nókía raunir
Nokian mín hefur ákveðið að verða algjört pain. hún byrjaði á því að hafna fallegu skjámyndinni sem ég var búin að búa til og setja SIMINN í staðin, kannski er þetta eitthvað auglýsinga-markaðstrix sem síminn er með.. efast samt um það.. svo þegar skjámyndin dettur út eyðist líka út allt 'recent call' dæmið þannig að ég þarf að fletta óla upp í hvert sinn sem ég hringi í hann.
það nýjasta er það að neita því að spila hringitóna þegar einhver ætlar sér að ná á mér, það er eins og hann sé alltaf á silent. þetta veldur því að ég þarf að geyma hann hjá tölvuskjánum þannig að þegar hann truflast þá veit ég að síminn er að hringja.
það gæti verið að nókían mín sé eitthvað fúl því ég lét þau orð falla einhverntíman um daginn að hún væri orðin svo gömul að það fást ekki einusinni ný cover á hana.. kannski ég verði bara að fá mér nýjan síma eftir allt saman.
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 270 færslur.

