Nú um þessar mundir eru
Nú um þessar mundir eru liðin 5 ár síðan við fórum í MA útskriftarferðina okkar til Mexico. það var um svipað leyti og Díana prinsessa dó, því lítið var annað hægt að lesa á flugvöllum heimsins þá dagana en um ævi hennar og örlög. ástæða þess að ég er að fá þetta dejavú er sú að ég rakst á Dagbókarvef útskriftarfara MA 2002 en litlu börnin eru farin til Krítar. þetta fjandans veður úti fær hugann til að reika á suðlægari slóðir og myndirnar hans Tryggva færa manni margar minningarnar.
Sunnudagur 01. september 2002 kl. 14:06
Flokkað sem
Flokkað sem



RSS veita