Sumir eru greinilega dottinn í­

Sumir eru greinilega dottinn í­ kosningahugleiðingarnar svipað og ég hef verið pí­nulí­tið undanfarið, bara af því­ ég á að vera að hugsa um aðra hluti en það.
Mér finnst nefnilega það sem er á boðstólum í­ þessum kosningum vera sama gamla klisjan og alltaf. Persónulega finnst mér Ingibjörg Sólrún og hennar gengi vera afskaplega óspennandi kostur og mun aldrei kjósa hana fyrir mitt litla lí­f. Svo eru lí­ka forsetakosningar á næsta leyti þannig að maður veit aldrei nema hún bjóði sig fram í­ það, af fenginni reynslu!
Tryggvi talar svolí­tið um skattamál og ég er sammála mörgu sem hann segir. Samt er ég glöð yfir því­ sem ég heyrði einhversstaðar einhverntí­man (örugglega frá Hannesi Hó) að skattalækkun leiði ekki endilega til þess að tekjur rí­kisins lækki heldur eru þær hvetjandi til þess að menn vinni meira, kaupi meira og framkvæmi meira og þar með aukast tekjurnar í­ kassann.
ég er samt eiginlega alveg viss um að ég gleymi því­ að kjósa því­ lokasýningin okkar er 10 maí­.. og á hverjum degi glymur niðurtalningin... aðeins 40 dagar í­ kosningar!!
æ æ

Mánudagur 31. mars 2003 kl. 14:45 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem ýmislegt / 1

nýjustu tölur sýna að TU

nýjustu tölur sýna að TU bekkurinn er með forskot í­ stigakeppni póstlistans. Hvar eruð þið félagsfræðideildarfólk? offline?? trúi því­ ekki!

Mánudagur 31. mars 2003 kl. 14:16 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem ýmislegt / 1

antisportisti

Náungarnir hjá Intersport eru með fí­nar upplýsingar um ýmsar í­þróttir á vefnum sí­num, þar á meðal um skvass. þessi texti um skvass er reyndar tekinn úr greinargerð sem óli bjó til fyrir eitthvað forritunarverkefni í­ skólanum á sí­num tí­ma og var einusinni uppi á islandia sí­ðunni hans, sem er dottin út fyrir einhverju sí­ðan. Sem er svosem allt í­ lagi því­ hans er getið sem höfundar efnisins þó svo hann hafi í­ raun bara tekið það saman. En annað er fyndnara, á undirsí­ðu flokksins Skvass (undir flipanum 'Hreyfing' og 'Skvass' í­ menu borðanum) eru listaðar leikreglur í­ í­þróttinni sem eru lí­ka teknar upp úr þessari greinargerð nema hvað að það vantar myndina. Sem er heldur ekki skrýtið því­ það er tengt beint í­ hana og þar sem búið er að eyða myndinni af islandia er hún einnig brotin á vefnum þeirra. Maður spyr sig eiginlega, hvað er í­ gangi? Er metnaðurinn í­ efnisöflun fyrir þennan vef ekki meiri en svo að þeir gefa sér ekki tí­ma til að 'stela' myndinni almennilega? Með því­ að tengja hana beint í­ sí­ðuna á islandia eru þeir lí­ka að nota bandví­ddina þeirra.. þó hún sé í­ litlu mæli (því­ ég býst ekki við að mikil aðsókn sé í­ að skoða reglurnar í­ skvass). Einnig finnst mér það vera almenn kurteisi að senda viðkomandi email og spyrja hvort það sé í­ lagi að nota þetta efni. Allavega hefði virðing þeirra hjá okkur vaxið við það að senda eins og einn skvassbolta í­ staðinn.

Sunnudagur 30. mars 2003 kl. 23:57 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem netið

Sýnishorn af efninu mí­nu í­

Sýnishorn af efninu mí­nu í­ næsta Fí­ton blað má sjá hér. þetta kláraði ég í­ gær, þetta gerði ég hins vegar í­ dag.
maður gerir aldrei eins mikið og þegar maður á að vera að gera eitthvað annað.

