skemmtilegur óþarfi
óli átti að kaupa sér einhvern skemmtilegan óþarfa frá vinnunni sinni í jólagjöf. það var víst skipun frá yfirmanninum, og hvað er skemmtilegri óþarfi heldur en PS2? þannig að á þorláksmessu var fjárfest í einni græju og einn leikur keyptur með.
Við skruppum líka í bæinn í gær því við ætluðum að reyna að komast á LOTR-2 í kvöld. Svo fundum við LOTR-1 á dvd og þar sem ps2 er ágætis DVD spilari líka þá horfum við á fyrri myndina í gærkvöldi (ala Tryggvi og Ingimar). í kvöld á svo að kíkja á Turnana Tvo.
Flokkað sem
Jólafríið er afskaplega ljúft. óli
Jólafríið er afskaplega ljúft. óli kom norður í gær og við ætlum að renna í bæinn (Akureyri) á eftir. Kannski kíkjum við inn á bláu könnuna í kakó og chino. ætlum að rjúka, get ekki bloggað undir pressu.
Flokkað sem
slaaka..
nú er ég komin norður í afslöppunina, búin að skrifa á jólakortin (fara í póst á morgun), búin að baka eina smákökusort í viðbót (eggjahvítur+sykur+súkkulaðirúsínur+salthnetur=jumm), það er byrjað að snjóa og bíð bara eftir honum óla mínum sem vinnur myrkranna á milli. Hann kemur norður á sunnudaginn. á leiðinni norður heimsóttum við Ragga bróður okkar sem er hestatemjari í skagafirðinum ásamt Söndru kærustu sinni. þau eru í mjög fínu húsi og eiga mjööög sætan Collie blandaðan hvolp.
ég hef eiginlega trú á því að þessi jól eigi eftir að líða alltof hratt, við þurfum nefnilega að keyra aftur suður á nýársdag.
Flokkað sem
Gott að áslaug er búin
Gott að áslaug er búin að ná sér eftir viku dauðans, meira að segja komin með nýtt gestabókasístem sem maður verður að skrá nafnið sitt í við tækifæri.
Flokkað sem
það er afskaplega næs að
það er afskaplega næs að vera kominn í jólafrí. á morgun ætlum við systurnar að fara norður yfir heiðar og óli kemur svo daginn fyrir þorláksmessu. Mikið á ég eftir að sakna hans samt, þetta er næstum því vika.. hugsa sér!
Allavega, áður en við förum norður ætla ég að klára jólagjafa innkaupin og liggja "heima" í afslappelse. sjitt.... var reyndar að muna það núna að það er bara 56k modem í tölvunni heima... ónei!
vá hvað ég er þreytt
vá hvað ég er þreytt í hausnum og augunum og hálsinum, ég trúi ekki að ég sé að nálgast einhverja pest sem svo margir eru búnir að vera með í kringum mig. Hef reyndar enga trú á því að þórdís hafi smitað mig því hún er svo ljúf, gerir ekki svona lagað. Nei, ég held að þetta sé innkaupapest. ég fór nefnilega með litlu systur mína í búðarráp í dag. óli þurfti að vinna og Baddý hin systirin lá skelþunn í óræðu rúmi í óþekktum borgarhluta. Við systurnar gerðum reyndar alveg ágætis kaup. Hún meira en ég, en ég keypti mér samt einn bol, og nokkrar jólagjafir. Smáralindin er frábær í jólaösinni því maður finnur ekki fyrir fólksfjöldanum þar. Kringlan er morð og dauði. Við lögðum ekki í að finna stæði þar einusinni eftir að hafa keyrt í nokkra hringi og sjá einhverja hálfvita á jeppum nappa öllum stæðunum. það er merkilegt hvað maður getur látið það fara í taugarnar á sér
Flokkað sem
Umm.. Oddur! er hægt að
Umm.. Oddur! er hægt að sameina updeitið þitt með rassalistanum hans Bjarna eða hummm??
