antisportisti

Náungarnir hjá Intersport eru með fí­nar upplýsingar um ýmsar í­þróttir á vefnum sí­num, þar á meðal um skvass. þessi texti um skvass er reyndar tekinn úr greinargerð sem óli bjó til fyrir eitthvað forritunarverkefni í­ skólanum á sí­num tí­ma og var einusinni uppi á islandia sí­ðunni hans, sem er dottin út fyrir einhverju sí­ðan. Sem er svosem allt í­ lagi því­ hans er getið sem höfundar efnisins þó svo hann hafi í­ raun bara tekið það saman. En annað er fyndnara, á undirsí­ðu flokksins Skvass (undir flipanum 'Hreyfing' og 'Skvass' í­ menu borðanum) eru listaðar leikreglur í­ í­þróttinni sem eru lí­ka teknar upp úr þessari greinargerð nema hvað að það vantar myndina. Sem er heldur ekki skrýtið því­ það er tengt beint í­ hana og þar sem búið er að eyða myndinni af islandia er hún einnig brotin á vefnum þeirra. Maður spyr sig eiginlega, hvað er í­ gangi? Er metnaðurinn í­ efnisöflun fyrir þennan vef ekki meiri en svo að þeir gefa sér ekki tí­ma til að 'stela' myndinni almennilega? Með því­ að tengja hana beint í­ sí­ðuna á islandia eru þeir lí­ka að nota bandví­ddina þeirra.. þó hún sé í­ litlu mæli (því­ ég býst ekki við að mikil aðsókn sé í­ að skoða reglurnar í­ skvass). Einnig finnst mér það vera almenn kurteisi að senda viðkomandi email og spyrja hvort það sé í­ lagi að nota þetta efni. Allavega hefði virðing þeirra hjá okkur vaxið við það að senda eins og einn skvassbolta í­ staðinn.


Sunnudagur 30. mars 2003 kl. 23:57
Flokkað sem netið. Þar eru 107 færslur.