það er þokkalega leiðinlegt veður
það er þokkalega leiðinlegt veður úti. Snjóbylur eiginlega, nema þessi litli snjór sem veit ekki hvort hann á að vera rigning eða haglél.
óli fór í gærdag til Minneapolis með Siffa vini sínum, það er víst aðeins betra veður þar þó það sé ekki mikið heitara en hér. Af því ég var nú ein í kotinu bauð ég krökkunum úr bekknum í smá kvöldnasl. Vonandi ná þau að vaða storminn vestur í bæ.
Flokkað sem
Sparisjóðurinn heima er kominn með
Sparisjóðurinn heima er kominn með nýjan vef, made by moi!
Flokkað sem
el magnifico
Flokkað sem
ég er komin með leið
ég er komin með leið á þessu lúkki og langar að skipta um lit. Hvaða litur er málið?
ég er viss um að
ég er viss um að langflestir hafa sett sér einhver markmið varðandi heilsu eftir áramótin, hvort sem það er að hreyfa sig meira, borða hollari mat eða bæði. ég er engin undantekning ;)
á fitday.com er hægt að skrá allt sem maður borðar yfir daginn og hvernig maður hreyfir sig en þar sem þessi vefur er á ensku er hann ekki alveg nógu nákvæmur, til dæmis er ekkert sem heitir skyr í gagnagrunninum þeirra en þó er hægt að setja inn mat eftir næringarupplýsingatöflunni sem fylgir matnum. Svo var ég að komast að því að það er til íslenskur vefur matarvefurinn.is sem er á vegum manneldisráðs og gerir nákvæmlega þetta sama. Reyndar vinnur hann bara úr orku og orkuþörf og sýnir ekki vítamín oþh eins og hinn vefurinn gerir en hann er með allar íslenskar vörur og íslenskar mælieiningar.
ég prófaði að setja inn það sem ég er búin að borða í dag eru það rúmlega 1900cal, en miðað við hvað ég hreyfi mig (lítið) þá á ég að borða 2250cal. þannig að það er smá svigrúm fyrir bjór í kvöld. Vúhú!
þetta er nú ekki svo hárnákvæmt samt, meira svona til gamans ;)
Flokkað sem
Núna er hálfleikur í landsleiknum
Núna er hálfleikur í landsleiknum ísland-Quatar og ég hef ekki ennþá séð kynþokkafyllsta mann landsins stíga inn á völlinn. þeir eru reyndar allir svo dead sexy að maður þekkir þá varla hvern frá öðrum. Nei segi bara svona.
En það er alltaf gaman þegar landsliðið er að vinna.
Flokkað sem
ef manni leiðist
ég var að uppgötva hvað er gaman að hanga á amazon eða amazon og rekja sig eftir því fólk sem keypti e-ð keypti líka. það er hægt að gera þetta endalaust en gallin er að maður fær allt of margar hugmyndir að dóti til að kaupa, og ansi mikið sem maður ætlaði alltaf að fá sér. amazon.com er betra þegar kemur að þessu, þ.e. það er meira af drasli troðið upp á mann.
Flokkað sem
íT
íslensku tónlistarverðlaunin voru veitt í kvöld. Mikið var ég ánægð með þau, að hljómsveitir eins og Ske, Leaves, Heru og Sigur Rós skyldu sópa til sín verðlaununum en ekki FM hnakkar. það er greinilega munur á því að vera vinsælastur meðal almennings og að vera bestur samkvæmt dómnefnd skipuðum fagaðilum.
En auðvitað er aldrei neinn sigurvegari í keppni sem snýst að mestu leyti um smekk, menn vita hver með sjálfum sér hver þeim finnst vera bestur.
Flokkað sem
ég tók mig til áðan
ég tók mig til áðan og sendi nokkrar myndir úr digital myndasafninu mínu í netframköllun í Hans Petersen. það er svona lítið forrit sem maður sækir og velur myndirnar með því og það kom nett á óvart hvað það var auðvelt. Eftir helgi býst ég við að fá nokkur skipti heim í pósti og þá geta aðal myndirnar úr safninu loksins farið inn í albúm fyrir ótæknivædda fjölskyldumeðlimi að skoða. sniðugt. :)
Flokkað sem
who's your daddy?
ég var að fá lykilorðið frá íslendingabókinni og við fyrstu sýn er þetta algjör sniiiilld! Reyndar dettur mér í hug að fleiri hafi fengið lykilorðið sitt í dag eftir vinnu því vefurinn er frekar hægvirkur, sennilega er databasinn að brenna yfir eða eithvað. Allavega, þá komst ég að því að árið 1822 fæddist náungi að nafni Jón þórðarson og ég og óli erum bæði komin af honum í föðurættina okkar eina 7 ættliði aftur. Ansi skondið.
Og langafi hennar ásu og langaamma mín voru systkyni, eins og mig grunaði.
