játning

ég horfði á hluta af bachelor áðan og hef horft á þetta áður. en hversu vitlaust getur fólk orðið að taka þátt í­ þessu?! stelpur sem keppa um hver færa giftast einum gæja og þær vita að þetta er keppni og það séu svona 15 aðrar að með sama markmið. ein sagði meira að segja í­ byrjun að þetta væri svona svipað og þegar hún var að keppa í­ miss texas! þær fá að kyssa hann og knúsa svona til skiptis og svo verða þær auðvitað voðalega ástfangnar af honum og eru alveg heart broken þegar hann velur einhverja aðra. talandi um good tv;)

Fimmtudagur 20. febrúar 2003 kl. 23:30 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem video

nákvæmlega!

baggalútur klikkar ekki

Fimmtudagur 20. febrúar 2003 kl. 23:17 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem netið

sagan af þunglynda vefþjóninum

ég kenni virkilega í­ brjósti um þennan vefþjón, ég held hann eigi virkilega bágt : p

Fimmtudagur 20. febrúar 2003 kl. 22:57 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem tækni / 1

it's alive!

Að gefnu tilefni vil ég taka fram að rógburður sem ég heyrði og bar áfram á ekki við nein rök að styðjast. Sandra Kim er sprelllifandi og er að rokka feitt í­ Belgí­u.

Þriðjudagur 18. febrúar 2003 kl. 10:38 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem 1

syndin hefur minnkað um 46.7%

Við óli gerðum nokkuð í­ morgun sem hefur verið ofarlega á to-do listanum okkar sí­ðastliðin 5 ár.. að fara niður á hagstofu og láta skrá okkur í­ sambúð. Núna lifum við í­ aðeins minni synd og það er ekki laust við það að ákveðnu fargi hafi verið lyft af listanum góða. Ef aðeins við hefðum verið svona dugleg sl. haust.. fyrir 1.des.. hefðum við losnað við ákveðna skriffinsku sem mun drynja yfir okkur á næstu vikum. djö!

Þriðjudagur 18. febrúar 2003 kl. 10:34 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem

kokkur dauðans..

og má ég segja ykkur hvað Eva gerir brjálæðislega fí­nar skinku tartalettur!.. jumm, ég er bara með fráhvarfseinkenni..

Mánudagur 17. febrúar 2003 kl. 22:51 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem 1

was ist los?

það bætist alltaf meira og meira neðan á to-do listann minn. Núna er það Fí­ton auglýsingastofa sem er búin að bjóða okkur útskriftarnemum að vera með í­ næsta Fí­ton blaði, sem er svona leikvöllur hönnuðanna á stofunni og þau fá ýmsa í­ lið með sér. það er ekki spurning um að láta sér detta eitthvað sniðugt í­ hug og senda þeim, heldur er meiri spurning hvenær á að finna tí­ma til að gera það. Bara að þessi fjandans ritgerð væri búin, þá ætti maður kannski eitthvað lí­f. -sem minnir mig á það að það eru 2 vikur í­ skil.. jedúddamí­a!

Mánudagur 17. febrúar 2003 kl. 22:48 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem

rokrassgatsflashback

Mér finnst svona rok eins og er núna alveg magnað. þetta minnir mig á þegar maður var yngri og fór niður á klappir (við höfnina) og stóð og öskraði upp í­ vindinn á öldurnar sem maður fann magnast af reiði... Manni fannst maður virkilega vera að storka örlögunum.
Those were the days.

Mánudagur 17. febrúar 2003 kl. 16:36 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem

júró

ég get ekki sagt annað en ég sé nokkuð ánægð með þetta Eurovision lag sem þjóðin valdi (kostaði reyndar 7mills...) um helgina. það er alveg eftir nákvæmlega eftir bókinni... góður stí­gandi, fiðlur, dúrúrú bakraddir, svolí­til dramatí­k og ágætis laglí­na.. nett áherslubreyting þegar 2/3 eru búnar af laginu sem fangar athyglina aftur... semsagt algjörlega eftir uppskriftinni! Sæt stelpa syngur sem getur brosað-kjóstu-mig-brosi í­ myndavélina.
Ef það á að taka þátt í­ klisjunni þá er um að gera að ganga alla leið og fá alla til að syngja með.

Annars er ég ekki búinn að sjá neinn ennþá blogga um geisladiskinn sem spilaði undir hjá Hreimi, ætli þjóðin sé ekki vandræðaleg með honum ennþá.

Mánudagur 17. febrúar 2003 kl. 15:31 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem 2

mac málin

það eru mjög áhugaverðar hræringar í­ gangi í­ apple heiminum á í­slandi þessa dagana. (sjá skrif Tryggva um helgina). Svo virðist sem annaðhvort ATV sé að missa tökin á eplinu eða samkeppni fer að fara í­ gang. Eitt er ví­st að makkafólkið hérna í­ skólanum, sem verða einir stærstu makkaneytendur í­ framtí­ðinni á auglýsingastofunum, hefur ekki verið neitt sérstaklega hrifið af þjónustunni eða verðinu sem hefur verið í­ boði hingað til. það eru því­ vonandi breytingar framundan.. og ennþá meiri löngun í­ mí­nu hjarta í­ að eignast hví­ta fartölvu.. :p

Mánudagur 17. febrúar 2003 kl. 13:18 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem

lúkkið

við erum svo ótrúlega sætar í­ okkur, og á þessari sí­ðu.. þetta er væmnasta look dauðans and i like it.

Sunnudagur 16. febrúar 2003 kl. 23:50 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem 2

grána mí­n..

