það er ekkert yndislegra en

það er ekkert yndislegra en að kí­kja í­ kringluna í­ hádeginu, máta pí­nu föt.. kaupa dót með góðri lykt í­ body shop og fá sér eitthvað nett að borða á stjörnutorginu. ég skrapp þangað áðan með Evu og Viggu einmitt á deginum sem maður á ekki að kaupa neitt.
Hvað á annars að gera um helgina?
Solla bekkjarsystir er að opna sýningu á Sólon með 2 vinkonum sí­num og ætli maður kí­ki ekki þangað. Annars eigum við eftir að rubba þessum stormjárnum á nýlökkuðu gluggana okkar þannig að vonandi fer einhver smá tí­mi í­ það.

Föstudagur 29. nóvember 2002 kl. 15:02 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem

og veii.. rassalistinn hennar ásu

og veii.. rassalistinn hennar ásu er lagaður! :D

Fimmtudagur 28. nóvember 2002 kl. 11:12 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem

af skólpi og öðru drykkjarvatni

ég er að vinna uppi á 4 hæð í­ skipholtinu í­ frekar gömlu húsi. Allavega það gömlu að vatnið úr krananum, þegar það er búið að fara um allar leiðslurnar og komið upp á 4 hæð, bragðast eins og sundlaugarvatn. það virðist vera í­ ágætis lagi niðri í­ kjallara, en maður er náttúrulega orðinn svo góðu vanur að maður lætur ekki bjóða sér það. þessvegna hef ég undanfarna daga komið með 2l flösku fulla af vesturbæjarvatni á morgnana. í­ gærmorgun mætti ég svo Hjálmari rektor úti á gangstétt og ég með fangið fullt af dóti og meðal annars þessa tveggja lí­tra kókflösku fulla af glærum vökva. ég veit ekki alveg hvort hann heldur að við séum að experimenta eitthvað hérna uppi eða hvort hann trúi því­ að maður beri gvendarbrunnsvatnið heimanaðfrásér og hingað.

Fimmtudagur 28. nóvember 2002 kl. 11:11 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem

ég er orðin jóla

engel12.gif
ég er orðin jóla kreisí­, er að pæla í­ að fara að skreyta. mig langar samt í­ allt jólaskrautið sem var í­ elle decoration blaðinu hennar dæju -nýjasta sko, það er æði. ég held að ég sé hætt að horfa á innlit útlit, þetta er ekki neitt innlit útlit þetta er bara plöggí­ plögg. verið að skoða heima hjá öllum sem eru að gefa út disk eða bók fyrir jólin sama hvað er ógeðslega leim inni hjá þeim. já það er bara ákveðið skí­tt með völu, skreyti skreyt :)

Þriðjudagur 26. nóvember 2002 kl. 23:19 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem

fékk þetta frá önnu pönnu,

fékk þetta frá önnu pönnu, gaman afessu!


Playwright Jim Sherman wrote this today after Hu
Jintao was named chief of the Communist Party in
China.
HU'S ON FIRST
By James Sherman
(We take you now to the Oval Office.)
George: Condi! Nice to see you. What's happening?
Condi: Sir, I have the report here about the new
leader of China.
George: Great. Lay it on me.
Condi: Hu is the new leader of China.
George: That's what I want to know.
Condi: That's what I'm telling you.
George: That's what I'm asking you. Who is the new
leader of China?
Condi: Yes.
George: I mean the fellow's name.
Condi: Hu.
George: The guy in China.
Condi: Hu.
George: The new leader of China.
Condi: Hu.
George: The Chinaman!
Condi: Hu is leading China.
George: Now whaddya' asking me for?
Condi: I'm telling you Hu is leading China.
George: Well, I'm asking you. Who is leading China?
Condi: That's the man's name.
George: That's who's name?
Condi: Yes.
George: Will you or will you not tell me the name of
the new leader of China?
Condi: Yes, sir.
George: Yassir? Yassir Arafat is in China? I thought
he was in the Middle East.
Condi: That's correct.
George: Then who is in China?
Condi: Yes, sir.
George: Yassir is in China?
Condi: No, sir.
George: Then who is?
Condi: Yes, sir.
George: Yassir?
Condi: No, sir.
George: Look, Condi. I need to know the name of the
new leader of China. Get me the Secretary General of
the U.N. on the phone.
Condi: Kofi?
George: No, thanks.
Condi: You want Kofi?
George: No.
Condi: You don't want Kofi.
George: No. But now that you mention it, I could use a
glass of milk. And then get me the U.N.
Condi: Yes, sir.
George: Not Yassir! The guy at the U.N.
Condi: Kofi?
George: Milk! Will you please make the call?
Condi: And call who?
George: Who is the guy at the U.N?
Condi: Hu is the guy in China.
George: Will you stay out of China?!
Condi: Yes, sir.
George: And stay out of the Middle East! Just get me
the guy at the U.N.
Condi: Kofi.
George: All right! With cream and two sugars. Now get
on the phone.
(Condi picks up the phone.)
Condi: Rice, here.
George: Rice? Good idea. And a couple of egg rolls,
too. Maybe we should send some to the guy in China.
And the Middle East. Can you get Chinese food in the
Middle East?