Flokkað sem
Brooke er ein af uppáhalds
Brooke er ein af uppáhalds stelpunum mínum í blogginu. Hún lúkkar alltaf svo svakalega vel (já ég veit ég er ódýr!) og allt virkar eitthvað svo vel hjá henni. jumm.
Flokkað sem
Núna eru litlu jólin hjá
Núna eru litlu jólin hjá bekknum mínum og svaka stuð hérna uppi á 4 hæð í stofunni okkar. Við erum búin að drekka fullt af bjór, spila fimbulfamb, pictionary og actionary og sumir hafa spilað MOHAA líka... hlusta á jólatónlist, borða smákökur, opna pakka (ég fékk sápukúlubyssu.. veii) og meira. á eftir verður sko partý niðri í stofu 105 og aldrei að vita nema það sé byrjað..... nóttin er ung.
P.s. stafsetningin hérna var held ég nokkuð góð miðað við alla þessa sopa...
Viti menn, Guffi er kominn
Viti menn, Guffi er kominn á bloggið. ég hélt um tíma að hann hefði sett Baddý systur í linkasafnið sitt.. fyrir ofan mig!!! en svo sá ég að þetta var einhver önnur Baddý.
Flokkað sem
er kannski tími til kominn að standa upp..
óli sem skrifar í kommentkerfið hennar ásu var að velta því fyrir sér hvernig hann gæti tekið upplýsingar úr tölvunni og fattaði seint og síðar meir að hann gæti skrifað það niður... þá datt mér í hug smá hugsun sem flaug um huga minn um daginn, ég var eitthvað að vinna uppi í skóla og var að aðstoða félaga minn sem var á annarri tölvu. Mér fannst síðan ekkert eðlilegra en ég gæti gert copy á texta á minni tölvu og farið svo yfir á hans tölvu og gert -paste
Svo er ég líka hætt að geta lesið yfir eðlilegan texta á blaði til að leita að stikkorðum, ég hef alltaf tilhneigingu til að vilja fara í ctrl-Find.
úff
Flokkað sem
Naglbítar á gauknum í kvöld..
Eins og þið getið væntanlega giskað á þá fór ég ekki á Gaukinn eins og ég var búin að segja við Villa í dag. óli Helgi er á leiðinni heim úr vinnunni núna, það er einhvert maraþon í gangi þarna, á að setja eitthvert kerfi upp fyrir áramótin eða whatever. ég er náttúrulega ekki manneskja í það að fara ein á tónleika með strætó, vonandi hafa tónleikarnir barasta gengið vel.. það eru víst aðrir tónleikar á morgun.
Flokkað sem
Veit ekki hvað það er,
Veit ekki hvað það er, það er bara eitthvað svo skemmtilegra að lesa verdana letrið.
Flokkað sem
Erfitt að verða arkitekt..
áslaug! ég sendi þér góða strauma! bsszzzz....
Flokkað sem
Már kom aðeins í heimssókn
Már kom aðeins í heimssókn í dag. ég vil varla kalla það að hann sé kennarinn okkar því þetta er svo stutt, ekki nema 5 tímar kannski í allt. En samt er náttúrulega hægt að læra margt á þeim tíma. Ein aðal spurningin sem hann lagði upp með var Hvað er hönnun og sumir vildu skilgreina það stórt og segja að allt sem við gerum sé hönnun, aðrir vilja halda því fram að hönnun sé einungis verk gerð fyrir fjöldaframleiðslu sem hafi bæði markmið og notagildi.
Inni á 105 (vefsíðu deildarinnar) er komið nokkuð gott safn af greinum um hönnun, aðallega viðmótshönnun (interface), gagnvirka hönnun (interactive), notendavæna hönnun (usability) oflr.