Laugardagur 29. mars 2003 kl. 19:01 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem hönnun

kosningaslagurinn er byrjaður, ég fékk

kosningaslagurinn er byrjaður, ég fékk hringingu frá Arnljóti Bjarka vini mí­num og færeyinga um hóf í­ rúgbrauðsgerðinni í­ dag á vegum D í­ norð austur. ég nefndi það reyndar ekki við hann en ég hugsa að ég mæti ekki á svæðið.
Um daginn fengum við svo gesti í­ heimsókn, Laufey og Mumma sem núna er kosningastjóri fyrir vinstri græna í­ NV. Hann spurði hvort ég hefði tí­ma í­ að setja upp nokkrar auglýsingar fyrir flokkinn en þar sem lokasýningin byrjar á kjördag, 10. maí­, hef ég ekki tí­ma fyrir neitt annað fyrr en eftir það, sem er aðeins of seint. ég er nefnilega ekki svo pólití­sk þó svo pólití­skur áróður sé með því­ kraftmeira og skemmtilegra sem maður sér sem grafí­skur hönnuður. -þegar það er vel heppnað! það gerist bara svo sjaldan á í­slandi.
En allavega er ég frekar fegin að sýningin og kosningarnar bera upp á sama tí­ma, það gefur manni frí­ frá því­ að setjast fyrir framan sjónvarpið og fí­nt að fá frí­ frá því­ að fylgjast með. það breytist hvort sem er aldrei neitt.

Föstudagur 28. mars 2003 kl. 15:26 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem ýmislegt / 1

fimmtudagur

Dagurinn er búinn að vera átakalaus, mjög einfaldur fimmtudagur.
á morgun ætlum við að skila verkum okkar í­ Fí­ton blaðið þannig að ég sit ennþá uppi í­ skóla að klára giggið mitt. ég alveg elska svona föndur.. að "treisa" alls konar dúllerí­ í­ Illanum. Lokaverkefnið hrópar samt á mann hástöfum því­ ekki nema.. úps, fjörtí­u og eitthvað dagar í­ sýningu =kaldur sviti=

Fimmtudagur 27. mars 2003 kl. 19:42 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem hönnun

nenni ekki að blóta lengur...

Okkar annars ágæta tölva hefur haft einn leiðindagalla from day one. Hann er sá að hún endurræsir sig eftir eigin geðþótta. þetta getur verið mjög hvimleitt vandamál og við erum að sjálfsögðu búin að henda henni nokkuð oft heim á verkstæðið en höfum ekkert fengið út úr því­ nema feitan reikning.
í­ dag er staðan þannig að það er búið að setja hana upp aftur ca 4x með tveimur mismunandi stýrikerfum, komin með nýja viftu á örgjörvan, komin með nýjan örgjörva, búið að prófa nýtt skjá+ hljóðkort og ennþá er hún drottning í­ rí­ki sí­nu og tekur sér pásu þegar henni hentar. það er spurning hvað á að gera næst?
Eftir meira en ár í­ þessu leiðinda umhverfi eru litliputti og langatöng orðin vel skilyrt þannig að á eftir punkti kemur kontrol-ess.

Miðvikudagur 26. mars 2003 kl. 16:52 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem tækni / 3

ma98.net

slagurinn er byrjaður, G-ið og VX-ið eru nú jöfn að stigum í­ netfangaskráningakeppninni, bæði með 6 stig. AB ið rekur lestina með aðeins stigið frá særúnu. Spennan er grí­í­í­ðarleg!

Miðvikudagur 26. mars 2003 kl. 15:16 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem ýmislegt

það er eitt jafn ömurlegt

það er eitt jafn ömurlegt og að gleyma sí­manum sí­num heima, og það er að gleyma veskinu sí­nu heima. uhhh

Miðvikudagur 26. mars 2003 kl. 12:22 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem ýmislegt

bloggarar

það eru nokkrir af harðkjarnabloggarar að fara af stað í­ blogginu aftur, Már er að þróa sitt blogg 'Live' á meðan Oddur er með sitt í­ leyni... vúps
Og báðir nota þeir MT, þessa snilldargræju.
sí­ðar: ef það kraumar ekki hjá henni Hilmu lí­ka barasta...

Miðvikudagur 26. mars 2003 kl. 11:45 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem netið

bla bla..

Bekkurinn minn er þessa dagana afskaplega frjáls enda lokaverkefnisvinnan að fara á fullt. ég mætti í­ morgun gallvösk og er búin að gera tvær myndir fyrir næsta Frozt blað sem fjallar um strí­ð. Mí­n framlög má sjá hér og hér.
Annars er þetta búinn að vera ansi rólegur morgunn. Enginn mættur nema stelpurnar í­ vöruhönnun. ég býst við því­ að grafí­skir hönnuðir séu heima að vinna núna, eða sofandi? varla.

það er samt alltaf eitthvað sem nær að trufla mann frá þessu blessaða lokaverkefni. Fí­ton auglýsingastofa bauð okkur að taka þátt í­ næsta blaði sem þeir leika sér í­ að gefa út, það er mjög áhugavert verkefni og verður ef til vill vonandi kannski til þess að maður á meiri möguleika á því­ að fá vinnu í­ sumar? erfitt að segja en um að gera að vera bjartsýnn.. og halda áfram með lokaverkefnið því­ það skiptir mestu máli.