Þriðjudagur 26. nóvember 2002 kl. 22:47 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem

Ok, ég ætla að segja

Ok, ég ætla að segja ykkur hvað ég er biluð!
í­ dag var ég að taka saman öll layoutin/útlitin sem ég er búin að gera á þessu ári. þar sem ég er mjög skipulögð manneskja er layout safnið mitt flokkað eftir ártölum og í­ númeraröð. ég var búin að trassa það sí­ðan í­ febrúar minnir mig að taka saman þessi útlit og taka skjámynd þannig að ég ákvað að gera þetta núna svo það yrði ekki "overwhelming" verk einhverntí­man seinna.

Semsagt, sí­ðan 1999 er ég búin að gera 67 re-design á sí­ðuna mí­na, yfirleitt alltaf með sama efni. það þýðir ca 22 á ári sem gerir tæp 2 ný vefútlit í­ hverjum mánuði.. í­ 3 ár! þetta eru bara þau sem fóru út á vefinn, ekki þau sem enduðu bara sem skissur því­ ég sver að það er annað eins. Viljiði segja mér að þetta sé ekki bilun?

Þriðjudagur 26. nóvember 2002 kl. 22:34 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem

ég held að ástþór Magnússon

ég held að ástþór Magnússon sé búinn að horfa á einum of margar bí­ómyndir.

Þriðjudagur 26. nóvember 2002 kl. 21:01 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem

óli Helgi fékk sí­mtal frá

óli Helgi fékk sí­mtal frá skólanum sí­num í­ morgun. þar var honum tilkynnt að hann væri á svokölluðum „dean's list“ úr skólanum, hefði átt að vera þar sí­ðan hann útskrifaðist en fyrir mistök lenti hann ekki á honum fyrr en núna. þetta er náttúrulega algjör snilld þegar hann fer að sækja um skóla úti. Hann er ógurlega montinn núna og má alveg vera það, knús!


Núna er ég stödd í­ kennslustofu að læra vefhönnun. Mér finnst það frekar skondið. Við erum reyndar rétt byrjuð og það verður áhugavert að sjá hvernig þetta kemur út. Gunni Grí­ms er að kenna okkur og er að takast vel upp þannig að ég vona að það séu ágætis vefir hérna í­ uppsiglingu. á næstu vikum kemur svo Már og ætlar að lesa eitthvað yfir okkur.
það eru spennandi tí­mar framundan.

Þriðjudagur 26. nóvember 2002 kl. 10:51 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem 1

óli og Eva kí­ktu til

óli og Eva kí­ktu til okkur í­ kvöld í­ lummukaffi. Við hjúin hérna elduðum grjónagraut um daginn og komumst að því­ að einn 1dl af hrí­sgrjónum gerir ansi mikinn graut. það var því­ nóg eftir í­ lummur. Uppskrift að góðum eftirmat: Grautarlummur, vanilluí­s og bláberjasósugums.

Þriðjudagur 26. nóvember 2002 kl. 00:01 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem

Stóðst ekki mátið, ein serí­an

Stóðst ekki mátið, ein serí­an er komin upp í­ svefnherberginu. Reyndar er hún svo stutt að hún rétt svo nær þvert yfir gluggann. það gerir ekkert til, ég bjó til landslag úr henni, veit samt ekki hvort nágrannarnir fatti það, þeir sjá örugglega bara jólaserí­u sem "lekur niður"..

Mánudagur 25. nóvember 2002 kl. 23:55 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem

Ein flottasta búðin í­ bænum

Ein flottasta búðin í­ bænum er blómabúðin í­ vesturbænum, nánar tiltekið á Hagamelnum. ég skokkaði þangað áðan til að fjárfesta í­ gjöf því­ hann Tryggvi, fellow blogger og pjúsari ætlar að halda afmælis/innflutningsteiti í­ kvöld og verður þar örugglega margt um manninn og gaman að sjá allt tilstandið sem búið er að vera á þeim undanfarið.

