those are the days
takk fyrir hamingjuóskirnar elskurnar, núna þegar maður hefur svona mikinn frítíma veit maður ekkert hvað maður á af sér að gera. Að vísu er nóg að gera en eftir að maður er búinn að skila af sér stóru verkefni verður maður að fá að blása frá sér, vera heima hjá sér og gera pínu af því sem manni hefur langað að gera undanfarnar vikur. En er það ekki svolítið ellimerki að baka rísbotn "bara til þess að eiga" í frítímanum sínum?
ég er farin að hafa áhyggjur af því.
Gærdagurinn var mjög skemmtilegur, ég fór með nokkrum bekkjarfélögum; Vigdísi, Guðjóni og Jóhannesi í bláa lónið í bongó blíðu, ákaflega ljúft. í gærkvöldi komu svo óli og Eva í hamborgara/banana grillveislu.
Núna er planið að rölta út á flugvöll og ná í bílinn hennar Baddýjar, en hún flaug norður í morgun. á honum ætla ég að renna í skólann og koma við í Blómaval til að kaupa mold á blessuðu stofublómin mín,
ég er að verða gömul.. kræst!
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 270 færslur.
/ Álit
Vúbbbs. Gleymdi að óska þér til hamingju. Til hamingju. Vona að þú fáir A en ekki B.