Flokkað sem
fjör-
hvað er málið? ég er búin að vera með fjörfisk í hægra auganu á 10min fresti í ca viku! Fyrst var það pínu gaman bara en er orðið frekar pirrandi! ..sérstaklega þegar ég er að reyna að tala við fólk og það heldur að ég sé að blikka það á fullu ;)
Flokkað sem
ég bíð í ofvæni eftir
ég bíð í ofvæni eftir því að fá lykilorðið út íslendingabókinni, ætla að eyða vikunni í að bera saman ættir mínar við fræga íslendinga. Við ása erum nú þremenningar minnir mig og ég og áslaug sjömenningar, þessu komumst við að úti í London eitt sinn. ég hef mikla trú á því að þetta verði metsölubókin í ár.
Flokkað sem
yogakvöld
Við systurnar fórum í kvöld í jóga til hennar önnu Björns og það var alveg himneskt. ég get svarið að verkirnir sem ég var með í mjóbakinu eftir mikla setu undanfarna daga eru alveg að hverfa. óli fór í kvöld í menntaskólapartý! sex ár síðan þau útskrifuðust og enn getur þessi málabrautarbekkur haldið bekkjarpartý.. það er annað en þessi blessaði G bekkur sem ég tilheyrði einusinni.
Flokkað sem
áramótaheitin lifna við...
Nú á sko að fara að taka á því. í gær komu námslánin og þá var fjárfest í korti í húsunum. ég vona að ég verði dugleg að fara þó svo það sé ólíkt skemmtilegra að synda heldur en að skokka á bretti. Svo getur maður alltaf kíkt í Jóga í baðhúsið í hádeginu, það er bara í næsta húsi við skólann nánast. Annars var hún Anna bekkjarsystir mín að bjóða mér í jóga á morgun, kannski ég taki Baddý systur með.
það er ólíkt auðveldara að segjast ætla að vera duglegur og framkvæma það svo... það er það versta.
Flokkað sem
ég þakka mínu sæla fyrir
ég þakka mínu sæla fyrir að óli minn er ekki að fara til júessei með óla hennar dagnýjar. hann myndi missa sig í Cabelas og koma heim með Adventage Wetlands rúmföt. Spurnig hvað dagnýjar óli kemur með!!!
ég meinti sko að í
ég meinti sko að í blogg heiminum er ekkert að gerast.. en fólk virðist samt vera að vakna eftir jólafrí. það sem er mest spennandi þessa dagana sem og alla aðra daga er opnun nýs vefjar um hönnun, icelandic national team, sem á eftir að valda straumhvörfum í íslenskri hönnun.
Flokkað sem
júessei
óli var rétt í þessu að panta miða á leik Minnesota Timberwolves og Philadelphia 76ers í NBA. Hann og Sigfús fóru fyrr í dag og bókuðu jólapakkaferðina til Minnesota og ætla að fara í lok mánaðarins. Aðal ástæða ferðarinnar er heimsókn í risa búðina Cabelas sem selur bara veiðivörur á 60.000 fm. ég skil ekkert í þeim, Mall of America er við hliðina, strákar!
Flokkað sem
það er afskaplega lítið markvert
það er afskaplega lítið markvert að gerast þessa dagana. það sem er mest spennandi í blogg heiminum um þessar mundir er baðherbergið hans Tryggva og hvernig það púslast saman í beinni á netinu. ása eðal bloggari er með hugleiðingar um að feta í fótspor annarra eðal bloggara og fremja blogg-sjálfsmorð. ég hef enga trú á því að hún verði af því, eða kannski vil ég ekki trúa því.
það sem er að frétta af mér er að ég er að fara að hefjast handa við lokaverkefni -BA- í skólanum. það skiptist í tvo ólíka en þó áþekka hluta; ritgerð og sýningarverkefni. Ritgerðin á að skila í mars en lokasýningin er í maí. ég er nokkurn vegin búin að ákveða að skrifa um gagnvirka hönnun, sem er nokkuð vítt viðfangsefni og kemur inn á marga þætti, svo sem hönnun á viðmóti vefja, geisladiska, dvd osfr. Mér finnst þetta mjög spennandi viðfangsefni til að rannsaka í ritgerð en hef ekki nokkurn áhuga á að gera eitthvað margmiðlunarefni í lokaverkefni.
þannig að lífið er svolítið tricky þessa dagana.
Vorum að klára hið stórskemmtilega
Vorum að klára hið stórskemmtilega spil partý og co sem óli minn fjárfesti í í hagkaup fyrr í kvöld. Eva, þórdís og Sigfús hömsuðu okkur (næstumþví) þrátt fyrir að hafa þurft að leika 'loða', - ég og Villi komum í öðru sæti og í neðsta sæti voru þeir fóstbræður óli og óli, með tvær kökur. Mæli með þessu spili, mjög skemmtilegt.
á morgun ætlum við að fara á sérstaka landsbankasýningu á turnunum tveimur í smárabíó, það verður gaman að fylgjast með smáatriðunum í Gollum og reyna að botna aðeins betur í söguþræðinum.