Svo fór óli Helgi í­ bandý í­ dag og kom heim stórslasaður. það var ekki nema von, hann var búinn að raða inn mörkunum (að eigin sögn) og bandýklúbburinn Brútal gat ekki séð sér fært annað en að standa undir nafni og snúa upp á ökklann á honum! Sannasta sagan er reyndar sú að hann hafi misstigið sig en hin er miklu betri.

Laugardagur 23. nóvember 2002 kl. 18:54 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem

Jóla jóla

það er alveg virkilega ó-jólalegt úti núna... meira en 10 stiga hiti og allt græn/gult eitthvað. ég vona eiginlega pí­nu að það haldist svona en svo vonar maður lí­ka að það fari að sjóa, en kannski ekki fyrr en eftir miðjan des.
í­ dag skrapp ég niður í­ blómaval til að fá smá jólastemmara, þar var fullt af fólki í­ sama tilgangi og þarna var mjög mikill jóla-andi. Keypti jólaserí­ur á sportprí­s, ætla samt ekki að hengja þær upp fyrr en eftir mánaðarmót.. svo nágrannarnir haldi ekki að maður sé alveg kreisí­.
..
Horfðum sí­ðan á nýjan Friends, þátt 908 glóðheitan af netinu, sem var alveg ágætur lí­ka.

Laugardagur 23. nóvember 2002 kl. 16:46 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem

ég verð nú að segja

ég verð nú að segja að ég var ekkert svakalega ánægð með nýju harry potter myndina. það er farið svakalega fljótt yfir sögu töluverðu sleppt úr. það var jú meiri hasar og spenna en á kostnað sögunnar. svo var hún hræðilega leikin á köflum.

Laugardagur 23. nóvember 2002 kl. 15:49 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem

í­ kvöld kúrðum við í­

í­ kvöld kúrðum við í­ sófanum og horfðum á Harry Potter númer 1. þetta er reyndar í­ þriðja skipti sem ég sé þá mynd en í­ fyrsta skipti var ég ekki búin að lesa bókina og þetta var einhver léleg netútgáfa sem við sáum, í­ annað skipti var ég bara búin að lesa fyrstu bókina sem myndin fjallaði um, en núna er ég að verða búin með #4 þannig að maður sér þetta í­ svolí­tið öðruví­si ljósi.
ég hefði alveg verið til í­ að kí­kja á frumsýninguna á mynd #2 í­ kvöld því­ ég veit að óli og Eva lumuðu á miðum, en óli Helgi þurfti að vera heima og "taka vaktina", þ.e. vera í­ kallfæri úr vinnunni. Vinnan hans leigir nefnilega út gsm posa og ef eitthvað klikkar í­ kerfinu þá hleypur hann í­ skarðið. Við héldum nefnilega að af því­ það er búið að leyfa strí­pidans aftur þá yrði hann jafnvel kallaður í­ neyðarútkall á Maxims eða eitthvað! hahaha! Auk þess átti hann eftir að sjá mynd númer 1 þannig að úr varð ágætis kvöldstund.
þannig er nú það.

Laugardagur 23. nóvember 2002 kl. 00:19 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem

Sjitt, ég náði 260 stigum

Sjitt, ég náði 260 stigum í­ karl/kona prófinu.
Flestir karlar ná stigafjölda á bilinu 0 til 180 og flestar konur 150 til 300.
[...] Heilar sem eru kvenmiðaðir fá yfirleitt meira en 180 stig. þeim mun hærri sem talan er, þeim mun kvenmiðaðri er heilinn og þeim mun meiri lí­kur á að einstaklingurinn búi yfir afgerandi sköpunargáfu, listrænum hæfileikum og sé músí­kalskur. þessir aðilar munu oftar en ekki taka ákvarðanir sem byggjast á innsæi eða hvatví­si og eru leiknir við að skilgreina vandamál með lágmarksupplýsingar í­ höndunum.


æi, hvað hét þetta aftur, sem var eins og stjörnuspeki.. Barnum Effect!

(A Barnum Effect is when a person is provided with a general description, and they believe that it refers to them personally.)