Núna þarf ég að fara að ákveða hvað ég á að gera sem BA verkefni og mig langar mjög mikið að taka einhvern svona pól og gegnumlýsa hann.. viðmótshönnun eða gagnvirka hönnun í ritgerðinni en mig langar hins vegar ekki endilega að gera skjáverk í verkefninu sjálfu sem verður sett upp á sýningu í vor, amk. ekki að öllu leyti. ég hef verið að horfa á þetta nám í Royal College of Art svolítið síðan í haust.
Svo var ég að pæla, það er nú ákveðin gagnvirkni í súkkulaðidagatalinu mínu, allavega er manni vel umbunað fyrir að gægjast inn fyrir lokið.
Flokkað sem
íslensk erfðagreining var að opna
íslensk erfðagreining var að opna nýjan vef í gær sem er sennilega gerður hjá íslensku vefstofunni. Hann er bæði einfaldur og smekklegur og það er gaman að sjá að fyrirtæki eru ennþá að hugsa um markaðsefni sitt þó svo hart sé í ári.
Að sama skapi eru fáir jafn glaðir og ég yfir öllum þessum ruslpósti sem drynur inn í póstkassann þessa dagana. Jafnvel þó ég hendi sumu efninu jafnóðum þá gleður það mitt litla hönnunarhjarta að sjá hvað það er mikið að gera hjá kollegum mínum. Bara að það verði svona í vor líka.
Flokkað sem
Naglbítarnir eru á Gauknum í
Naglbítarnir eru á Gauknum í kvöld, það væri nú gaman að kíkja og sjá fleiri MA inga á staðnum. ha?
Flokkað sem
Hvernig annars í ósköpunum á
Hvernig annars í ósköpunum á maður að teygja greinargerð sem er 700 orð yfir í að vera 1500 orð, þegar maður er búinn að segja allt sem segja þarf? það er óþolandi að þurfa að troða óþarfa inn á milli. bull er alltaf bull, hvernig sem á það er litið
Flokkað sem
ég er ennþá með aðra
ég er ennþá með aðra tilvitnun í hausnum síðan á hádegisfyrirlestrinum í gær. Hún er "verk eru aldrei kláruð, maður finnur bara áhugaverðan stað til að stoppa á" í bókinni sem ég minntist á í gær á þetta við mat og matargerð en þetta á eiginlega við um öll önnur listaverk líka. Vefi til dæmis.
Flokkað sem
jólafríið byrjar á föstudaginn, ég
jólafríið byrjar á föstudaginn, ég er að baksast við að klára eina litla greinargerð í myndlestri sem er svo til eina verkefnið sem ég þarf að gera fyrir þessi jól. Prófafrír skóli er dásemdin eina!
Guðbjörg Gissurar hönnuður var með fyrirlestur í skólanum núna í hádeginu um sköpunargleðina í eldhúsinu. Hún er nefnilega að gefa út alveg snilldar flotta bók sem heitir Hristist fyrir notkun og er ekki bara sniðug heldur líka alveg óendanlega svöl í útliti. Eitt gott quote af fyrirlestrinum: ímyndunarafl er mikilvægara en þekking. -Albert Einstein.
Flokkað sem
afrakstur dagsins: mömmukökudeig sem verður
afrakstur dagsins: mömmukökudeig sem verður flatt út á morgun, rice crispies nammigott í ísskápnum, ágætisferð í smáralindina þar sem við hlustuðum m.a. á Hunda í óskilum sem eru snillingar, og jólaserían er komin upp í stofunni! úje
Flokkað sem
óh neih! NATO-fundir eru frábærir,
óh neih!

NATO-fundir eru frábærir, því þá finnst þér þú ekki vera lítill og áhrifalaus lengur. Stundum finnst þér samt að hinir NATO-ráðherrarnir líti niður á þig vegna þess að ísland á engan her.
Mikið væri gaman að eiga her...
Taktu "Hvaða stríðsæsingamaður ert þú?" prófið
ása manaði mig í þetta!
Flokkað sem
Og í dag runnu þessar
Og í dag runnu þessar dásemdar gullamarmarasmákökur (bls 113 í kh) ég skil eiginlega ekki alveg hvaðan ég fæ þessa bökunarorku þessa dagana.