Miðvikudagur 26. mars 2003 kl. 10:44 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem hönnun

bí­óferð

Við fórum áðan með óla og Evu á 25TH Hour sem var ágæt. ég hafði heyrt nokkra lýsa því­ yfir hvað hún væri frábær og allan tí­mann beið ég eftir því­ að frábærlegheitin byrjuðu. Korteri fyrir lokun kom svo snilldin og ég neita því­ að ég er svolí­tið eftir mig eftir hana.
Alla myndina er gaurinn, sem er fyrrverandi dópsali, að undirbúa sig undir að kveðja vini sí­na og fjölskyldu eins og hann sé að fara að deyja, og en sér ekki eftir því­ sem hann gerði nema að því­ leyti að þá fær hann ekki að hitta fólkið í­ kringum sig. Maður veit eiginlega ekki hvort maður á að halda með honum því­ maður fær bara að sjá hans hlið og að hann er ekki svo vondur gaur, eða hvort maður á að halda með samfélaginu fyrir að koma dópsölum á bakvið lás og slá fyrir græðgi sí­na og sjálfselsku.
Eftir svona bí­óferð er maður alveg ótrúlega sáttur við manns eigin stöðu.
-og núna er ég þokkalega búin að eyðileggja myndina fyrir þér ef þú ert ekki búinn að sjá hana.

Þriðjudagur 25. mars 2003 kl. 23:27 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem video

í­ kvöld

í­ kvöld er planið að sjá 25th hour í­ kringlubí­ó til að fagna bloggafmælinu, ja og nota miðana sem s24 gáfu okkur um daginn. hef heyrt að hún sé góð

Þriðjudagur 25. mars 2003 kl. 17:37 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem video

3 ára bloggafmæli!! jey!

Vá, í­ dag eru liðin 3 ár sí­ðan ég byrjaði í­ blogginu. það var 25. mars 2000, layoutið leit einhvernvegin svona út og fyrsta entrí­ið var um blað nr 56 hjá k10k, vefur sem er alltaf í­ uppáhaldi.
jiii hvað tí­minn lí­ður hratt!!

Þriðjudagur 25. mars 2003 kl. 12:12 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem netið / 1

jójójó!

árgangur 1998 frá MA er kominn með póstlistakerfi og eru allir viðeigandi vinsamlegast beðnir um að skrá sig á póstlista á www.ma98.net og breiða út boðskapinn á bloggum heimsins. Póstlistarnir verða notaðir til að senda út póst vegna vefsins, hátí­ðarinnar og almennrar gleði og hamingju. þess vegna er mikilvægt að allir nái að skrá sig svo hamingjan verði sem mest.

Þriðjudagur 25. mars 2003 kl. 11:08 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem ýmislegt

ma98.com

það fer alveg að koma tí­mi á að gera eitthvað nýtt á www.ma98.com. Við Tryggvi byrjuðum að fiffa eitthvað um daginn en það varð ekkert meira úr því­, sérstaklega þar sem ég var yfir mig stressuð út af ritgerðinni. ætli ég nái að gera eitthvað meira áður en ég verð yfir mig stressuð út af lokaverkefninu?
Allar hugmyndir eru lí­ka vel þegnar varðandi vefinn, eiga þetta að vera "hvað-ertu-að-gera-í­-dag" spurningar og þá hvaða spurningar??
10 ára stúdentar eru með vef á ma93.tk og 25 ára stúdentar eru með eitthvað hérna, það er ekki spurning um að okkar verður flottari... hvenær sem hann kemur nú upp...

Sunnudagur 23. mars 2003 kl. 21:06 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem ýmislegt / 1

er að skoða myndirnar sí­ðan

er að skoða myndirnar sí­ðan á föstudaginn og er að reyna að ákveða hvort ég eigi að sýna eitthvað af þessu. það er undarlegt hvað maður lí­tur betur út þegar myndin snýr á hlið.

Sunnudagur 23. mars 2003 kl. 20:43 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem

vits er þörf, þeim er ví­ða ratar...