Laugardagur 23. nóvember 2002 kl. 00:13 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem 4

Auður Auðdjúpga

hét hún það ekki annars? Allavega, Auður! þú færð tví­mælalaust dugnaðarbikar þessa árs! ég meina það, hjóla í­ Worldclass (af öllum stöðum!) klukkan hálf sjö að morgni?!
úff.
Annars er ég nokkuð ánægð yfir því­ hversu fljótt þið tókuð í­ kall mitt um meiri álit. Gaman að vita af því­ að fólk kemur hingað :D

Laugardagur 23. nóvember 2002 kl. 00:02 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem 1

Vá, ég held að ása

Vá, ég held að ása hafi alveg panikkað þegar ég var að breyta um stylesheet (stí­lsnið heitir það ví­st á í­sl.) og allt varð drungalegt um stund. Svo skipti ég vinstri hliðinni lí­ka í­ tvo dálka.. (finnst það eiginlega vera í­ eðli 'vinstri' að vera tví­skipt..) ówell..
En núna erum við sætar og verðum það áfram :)

Föstudagur 22. nóvember 2002 kl. 17:09 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem 2

það gefur aldrei neinn mér

það gefur aldrei neinn mér neitt komment :(

Föstudagur 22. nóvember 2002 kl. 17:01 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem 1

Vefhönnunar-hugleiðingar

Um daginn fór ég inn á vef Helga Hjörvars og tók þátt í­ getraun og í­ dag fékk ég frá honum bréf um það að enginn hafi unnið og hann sitji einn að vinningunum ;) Jafnframt tilkynnti hann um meira efni á sí­ðunni sinni þannig að ég fór að skoða nánar.
þarna komst ég að því­ sem ég vissi ekki að hann er með arfgengan augnsjúkdóm sem hefur gert hann næstum blindan. Mér fannst það nokkuð merkilegt að hann hafi þó náð þetta langt í­ pólití­k þrátt fyrir þessa fötlun. Hann lætur tölvuna lesa fyrir sig það sem hann þarf að lesa, það veitti athygli minni að vefnum hans en hann er ákaflega blindravænn og það er nokkuð sem margir vefhönnuðir klikka á.

› framhald...

Föstudagur 22. nóvember 2002 kl. 11:45 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem 2

Valdi! hvernig væri að plana

Valdi! hvernig væri að plana MA-party á einhverjum stað eitthvert kvöldið með góðum fyrirvara og fá sem flesta til að mæta. ég held að það gæti verið gott stuð.

Fimmtudagur 21. nóvember 2002 kl. 17:26 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem 2

Skrapp upp í­ Melabúð áðan,

Skrapp upp í­ Melabúð áðan, það eru skemmtilegar breytingar búnar að vera þar sí­ðustu vikur, eru búnir að stækka anddyrið og setja nýja sjálfvirka hurð. ég var viss um að þetta væri svona búð sem myndi aldrei breytast heldur vera alltaf svona gömlufólksbúð.
í­ Mela splæsti ég á mig Viking maltöli sem ég sver að er alveg eins og jólaöl með appelsí­ni. Sví­nvirkar allavega.

þetta er náttúrulega ekki eðlilegt. Maður er búinn að vera í­ jólastuði sí­ðan í­ byrjun nóvember og núna þegar við erum að verða búin að ganga frá gluggunum (vorum að sparsla og lakka rammann og sólbekkina) er hægt að fara að hengja upp jólaljós og svoleiðis. í­ fyrra um jólin vorum við nýflutt inn og fórum svo eiginlega strax norður að við skreyttum ekki neitt, settum ekki einusinni upp aðventu/gyðingaljós. Mig langar heldur ekki í­ venjulegt aðventuljós, held að ég fái mér bara einhvern ljósakrans í­ Ikea bara til að hafa eitthvað í­ eldhúsglugganum.

Fimmtudagur 21. nóvember 2002 kl. 17:17 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem 1

Rauða eldhúsið

ég fann afskaplega skemmtilega uppskriftasí­ðu; the red kitchen en það er svona "teamblog", hópur af fólki sem segir frá uppskriftum og eldhúsráðum og svo er allt vandlega flokkað þannig að það á ekki að vera neitt vandamál að finna hlutina á þessari sí­ðu. þarna er meira að segja uppskrift af kartöflusúpu sem er alveg þokkalega girnileg, hversu illa sem hún hljómar samt.
ég leyfi mér að vitna:
8 medium potatoes, peeled and cubed
Salt and pepper (to taste)
1.5 cups of milk
4 T. self-rising flour
1 stick of butter
Onion Powder (to taste)

Boil potatoes until falling apart. Drain and save 1.5 cups of potato juice. In separate pan melt butter and onion powder together. Stir in flour. Slowly add milk over medium-high heat. Gradually add potato juice and mix well until almost boiling. Be careful not to burn. Pour mixture over potatoes in large pot. Simmer for 20 minutes.

ég held að félagar mí­nir á eldhus.is þurfi alvarlega að vita af þessari!