Flokkað sem
þingkonan okkar
Verð að taka undir með meðpjúsara mínum; Innilega til hamingju með 3 sætið Lára! þarna sannar sig hvað það er árangursríkt að eiga gott merki ;) það er alveg nauðsynlegt að fá smá pjús inn á þing!
Flokkað sem
ég ákvað að hætta snemma
ég ákvað að hætta snemma í skólanum í dag. Já, skólinn minn er þannig að maður ræður nokkurn vegin hvenær maður er að vinna, það er mórölsk skyldumæting á morgnana og svo vinnustofa í skólanum, eða annarsstaðar eftir það. þar sem ég er búin að vera svo dugleg (jammjamm) að ég er að verða búin með vefinn sem ég er að gera í vefkúrsinum þá ákvað ég að labba laugarveginn. ég kom við í Body Shop og verslaði mér vanillu body spray, ég meikaði ekki að bíða til jólanna ef einhver skyldi gefa mér það í jólagjöf því þetta er svo svakalega góð lykt. Fór svo inn í Skífu, Mál og menningu (ég gæti tjaldað á efri hæðinni), mögnuðu búðinni hans Magna sem ég sver að er örugglega anddyri að hinu íslenska skástræti (tilvitnun í Harry Potter, if you didn't know) og svo inn í Japis og fann þar Volumen, DVD myndbandadiskinn hennar Bjarkar sem er snilldin eina og er efst á óskalistanum hjá mér. Hann er nota bene ekki til í Skífunni.
þegar ég kom niður á Lækjartorg og var að bíða eftir strætó í góða veðrinu fannst mér ég allt í einu geta verið í útlöndum. það er ekki oft sem maður fær svoleiðis tilfinningu á íslandi en hún er alltaf jafn notaleg eitthvað. það eina sem mér fannst vanta var stór og voldug klukka, kannski framan á Stjórnarráðinu eða bara sem turn á torginu (ekki þessí cheap ljóti plast-auglýsingaturn). Klukka sem manni finnst geta staðið öll veður, segir manni hvað tímanum líður en er sjálfur tímalaus. Klukka sem maður treystir.
ég er viss um að ef Björn hefði orðið borgarstjóri þá hefði hann örugglega verið til í að gera svona evrópska klukku handa mér á Lækjartorgið okkur öllum til yndisauka, nema vinstri mönnum, þeir hefðu örugglega fussað yfir eyðsluseminni og heimtað plastturninn aftur.
p.s. ég hef samt ekkert á móti vinstri mönnum, þeir eru fínir, margir hverjir.
Flokkað sem
árás á bloggheiminn
Núna er kremlið algjörlega búið að missa það. Svanborg nokkur sem skrifar á vefinn þeirra hefur greinilega engan skilning né vit á bloggi og heldur greinilega að bloggið -sem eru "dagbókar"færslur fólks- eigi að vera afþreying fyrir áhorfandann í sama skilningi og sjónvarpsþættir eru ritstýrð afþreying (líka raunveruleikasjónvarp). Bloggarar eru ekki einsleitur hópur, eins og Svansson benti á og þeir eru upp til hópa heldur ekki að skrifa fyrir lesandann heldur fyrir sjálfan sig. það er náttúrulega mjög egósentrískt og er það ekki bara allt í lagi?
Mér finnst til dæmis mjög gaman að lesa það sem ása hefur upp á að bjóða á blogginu sínu en ég efast samt um að hún skrifi það fyrir lesendurna heldur meira fyrir sjálfa sig, eins og hún væri að skrifa í dagbókina sína En af því dagbókin er á netið þá er hún með því að gefa öllum öðrum leyfi til þess að lesa það og þess vegna er maður ekki að hnýsast í neitt, eins og Svanborg hélt fram í grein sinni.