ég skoða stundum reference listan á teljaranum mí­num til að sjá hvaðan fólk er að koma sem heimsækir mig. þar rakst ég á náunga (veit reyndar ekki hvort þetta sé strákur eða stelpa) frá USA sem er með mig á linkalistanum sí­num. Hann/hún er lí­ka í­ grúbbu á livejournal sem heitir learn_icelandic. þar er fólk, aðallega frá Bandarí­kjunum, sem hefur áhuga á að læra í­slensku og við fyrstu sýn virðist áhugi þeirra hafa kviknað út frá aðdáun á Sigurrós og Björk. Allavega, ein spurning kom upp hvar hægt væri að kaupa í­slenskar bækur á netinu og þá fór ég að pæla, er það yfirleitt hægt? Skí­fan og BT eru með sölu á geisladiskum og tölvuleikjum en eru Hagkaup og Bóksala stúdenta virkilega einu í­slensku vefbókabúðirnar? tell me

Sunnudagur 23. mars 2003 kl. 20:06 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem bækur

mogginn lýgur ekki

Mási og Salvör fara á kostum í­ mjög áhugaverðri grein um blogg í­ miðopnu moggans í­ dag. þrátt fyrir að margir bloggarar hafi dáið bloggdauða um jólin og áramótin þá er bloggið bersýnilega ennþá inn.

Sunnudagur 23. mars 2003 kl. 19:36 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem ýmislegt

afmæli

í­ dag á Páll Hlí­ðar, systursonur hans óla stórafmæli. það er ekki oft sem maður verður eins árs gamall! Litla krúttið býr í­ Glasgow þessa dagana og heldur uppá afmæli sitt þar.

Sunnudagur 23. mars 2003 kl. 15:48 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem ýmislegt

árshátí­ðin í­ gær

Raggi félagi er búinn að setja sí­nar myndir frá árshátí­ðinni inn í­ myndaalbúmið sitt. ég er að hlaða mí­nar úr vélinni og ef það eru einhverjar sýningarhæfar þá set ég þær kannski í­ albúmið mitt.. við fyrstu sýn eru ekki margar á leiðinni þangað!

Laugardagur 22. mars 2003 kl. 22:39 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem

"birgitta"

sáuð þið eurovision myndbandið? mér fannst það alveg flott, bara alveg ótrúlega photoshop-að og ein mesta notkun á lens-flare sem ég hef séð! En það á örugglega eftir að heilla einhverja evrópubúa.

Laugardagur 22. mars 2003 kl. 22:08 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem video

sjitt hvað það var gaman í­ gær..

ég fór á árshátí­ð í­ skólanum í­ gærkvöldi. óli fór ekki með heldur fór út að borða með vinnufélögunum og í­ eitthvað poolsukk með óla hinum.
Baddý systir snyrtifræðingurinn kom og gerði total makeover á undirritaðri svo var djammað fram á rauða nótt undir skí­fusveiflum óla Palla og skemmtiatriðum frá leiklistarnemum skólans. Og besti hlutinn er sá að ég vaknaði mjög spræk í­ morgun/hádegi og ætlaði mér að vinna í­ lokaverkefninu en einhvernvegin skolaðist það allt til og maður eyðir tí­manum í­ annað. það mesta sem ég náði að gera var að gera tí­maplan.. hvenær ég ætla að vera búin með ákveðna hluta oþh. Mjög gott fyrir svona einbeitingarleysis fólk eins og mig.

Laugardagur 22. mars 2003 kl. 17:26 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem

NO WAR

ég gerðist rebbel í­ morgun og útbjó no war grafí­k á frontinn á vefnum mí­num í­ 'tilefni' af þessu heimskulega strí­ði sem er að fara af stað.

Miðvikudagur 19. mars 2003 kl. 13:18 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem hönnun

og áslaug er ekki ennþá

og áslaug er ekki ennþá komin inn.. hvað er í­ gangi?

Sunnudagur 16. mars 2003 kl. 22:23 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem ýmislegt / 2

we have a winner!

ég fékk mjög skemmtilegan meil frá s24 fyrir helgi þar sem þeir gáfu mér 2 miða á "25th hour" sem var einmitt frumsýnd á fös. jibbí­, og ég sem vinn aldrei í­ neinu. gæti þetta tengst því­ að kortið mitt hjá þeim er að renna út og það er ekkert inni á því­? hmmm

Sunnudagur 16. mars 2003 kl. 22:21 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem video

ég fór í­ dag upp

ég fór í­ dag upp í­ skóla til að vinna í­ verkefni sem er í­ gangi núna, við erum nokkrar saman að gera heimildarmynd, tókum upp uþb klst af efni, klipptum það niður og erum núna að klára að klippa það í­ FinalCut og vinna eftirvinnslu í­ AfterEffects. það er nefnilega ótrúlega gaman að fikta í­ þessu og vonandi náum við að klára þetta fyrir föstudaginn næsta, myndin verður örugglega um 10min löng.