Þriðjudagur 19. nóvember 2002 kl. 20:41 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem

í­ næstu viku í­ skólanum

í­ næstu viku í­ skólanum eigum við að búa til vef. ég hef búið til allnokkra vefi og hef því­ eiginlega ekkert efni í­ vef og nenni ekki að gera eitthvað bull, þannig að ef það er einhver þarna úti sem vantar vef, treystir mér til að gera útlit og getur sent mér efni fyrir næstu helgi þá yrði ég mjög glöð!
láttu það berast!

Þriðjudagur 19. nóvember 2002 kl. 16:40 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem 1

Fréttir af fleiri bloggurum... Baddý

Fréttir af fleiri bloggurum... Baddý systir "better known as Batgirl" er farin að láta ljós sitt skí­na, við ætlum að fiffa útlitið þegar smákökurnar eru í­ ofninum.

Þriðjudagur 19. nóvember 2002 kl. 16:14 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem

Við Eva ákváðum í­ morgun

Við Eva ákváðum í­ morgun að ná í­ nokkur jólalög af því­ við förum svo snemma í­ jólafrí­ hérna í­ skólanum (13. des, hvaða vit er í­ því­?) þannig að við þurfum að byrja snemma. ég fann Silent Night með Mahalia Jackson og það er jólalag eins og þau gerast best. þegar ég var lí­til var það alltaf spilað heima um jólin þannig að ég ætla að spara það og spila það ekki fyrr en á þorláksmessu í­ fyrsta lagi.
Besta jólalagið finnst mér hins vegar vera "So this is Christmas" með John Lennon.
Sama hvað Valdi segir, mér finnst það allt í­ fí­na að byrja að spila jólalög um miðjan nóvember þegar maður fer að koma sér í­ gí­rinn.

Þriðjudagur 19. nóvember 2002 kl. 14:30 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem

G urunum fjölgar ört í­

G urunum fjölgar ört í­ netheiminum, þóra er komin í­ hópinn. það er alltaf gaman að hlusta á tuðið í­ henni þóru, æskan kemur yfir mann aftur og það er eins og maður sé kominn aftur heim í­ stofu G11.

ég bætti henni auðvitað inn á kortið á ma98.net
Svo þurfum við að fara að setja eitthvað meira inn á þá sí­ðu, kannski spjallþráð eða teamblog.
Nei, kannski ekki teamblog, ertu með hugmyndir?

Þriðjudagur 19. nóvember 2002 kl. 14:21 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem

Ein af mí­num uppáhalds bloggsí­ðum

Ein af mí­num uppáhalds bloggsí­ðum er gestabókin hennar áslaugar. þar fær maður allar fréttir af fjölskyldunni hennar, vinum og vandamönnum og ég er viss um að ef ég myndi hitta þau í­ dag gæti ég alveg tekið þátt í­ samræðunum ;)

Annars er ég búin að fatta af hverju maður á svona erfitt þessa dagana, það er djúp lægð að nálgast og það er ekkert grí­n, það fer í­ skapið á manni og jafnvel hraustustu Nesbúum lí­ka

Mánudagur 18. nóvember 2002 kl. 23:28 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem

Afskaplega geta sumir dagar verið

Afskaplega geta sumir dagar verið leiðinlegir. Ekki það að eitthvað hræðilegt gerist heldur það að svo margt ómerkilegt gerist og ekkert sem manni finnst spennandi gerist eða fylli daginn að þeirri hugsun að þetta hafi nú verið skemmtilegur dagur.
þessi mánudagur var svo ómerkilegur að við gerðum ekki einusinni mánudagsmynd í­ skólanum sem er þó venja að starta á mánudagseftirmiðdegi.
Svo var Dabbi formaður í­ Kastljósi og fékk prinsessu spurningar sem hann gat auðvitað svarað með bros á vör og engar gagnrýni eða gagnspurningar heldur kepptust þáttastjórnendurnir við (sem mér lí­kar yfirleitt afskaplega vel við) að vera kurteisir og sætir til að styggja ekki stjórann, sem þó reytti af sér brandara til að reyna aðeins að skera á sleikjulega andrúmsloftið.
Svo af því­ það er gúrkutí­ð í­ fjölmiðlum reyna fréttastofurnar að búa til eins mikinn mat og þeir geta úr þessum hálftí­ma sem maðurinn sat þarna.
ég bara get ekki að því­ gert en að finnast þetta kjánalegt allt saman, kannski er það bara þessi grautfúli mánudagur sem talar í­ gegnum mig.

Annars fékk ég sí­mtal áðan frá Guffa, formanni Vöku og gömlum félaga úr MA. Hann var að forvitnast um það hvort ég ætlaði að kjósa um næstu helgi og ég sagði honum að ég ætlaði að gera það, þó það væri ekki nema bara fyrir það að koma ungu fólki inn. Annars finnst mér pólití­k vera frekar leiðinleg. Hún gerir það að verkum að maður þarf að vera ósammála fólki. Maður nennir því­ stundum ekki, sérstaklega ekki á mánudögum.