Mér finnst allt í lagi að Svanborg hafi skoðun og segi hana en mér finnst þessi skrif bera vott um mikla vanþekkingu og vanvirðingu.
þetta er bara lýsandi dæmi um það hvað kremlverjar og aðrir vinstri menn hafa mikla óbeit á einstaklingsframtakinu.
það er viðtal við Davíð
það er viðtal við Davíð Odds í magasín í dag og er nokkurs konar drottningarviðtal eins og Spaugstofan gerði um daginn. Dabbi talar svo mikið um það hvað hann hafi gaman að því að skrifa að hann hlýtur eiginlega að vera með blogg einhversstaðar, kannski er hann þessi netfari sem vill ekki koma út úr skápnum?
Flokkað sem
núna er brjálað veður úti
núna er brjálað veður úti og tilvalið að taka strætó heim og taka myndir af aumingjans fólkinu í strætó.. vei vei
Annars er það fréttnæmt að óli Magg fór til JúESSEI á leik í NBA; washington wizards og new york nicks og skildi nafna sinn eftir heima. ég skil ekki alveg af hverju óli minn skellti sér ekki bara líka með, ferðin kostaði ekki nema 30 kall í heildina.
Flokkað sem
það er gaman þegar maður
það er gaman þegar maður geymir súkkulaðið í dagatalinu sínu þangað til um kvöldið. í dag var það fjögurrablaðasmári, hvað ætli það verði á morgun? úú
Flokkað sem
Fann þennan link hjá Ragga
Fann þennan link hjá Ragga .. ekki láta ykkur bregða en þið verðið að kíkja á þessar myndir!
Flokkað sem
óli og Eva buðu mér
óli og Eva buðu mér og óla Helga í mat á höfðingjasetrið sitt á Bústöðunum í gær sem var ákaflega vel þegið því við nenntum ekki að elda heima. Eftir matinn vúppuðum við þeim í Trivial sem var nú ekki fallega gert en svona er bara lífið! ég átti góðan sprett um stund, svaraði 5 réttum í röð, þar af tveimur kökureitum en svo kom óli Helgi upp kantinn með fullt hús og vann spilið. þvílíkur hasar!
Annars var ég að fatta að í dag eru bara 20 dagar til jóla og 14 dagar þar til ég fer norður þann 18. des. Núna er málið að ákveða hvað maður á að gefa fólkinu sínu í jólagjöf og versla það, allar uppástungur eru vel þegnar!
Flokkað sem
RE_INVIGORATE er besti teljari í
RE_INVIGORATE er besti teljari í heimi. þar get ég séð að það kemur einhver inn á þessa síðu á hálftíma fresti og flestir koma í gegnum rassalistann og næstflestir frá ásu dúllu. þetta er dásemdargræja enda keyrð á Java og er mér sagt að það sé dýrðin ein, hvað veit ég svosem.
Flokkað sem
vá hvað ég hef ekki
vá hvað ég hef ekki verið að nenna að blogga neitt síðustu daga. Fólk er örugglega farið að halda að ég eigi eitthvað annað líf heldur en hérna. það er hinn mesti misskilningur.
ég hef verið að reyna að stilla mig yfir því að borða ekki smákökurnar sem ég bakaði á sunnudaginn.. súkkulaðismákökur, jömmí góðar, auðvitað úr kökubók hagkaupa sem er og verður aðal jólasuppskriftabókin. Er að hugsa um að gera allavega tvær sortir í viðbót því þetta er svo sjúklega auðvelt eitthvað og hræðilega fitugt og gott á bragðið.
Annars horfðum við á nýjasta Southpark í gær, þar voru þeir að gera snilldargrín að gæja sem heitir John Edward sem er alveg meiriháttar slepjulegur miðill. Hann fékk alveg þokkalega útreið í þessum þætti, sem heitir "615 - The biggest douche in the universe"
Flokkað sem
ég nenni ekki að blogga
ég nenni ekki að blogga í dag, sorrí
1