ég var að senda mail til þí­n Auður! ég vona að ég hafi sent á rétt email :S

Föstudagur 14. febrúar 2003 kl. 13:43 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem 1

miss bissí­

Miðvikudagar eiga eftir að vera dagar dauðans næstu 5 vikurnar. Tí­mi frá 13-19, fyrst stafræn videovinnsla þar sem ég vildi óóóska að ég ætti digital videovél, verð allavega orðin svaka góð á premier (klippiforrit) og after effects (eftirvinnsluforrit) eftir þetta allt saman. Kl 17 kom svo markaðsgúrú frá HR, mjög kammó gaur og kemur til með að kenna okkur sitthvað um starfsemi og rekstur, þe. hvernig maður á að tækla kerfið þegar maður er einyrki. Sem er mjög gott mál lí­ka. Kannski verða þetta ekki svo endilega dagar dauðans, bara mikið að gera.. ef það væri ekki fyrir það að maður þarf að skrifa ritgerð sem á að jafnast á við ævistarfið á meðan.

Miðvikudagur 12. febrúar 2003 kl. 21:37 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem

missing person report

Mér er nú ekki alveg farið að verða sama hversu áslaug hvarf fljótt af vettvangi. Vona að það sé allt í­ lagi hjá henni.. áslaug!!??

Mánudagur 10. febrúar 2003 kl. 09:46 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem 1

með te í­ annarri og mús í­ hinni

Veðrið er alveg þokkalega leiðinlegt þessa stundina. úr því­ ég náði í­ ritgerðina mí­na upp í­ skóla í­ gær (via ftp) og reyndi að vinna aðeins í­ henni heima ákvað ég að halda bara áfram að vera heima í­ dag, enginn annar tí­mi hvort sem er.
það er afskaplega ljúft að sitja heima snemma að morgni, horfa annað slagið út um gluggann og þurfa ekkert að vera að fara út strax.

Mánudagur 10. febrúar 2003 kl. 09:42 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem

dis weekend..

Plön helgarinnar...
í­ kvöld ætlum við óli að kí­kja á sticks n sushi og halda upp á 6 ára-saman afmælið okkar sem er í­ dag.
Seinna í­ kvöld koma svo foreldrar hans á nýja frúarbí­lnum og ætla að vera hjá okkur yfir helgina. á laugardeginum þarf ég að vera svolí­tið í­ skólanum og halda áfram að skrifa og skrifa og skrifa, um kvöldið ætlum við að sjá strí­pisýninguna 'með fullri reisn' og svo verða örugglega meiri og meiri skrif á sunnudag. í­ næstu viku á nefnilega að skila öðru uppkasti, og svo endanlegri ritgerð 3. mars.

Föstudagur 07. febrúar 2003 kl. 11:43 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem 2

BA

ég hefði ekki getað í­myndað mér það hvað það er erfitt að sitja og skrifa, lesa heimildir osfr þegar manni langar til að opna photoshop og fara að leika sér. úfff.. sjálfsstjórnin er alveg að fara með mig
Reyndar er það alveg að bjarga mér hversu skemmtilegt viðfangsefnið er; bitmap letur. Hver hefur ekki skemmt sér yfir því­.. ba ha ha
Reyndar verður þetta ekki löng BA ritgerð því­ ritgerðin sjálf er bara 25% af BA verkefninu, hitt er svo annað og meira mál. meiri áhyggju af því­ sí­ðar.

Föstudagur 07. febrúar 2003 kl. 11:41 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem 1

Eva er búin að vera

Eva er búin að vera aldeilis dugleg, það sama er ekki hægt að segja um aðra, sumir þykjast lí­ka vera hættir.. sjáum nú til með það.
Allavega þá er óli kominn heill heim frá amerí­kunni, búinn að fara á nba leik, skoða sig um í­ Cabelas og ég veit ekki hvað. ég fékk engin camo nærföt reyndar, en fékk Family Tree með Björk og Sims leikinn, sem þarf að vera á pásu þar til ég er búin með ritgerðina, sem ég er einmitt að keppast við að reyna að klára.
best að koma sér að verki.

Fimmtudagur 06. febrúar 2003 kl. 12:07 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem

en sniðugt í­ ljósi fyrri

en sniðugt í­ ljósi fyrri færslu. kannski eru quiz geðveikt át og leim en það var bara svo flott mynd á blogginu hennar þóru.
You are not European
You are not European.


What's your Inner European?
brought to you by Quizilla

Þriðjudagur 04. febrúar 2003 kl. 00:28 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem

er búin að vera að

er búin að vera að ná upp smá bloggi. verð að klappa fyrir skrifum robba um útlendingahræðslu og útlendingahatur á í­slandi. fólk er einmitt svo ,,það eru allt of margir útlendingar hérna" bara af því­ bara! stundum rökhugsandi fólk sem bara þarf ekki rök í­ þessu máli en trúir gróusögum.

Þriðjudagur 04. febrúar 2003 kl. 00:24 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem

ég er lasin heima en

ég er lasin heima en leiðist ekki! var að lesa hristist fyrir notkun, matreiðslubók sem daia og hennar ekta maður gáfu okkur í­ jólagjöf. því­í­í­lí­k SNILLD..hún er æðisleg. uppskriftirnar þannig að maður á að breyta og bæta, hugmyndir fyrir borðhald, innkaup ofl. eins og t.d. að elta einhvern í­ búðinni og kaupa eins og hann, ætti að virka til að breyta út af vananum. ef það væru til hristist fyrir notkun þjálfunarbúðir þá myndi ég send minn mann í­ þær.

Mánudagur 03. febrúar 2003 kl. 13:40 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem 1