Mánudagur 18. nóvember 2002 kl. 23:20 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem

Núna fer að byrja undirbúningur

Núna fer að byrja undirbúningur fyrir lokaverkefni í­ skólanum. Reyndar ætlum við ekki að kalla það lokaverkefni því­ það er ekkert "loka" við það nema þá að það er sí­ðasta verkefnið í­ skólanum en langt frá því­ að vera sí­ðasta verkefnið okkar.
Allar tillögur að verkefni eru vel þegnar því­ ég er ekki búin að negla niður hvað ég ætla að gera, þó langar mig að skrifa um "gagnvirkni í­ hönnun" og gera eitthvað verkefni þar tengt, samt ekki vef, er búin að gera of mikið af þeim. Gagnvirkt strætóskýli er ég búin að heyra um og vona að það fari að koma..
það er svo erfitt að ákveða eitthvað svona!

Mánudagur 18. nóvember 2002 kl. 17:14 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem

ég sit uppi í­ skóla

ég sit uppi í­ skóla að skrifa greinargerð um letrið mitt, í­ flí­speysu og lopapeysu og er að drepast úr kulda. sem betur fer hef ég Noruh Jones að hlusta á. ég held að ég sé kannski að ná í­ einhverja flensu,
atsjú.

Sunnudagur 17. nóvember 2002 kl. 14:32 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem

Ef þið hafið ekkert að

Ef þið hafið ekkert að gera (eins og ég akkúrat núna) kí­kiði þá á ljósmyndir af eyðibýlum sem Nökkvi Elí­asson ljósmyndari hefur tekið og í­myndið ykkur hvernig þessi hús voru þegar þau voru full af mannlí­fi.

Fimmtudagur 14. nóvember 2002 kl. 17:07 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem

Lí­tið hefur skeð undanfarið. ég

Lí­tið hefur skeð undanfarið. ég minntist á að óli Moussajeff forseti hafi komið í­ skólann um daginn, hérna er ein mynd af því­.
Svo varð ég ástfangin af einu litlu forriti í­ dag, Adobe InDesign sem er umbrotsforrit. það er svo massa flott forrit að þegar maður ræsir það aftur eftir að það krassar (ég veit, massa flott forrit eiga ekki að krassa) þá spyr það hvort það vilji að það geri recovery á það sem maður var að vinna með sí­ðast, jafnvel þó maður hafi ekki seivað í­ 100 ár.
oh, yndislegt.

Fimmtudagur 14. nóvember 2002 kl. 16:54 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem

Vantar þig að vita hvað

Vantar þig að vita hvað klukkan er? SpurðuYugo Nakamura. Hann er geðveikur!

Miðvikudagur 13. nóvember 2002 kl. 15:41 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem

Fékk póst áðan varðandi lista/hönnunarverðlaunakeppnina

Fékk póst áðan varðandi lista/hönnunarverðlaunakeppnina Prix Möbius Nordica 2003 og var spurð hvort ég ætti eitthvað til að senda á þessa keppni, sem er "open for interactive culture-oriented productions, products or works that have been published or completed during year 2002" (nenni ekki að þýða) og eins mikið og ég hef áhuga á þessu efni þá bara held ég að ég eigi ekkert efni til að senda. ég áframsendi því­ skeytið á Ragga og Egil og vona að þeir gefi mér kannski pí­tsusneið þegar þeir eru búnir að vinna þessa keppni.
áramótaheitið er semsagt að vera duglegri að leika sér.

Þriðjudagur 12. nóvember 2002 kl. 22:33 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem

Viti menn, ef þetta er

Viti menn, ef þetta er ekki bara hún Auður Jónasar, G gella bekkjarsystir úr MA. Skelli á hana link við tækifæri.

Þriðjudagur 12. nóvember 2002 kl. 22:01 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem

ég hef alltaf verið mjög

ég hef alltaf verið mjög hrifin af þessum vef, blechsdottir.com, þetta er hönnuður hérna í­ Reykjaví­k sem vann hjá Zoom en er núna freelance. ég hef alltaf staðið í­ þeirri meiningu að þetta sé kvenmaður sem eigi þennan vef og hef þ.a.l fundist vefurinn alveg frábær, veit ekki af hverju það á að skipta máli, en núna þegar ég er búin að fatta að þetta er einhver gaur þá finnst mér þetta ekki alveg eins merkilegt, en samt auðvitað flott. svona er maður skrýtinn.