Flokkað sem
jæja, þá er jólaskrautið komið
jæja, þá er jólaskrautið komið ofan í kassa og niður í geymslu mér til mikillar sorgmæðu. Mér finnst jólaseríur yndislegar (ekki þessar blikk heldur einlitar) en vil eiginlega ekki gera mér það að hafa þær hangandi uppi allt árið því þá verða þær ekki eins hátíðlegar þegar líður að næstu jólum.
Flokkað sem
lesefni dagsins
Er að lesa þessa grein Why redo a website? eftir Carole Guevin og hún er nokkuð góð. ég leyfi mér að vitna: Eye candy: A successful myth, eye candy is JUST for designers! Not true! A good interface captivates and entertains the users and sustains interest in exploring it! Eye candy is equivalent to having taste, class and self-control in creating an environment that facilitates communicating with the audience.
Flokkað sem
ég var að setja inn
ég var að setja inn myndir í albúmið af andlitsmyndum sem ég á í ljósmyndasafninu mínu góða. Af því þær eru svo mismunandi ákvað ég að gera þær svarthvítar, þær hafa allar ákveðinn sjarma þannig. Líttu á!
Flokkað sem
Verð að segja að þetta
Verð að segja að þetta eitt það sorglegasta sem ég hef séð. Að hugsa sér hvað umhverfið okkar er ömurlegt og lífið er mikil klisja þegar maður getur keypt sér svona fyrirtækjamerki á 2000 kall og það sem verra er; það virkar alveg í umhverfinu sem er í kringum okkur í dag.
Kvef er ógeðslegt. Sérstaklega þegar
Kvef er ógeðslegt. Sérstaklega þegar það kemur á dögum sem eiga að heita frídagar.
áður en ég fór norður fannst mér ég vera að ná mér í einhvern kverkaskít en sveitaloftið lagaði það fljótt. Núna hefur pestin semsagt beðið eftir mér og gómað mig á nýju ári. þetta er nú samt ekki svo alvarlegt og ég reyni að hrista þetta af mér, en það er bara svo fjári leiðinlegt meðan það stendur yfir
Flokkað sem
búin að sjá LOTR two
búin að sjá LOTR two towers! bara vá! er orðin ýkt tolkien nörd. samt ekki búin að lesa bækurnar og kemst því ábyggilega ekki inn í klúbbinn, en ætla að byrja strax á morgunn og fara svo á frumsýninguna á þriðju myndinni með álfa eyru (Y).
rakst á þetta próf hjá þóru. ekki nógu gott próf því ég er nefnilega skotin í legolas og aragorn, ekki alveg að virka sko!

Who is your Ideal Lord of the Rings (male) Mate?
brought to you by Quizilla
Flokkað sem
gleðilegt ár dúllurnar mínar
gleðilegt ár dúllurnar mínar og takk fyrir það gamla. ég hafði það ofsa fínt um jólin, það var mikið étið og drukkið eins og hjá flestum en ef til vill óvenju mikið drukkið. ég hef aldrei djammað svona mikið yfir jólin og aldrei farið svona mikið í sjallan, ég er mjög stollt. núna er sólahringurinn gjörsamlega öfugur og vinna á morgunn :)
Flokkað sem
Lagaði til í rassalistanum hjá
Lagaði til í rassalistanum hjá mér. Núna er ég búin að bæta Mása við og nöfnu minni í framsóknarflokknum sem ég var að vinna með eitt sinn hjá Landsvirkjun. Alltaf gaman að lesa skrifin hennar. Valdi kennari er líka kominn inn á listann. Nú er bara að bíða og sjá þegar fólkið lifnar aftur við.
Flokkað sem
Erum komin heim, ferðin suður
Erum komin heim, ferðin suður var ágæt. Núna er það hinn grái hversdagsleiki sem mun taka við. ómögulegt er reyndar að sofna núna fyrstu kvöldin eftir að hafa snúið sólarhringnum við síðustu daga.
Svo hef ég verið að spá í að reyna að skipta út heitinu á þessu bloggi, mér finnst bloggstelpurnar vera orðið nokkuð sillí.... þurfa blogg endilega að heita eitthvað annars?
GLEðILEGT NýTT áR! Gærdagurinn var
GLEðILEGT NýTT áR! Gærdagurinn var frábær. Borðuðum gæs heima á Hauganesi hjá mömmu og pabba og svo horfðum við á gríðarstóra brennu (stór miðað við áhorfendafjölda) frá veröndinni heima á besta stað með útsýni inn Eyjafjörðinn. Fórum svo til Dallas þar sem áramótapartýið var hjá tengdó. örugglega um 40 manns sem mættu í það og svaka stuð. Sofnuðum seint og síðar meir og vöknuðum óvenjulega spræk í morgun. þessa stundina erum við að reyna að koma jólagjöfunum í bílinn og leggjum svo af stað suður á bóginn á eftir.
ég kíkti aðeins á netið núna til að reyna að finna út hvenær skólinn byrjar aftur en ég fæ barasta engar upplýsingar um það. Reyndar sagt að myndlistardeildin eigi að mæta 6 jan, það er nokkuð líklegt að við eigum að mæta þá líka.
1