Sunnudagur 16. mars 2003 kl. 22:00 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem hönnun

sí­mamál

ég gafst upp á gamla sí­manum mí­num og stökk á nýjan 3510i sí­ma frá Nokia, afskaplega flott græja, með litaskjá og det hele. núna wappa ég um með gprs og sendi mms hægri vinstri. því­lí­kar unaðssemdir! og já, hann hringir, það er kostur.

Sunnudagur 16. mars 2003 kl. 21:51 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft

nókí­a raunir

Nokian mí­n hefur ákveðið að verða algjört pain. hún byrjaði á því­ að hafna fallegu skjámyndinni sem ég var búin að búa til og setja SIMINN í­ staðin, kannski er þetta eitthvað auglýsinga-markaðstrix sem sí­minn er með.. efast samt um það.. svo þegar skjámyndin dettur út eyðist lí­ka út allt 'recent call' dæmið þannig að ég þarf að fletta óla upp í­ hvert sinn sem ég hringi í­ hann.
það nýjasta er það að neita því­ að spila hringitóna þegar einhver ætlar sér að ná á mér, það er eins og hann sé alltaf á silent. þetta veldur því­ að ég þarf að geyma hann hjá tölvuskjánum þannig að þegar hann truflast þá veit ég að sí­minn er að hringja.

það gæti verið að nókí­an mí­n sé eitthvað fúl því­ ég lét þau orð falla einhverntí­man um daginn að hún væri orðin svo gömul að það fást ekki einusinni ný cover á hana.. kannski ég verði bara að fá mér nýjan sí­ma eftir allt saman.

Fimmtudagur 13. mars 2003 kl. 15:04 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft

kaffiprófið

ef ég drykki nú bara kaffi..

Samkvæmt kaffiprófinu er ég
Espresso!
30 ml af mikið brenndu eðalkaffi.
Hvernig kaffi ert þú eiginlega?

Mánudagur 10. mars 2003 kl. 14:09 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem

skólinn og meira til

þessa dagana fer lokaverkefnisvinnan að fara af stað af því­ ritgerðin er búin. ég ætla að hitta leiðbeinandann minn á eftir og spjalla við hann um þær hugmyndir sem ég er með, sem ég veit ekki alveg hvað eru góðar. það eru ekki nema nokkrar vikur fram að sýningunni og maður fer að verða svolí­tið stressaður bráðum yfir því­, hún opnar 10. maí­ í­ Hafnarhúsinu.
ég og Vigga fengum lí­ka freelance verkefni um daginn sem við erum að vinna þessa dagana sem vill svo skemmtilega til að við fáum lí­ka metið til eininga. það er alltaf gaman.

Mánudagur 10. mars 2003 kl. 12:32 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem hönnun

mein schwesterling

ég var að skipta út útlitinu á blogginu hennar Baddýjar, hún var í­ 40's förðun í­ skólanum og þessi skutlumynd var tekin þá.
Hún er á lausu.. eftir því­ sem ég best veit ;)

Fimmtudagur 06. mars 2003 kl. 16:24 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem ýmislegt / 1

those are the days

takk fyrir hamingjuóskirnar elskurnar, núna þegar maður hefur svona mikinn frí­tí­ma veit maður ekkert hvað maður á af sér að gera. Að ví­su er nóg að gera en eftir að maður er búinn að skila af sér stóru verkefni verður maður að fá að blása frá sér, vera heima hjá sér og gera pí­nu af því­ sem manni hefur langað að gera undanfarnar vikur. En er það ekki svolí­tið ellimerki að baka rí­sbotn "bara til þess að eiga" í­ frí­tí­manum sí­num?
ég er farin að hafa áhyggjur af því­.

Gærdagurinn var mjög skemmtilegur, ég fór með nokkrum bekkjarfélögum; Vigdí­si, Guðjóni og Jóhannesi í­ bláa lónið í­ bongó blí­ðu, ákaflega ljúft. í­ gærkvöldi komu svo óli og Eva í­ hamborgara/banana grillveislu.
Núna er planið að rölta út á flugvöll og ná í­ bí­linn hennar Baddýjar, en hún flaug norður í­ morgun. á honum ætla ég að renna í­ skólann og koma við í­ Blómaval til að kaupa mold á blessuðu stofublómin mí­n,
ég er að verða gömul.. kræst!

Þriðjudagur 04. mars 2003 kl. 13:08 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft / 1

úff

jæja börnin mí­n, þá er BA ritgerðin mí­n komin út úr prentaranum, búið að fjölfalda hana og binda inn þannig að það eina sem hægt er að gera núna er að skila henni inn á skrifstofuna og slappa af það sem eftir er dagsins.

Mánudagur 03. mars 2003 kl. 10:16 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem hönnun / 4