Þriðjudagur 12. nóvember 2002 kl. 21:46 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem

Oddur kom með massa gott

Oddur kom með massa gott orð yfir blogg... -> Blaður
húrra fyrir 2k

Þriðjudagur 12. nóvember 2002 kl. 21:29 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem

ég ákvað í­ morgun að

ég ákvað í­ morgun að ég hefði meira að gera heima hjá mér heldur en í­ skólanum þannig að ég lagðist aftur á koddann. Vaknaði svo aftur upp úr 11 sem þýðir að ég hefði alveg eins geta farið í­ skólann og komið heim upp úr hádegi, en nei. það jafnast ekkert á við það að sofa út á þriðjudegi. í­ dag hef ég semsagt sett í­ 2 vélar, þvegið upp, þurrkað pússrykið af gluggunum og ...náð í­ póstinn.. ..tekið kjöt úr frysti til að elda í­ kvöld... og bloggað tilgangslausu bloggi..

Þriðjudagur 12. nóvember 2002 kl. 16:55 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem

á morgun er áhugaverður hádegisverðarfundur

á morgun er áhugaverður hádegisverðarfundur á vegum SAU -Samtök Auglýsenda, sem ber yfirskriftina Hvernig á að búa til betri auglýsingar. Við ætlum nokkur úr bekknum að flykkjast á þennan fund því­ þarna eru margar merkilegar og mikilvægar spurningar og staðhæfingar lagðar fram, svo sem þær að einungis þriðjungur auglýsingaherferða hafi umtalsverð bein áhrif á sölu. sjokkerandi.

Þriðjudagur 12. nóvember 2002 kl. 14:50 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem

Potterinn og eftirhermur

Undanfarið hef ég sökkt mér niður í­ bækurnar um Harry Potter. ég fékk fyrstu bókina að láni hjá bróðursyni mí­num sí­ðla sumars og las hana á nokkrum dögum, þá næstu fékk ég hjá Evu og gleypti hana í­ mig sömuleiðis. þegar við fórum til Glasgow í­ haust fjárfesti ég í­ númer 3 og 4 í­ kilju á ensku, enda kostuðu þær ekki nema um 500 ISK hvor fyrir sig. í­ dag er ég að verða hálfnuð með fjórðu bókina sem er sú sí­ðasta í­ bili.
það sem mér finnst alveg jafn spennandi er hvernig þessi höfundur, JK Rowling hefur geta spunnið þetta upp úr sér, það eitt og sér er ævintýri út af fyrir sig. það er hægara sagt en gert í­ dag að koma upp með hugmynd eða hugmyndarheim sem gengur svona fullkomlega upp. það hlaut eiginlega að koma að því­ að einhver reyndi að taka smá bita af gróðanum, mbl segir frá galdrastelpunni Tönju Grotter.

það er sagt um tí­mann sem við lifum í­ dag að við séum að eiga við form og efni úr fortí­ðinni og með því­ að raða því­ saman upp á nýtt fáum við eitthvað ferskt, þess vegna er hægt að rekja alla hluti aftur til nokkurra frumþátta.
Höfundur bókarinnar Tanja Grotter skýlir sér á bak við "ritstuldinn" með þessari afsökun; að sagan hans sé skopstæling á Potter og sé þannig meðvitað skrifuð. ég er nú ekki mjög lögfróð manneskja en býst við því­ að Potter hafi nokkuð góða möguleika á að vinna mál gegn Grotter, hvað segir annars lojerinn í­ bekknum?

Þriðjudagur 12. nóvember 2002 kl. 13:57 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem

ég hreinlega Elska Baggalút.


ég hreinlega Elska Baggalút. þrí­fararnir núna þar eru hrein snilld.

Mánudagur 11. nóvember 2002 kl. 11:39 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem

hvassviðri satans

það kom yfir okkur dugnaður þessa helgi. Gluggarnir í­ í­búðinni okkar hafa verið frekar leiðinlegir sí­ðan við fluttum inn þannig að við ákváðum að pússa þá upp og þétta fyrir veturinn. það gekk mjög vel, Mundi bróðir sem er málari ætlar svo að koma seinna í­ vikunni og spasla í­ sprungur í­ gluggapóstunum. það versta var reyndar að það var svo geðveikislega hvasst í­ nótt og lélegar festingar á gluggunum að við sváfum ákaflega takmarkað í­ nótt.
það er vont en það venst, ég hugsa bara um fallegu nýju gluggakisturnar sem við komum til með að fá með þessum aðgerðum.

