af hverju bakgrunnurinn er ekki hvítur, það eru bara stælar í mér.
var samt að spá hvort ég ætti að gera nokkra svona ma98 hnappa sem liðið getur birt á sinni síðu, svona klíkuhnappa.. hehe
samt, ég ætti frekar að fara heim að borða...
ég er gera verkefni fyrir
ég er gera verkefni fyrir director námskeið sem ég er á. Director er fínt forrit nema þetta er eiginlega of mikið föndur fyrir minn smekk.. ég veit að þetta kemur úr hörðustu átt en ég hef aldrei fílað að vinna í flash þegar maður getur gert hlutina miklu einfaldari með html. Director er samt meira CD eða DVD viðmótshönnunarforrit þannig að að því leyti fíla ég það. ég er samt ekki alveg að nenna þessu núna.. argg..
grélaðarblogg
Muna: bæta Veigu sætu við á linkalistann. Bloggið hennar er skemmtilega súrt ;)
Lilja Kristín
Eins og Auður nefnir þá er liðið ár síðan Lilja bekkjarsystir okkar dó. ég setti inn mynd í minningu hennar á júbílantavefinn okkar í dag en svo fór ég að spá pínu í hvort Lilja hefði viljað hafa þetta svona? Hefði hún ekki sagt að þetta væri einum of væmið?? Mig grunar það pínu. ég á hins vegar enga góða mynd af henni sem ég gæti sett inn þannig að ef einhver lumar á slíkri má sá hinn sami alveg koma henni til mín og ég set hana inn.
Svo setjum við það inn í dagskránna yfir hátíðarhelgina að leggja blóm á leiðið hennar. ég fór nefnilega ekki á jarðaförina fyrir ári síðan og sé mjög eftir því, þó svo ég hafi minnst hennar hérna heima. ég er nefnilega búin að hugsa mjög til Lilju síðustu daga eftir að við fréttum af önnu Maríu, fv. bekkjarsystur hans óla en hún dó í síðustu viku. Jarðaförin hennar var í dag.
ma98
Afrakstur dagsins má sjá á ma98.net. óli klári setti saman einn grunn og í samvinnu við Trigger eyddum við einni kvöldstund í að skrifa ofaní hann. Núna er málið bara fyrir samnemendur okkar að setja inn upplýsingar, ég ætla að senda út póst í fyrramálið, það er hér með komið á to-do listann!
Við fórum í fínt afmælispartý
Við fórum í fínt afmælispartý á föstudaginn, Baddý systir hélt upp á 23 árin á Hverfisbarnum og það var mjög gaman, meira að segja núðlan mætti öllum að óvörum!
í gær fengum við Munda og Svanhildi í heimsókn í kaffi og núna er óli að steikja restina af grautarlummudeginu sem við gerðum í gær við ljúfa undirtóna nýja Radiohead disksins.
OMG!
ég fékk nett hjartaáfall áðan!
ég var stödd í director tíma inni í tölvustofu og ákvað að sýna sessunauti mínum grúvið sem ég gerði fyrir Fíton blaðið nema hvað að linkurinn á splass síðunni inn á portfolioið vísaði inn á einhverja gamla og brotna síðu en ekki litlu sætu síðuna sem ég gerði um heglina. úff.. þetta er svipuð tilfinning og maður fær þegar maður fattar að maður hefur gleymt að setja jógúrtið í möffinsdeigið...
þrátt fyrir ýmsar tilraunir við að breyta þessu í gegnum gamlan imac í tölvustofunni komumst við að þeirri niðurstöðu að þetta hlyti að vera eitthvað minnisvandamál í vafranum inni í stofu því í öllum öðrum tölvum er þetta ekki vandamál.
En þetta varð til þess að ég er núna farin að taka til á vefsevernum mínum og allar gamlar syndir munu fjúka út í veður og vind.
aðeins seinna: núna er ég handviss um að búkolla var að spila 1. apríl með mig...
vega og meta...
Femenistar mótmæla gáluauglýsingum Flugleiða, tíkurnar gefa uppskrift af árangursríkri helgi. Hmm, hefði ekki verið heppilegra að birta þessa grein aðeins fyrr/seinna?
Elvis is high in the building
ég náði í myndband með Elvis á kazaa í gær, þar sem hann syngur 'are you lonesome tonight' á tónleikum í júní 1977. Frekar fyndið klipp í sorgleika sínum þar sem hann segir: "And now the stage is bare, and I am standing there, without any hair.. and If you won't come back to me... what the heck with it!" Sjarmör hann Elvis.
5