Mánudagur 11. nóvember 2002 kl. 11:37 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem

ég var að klára umbúðirnar

ég var að klára umbúðirnar utanum brauðið sem ég er að gera í­ umbúðakúrs í­ skólanum, svo verður yfirferð á morgun. Annars var ég að frétta það lí­ka að ólafur Ragnar forseti ætli að kí­kja í­ opinbera heimssókn í­ skólann á morgun,.. við verðum örugglega ekki búin að laga til og það er allt á hvolfi.. en það er allt í­ lagi.. í­ skapandi umhverfi á að vera allt í­ skipulögðu kaos. sammála?
Sagan segir að Dorrit komi ekki með, en ég veit ekki meira með það, hún hefði bara átt að koma á flóamarkaðinn í­ dag, hefði örugglega fundið eitthvað sér við hæfi.

Fimmtudagur 07. nóvember 2002 kl. 17:15 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem

það er alveg snilldar flóamarkaður

það er alveg snilldar flóamarkaður hérna í­ skólanum hjá stelpunum í­ fatahönnun. ég keypti skyrtu, húfu og bikini á 1800 samtals og það er sko nóg eftir. þetta er í­ "spúútnik" anda án "sautján" verðmiðans.. Markaðurinn er opinn til 4 þannig að það er sjens að mæta..

Fimmtudagur 07. nóvember 2002 kl. 13:01 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem

Svo er skylda að kjósa

Svo er skylda að kjósa Villa sjónvarpsmann ársins á Mbl! Hann hélt svo fí­nt partý um sí­ðustu helgi.

Þriðjudagur 05. nóvember 2002 kl. 09:41 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem

Við vöknuðum snemma í­ morgun,

Við vöknuðum snemma í­ morgun, skruppum í­ sund upp úr hálf átta og vorum svo til ein í­ lauginni, það var yndislegt. það er svo fyndið hvað það er helmingi skemmtilegra að fara í­ sund núna heldur en þegar maður þurfti að fara í­ skyldusund í­ skólanum, þá var maður samt ekki að borga fyrir sundferðina eins og núna.
ég horfði á snilldar heimildarmyndina um undirdjúpin í­ gær, og ég get ekki að því­ gert en ég sá fyrir mér alls konar sjávarskrí­msli í­ lauginni í­ morgun og fannst það bara fyndið.
Kannski á maður ekki að fara í­ sund svona snemma á morgnana.

Þriðjudagur 05. nóvember 2002 kl. 09:38 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem

þetta eru alveg frábærar fréttir

þetta eru alveg frábærar fréttir að mér finnst. Emiliana Torrini á lag í­ næstu Lord of the Rings mynd sem kemur um jólin. Snilld hjá stelpunni.

Mánudagur 04. nóvember 2002 kl. 10:26 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem

kvöldmaturinn

þessi kjúklingaréttur var í­ matinn í­ kvöld. Lilja mágkona eldaði hann einusinni og hann er alveg fáránlega góður þannig að ég setti hann inn á eldhúsið!
ég er bara alveg að springa ;)

Sunnudagur 03. nóvember 2002 kl. 20:35 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem

núna eru:

núna eru:

Sunnudagur 03. nóvember 2002 kl. 20:09 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem

í­ guuuvuðanna bænum ekki stuðla

í­ guuuvuðanna bænum ekki stuðla að því­ að sá vitfirringaþáttur Conan O'Brian byrji aftur. þá er Letterman skrattanum skárri. ég segi það og stend við það!

Laugardagur 02. nóvember 2002 kl. 21:27 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem

Við fórum út á Snæland

Við fórum út á Snæland í­ gær í­ þeim tilgangi að leigja ræmu. Klukkan var orðin hálf tí­u þannig að flest allar nýju myndirnar voru farnar, við ákváðum að taka "the Virgin Suicides" af því­ við erum bæði pí­nu hrifin af hljómsveitinni Air sem á flest öll lögin í­ myndinni. þrátt fyrir komment ljóshærðu stelpunnar í­ afgreiðslunni um að myndin væri "ógeðslega leiðinleg" ákváðum við að hætta á að eiga "leiðinlegt" föstudagskvöld.
En myndin var mjög góð. átakanleg og áhugaverð. Virgin Suicides diskurinn er búinn að hljóma í­ hátölurunum í­ dag og eftir að hafa séð myndina heyrir maður alveg nýja hlið á honum.
Mæli ekki með að taka mark á litlu stelpunum í­ Snæland video.

Laugardagur 02. nóvember 2002 kl. 17:42 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem

þetta eru alveg brilliant sögur

þetta eru alveg brilliant sögur af unga fólkinu í­ dag.

Föstudagur 01. nóvember 2002 kl. 18:11 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem