Pabbi minn á afmæli í­

Pabbi minn á afmæli í­ dag. Til hamingju Pabbi!

Miðvikudagur 25. september 2002 kl. 10:20 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem

Mér finnst gaman þegar fyrirtæki

Mér finnst gaman þegar fyrirtæki á mí­nu áhugasviði (hönnun-grafí­k-forritun-tækni-nameit..) gera meira á vefnum sí­num heldur en að fjalla bara um sjálfan sig og það sem það hefur gert. Mér finnst það sýna að fólkið hefur áhuga á vinnunni sinni og er tilbúið til að sökkva sér ofan í­ þetta áhugamál þó svo það sé ekki endilega verðmætaskapandi eða salt í­ grautinn.
Til dæmis er í­slenska vefstofan að fara af stað með greinaskrif, núna fyrst um vefsí­ður þingmanna. það er bara vonandi að þeir falli ekki í­ þá gryfju sem þeir predika að maður eigi ekki að falla í­; að uppfæra ekki.
Svo finnst mér málpí­pa í­slensku auglýsingastofunnar nokkuð skemmtileg lí­ka, enda er nokkuð langt sí­ðan hún byrjaði og því­ komin með nokkuð gott safn. Hins vegar finnst mér nú að vefurinn mætti alveg fá nýtt og ferskara yfirbragð, þetta "iframe" (þegar 'skrollbarinn' skrollar bara litlum hluta sí­ðunnar) er ekki beinlí­nis hugsað fyrir mikið textamagn en gott framtak samt sem áður.

Miðvikudagur 25. september 2002 kl. 09:42 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem

jæja, þá er það official..

jæja, þá er það official.. við erum á leiðinni í­ helgarreisu eftir 2 vikur til Glascow. ó man ég hlakka til, svo langt sí­ðan maður hefur farið til útlanda. Sí­ðast var það Amsterdam.

Þriðjudagur 24. september 2002 kl. 15:19 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem

það er rólegt að gera

það er rólegt að gera í­ vinnunni þannig að ég blaðra út í­ eitt. Er að bí­ða eftir að Silfur Egils byrji aftur, eftir sirka klukkutí­ma. Mér fannst yfirleitt mjög gaman að þeim þáttum, mismunandi gaman eftir umræðuefninu reyndar en í­ flestum tilfellum mjög fróðlegt. það verður því­ gaman að sjá og heyra hvort nokkuð hafi breyst.

Sunnudagur 22. september 2002 kl. 11:28 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem

ég ætla að elda lasagna

ég ætla að elda lasagna í­ kvöld til að eiga í­ nesti í­ skólann á morgun. Búin að segja Sóma og Júmbó strí­ð á hendur. -bara svo þið vitið það!

Sunnudagur 22. september 2002 kl. 11:20 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem

Við tókum ekki þátt í­

Við tókum ekki þátt í­ KR gleðinni í­ gær þó svo hverfið okkar hafi verið undirlagt í­ karnival stemmningu í­ eftirmiðdaginn í­ gær. Við óli fórum í­ sund seinnipartinn til að reyna að koma aftur á smá 800metra skipulagi eins og það var í­ sumar.. áður fór maður ekki ofaní­ fyrir minna en 500 metra en núna er eins og maður sé rétt að skrí­ða það. Fórum samt 750 í­ gær, það tók pí­nu á en var alveg ótrúlega notalegt á eftir.
Er í­ vinnunni núna. það er ekki von á mörgum KR ingum í­ dag.

í­ gærkvöldi fórum við hins vegar í­ innflutningspartý til DeCode systranna, Gunnu og Freyju. þær keyptu í­búð í­ hlí­ðunum fyrr í­ sumar og eru búnar að fiffa hana til þannig að hún er orðin svaka sæt. í­ partí­inu voru fullt af decode útlendingum þannig að þetta var mjög skemmtilega international teiti.
-gamanaðessu!

Sunnudagur 22. september 2002 kl. 10:59 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem

Verð að vinna alla helgina.

Verð að vinna alla helgina. það er minna en að segja það því­ þetta eru ekki nema 4-5 tí­mar á dag og ég er ekki nema 5 mí­n að labba í­ vinnuna þannig að ég ætti í­ raun að prí­sa mig sæla með það. Fyndið samt á laugardagsmorgnum þá koma konurnar í­ hverfinu -KR konurnar- í­ tí­ma, púla í­ 50 min með lóð og palla og sitja svo og þamba kaffi og kjafta í­ hálftí­ma á eftir. Við erum að tala um að maður hellir upp á 9 lí­tra fyrir liðið. það er ástæða fyrir því­ að ég drekk ekki kaffi.
ó, gleymdi að segja að það eru komnar upplýsingar um mig á þrekhúsvefinn.. Drigo á auðvitað að vera Origo ;)

Laugardagur 21. september 2002 kl. 11:50 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem

ó minn guð hvað það

ó minn guð hvað það er langt sí­ðan ég hef bloggað af alvöru. ég er náttúrulega búin að vera upptekin því­ önnur útskýring er ekki til í­ heiminum. Skólinn er byrjaður á fullu og fyrsta verkefnið búið, það var smá mini rannsókn á leturhöfundi að eigin vali og ég valdi Adrian Frutiger sem bjó meðal annars til Univers letrið og letrið Frutiger sem var búið til fyrir Charles de Gaulle flugvöllinn í­ Parí­s árið 1968. Ef þið viljið þá er verkefnið að finna hérna, því­ ég nennti ómögulega að baksast í­ einhverju powerpointdrasli eins og restin af bekknum. það sem er framundan er að taka letrið "Frutiger" og búa til nýtt letur út frá því­ með sí­n eigin séreinkenni. jummí­.

Svo er ég í­ öðrum áhugaverðum kúrs, Myndasögur, sem úlfhildur Dagsdóttir kennir. Hún er mjög skemmtileg og fróð. þar lærum við hvernig á að lesa myndasögur því­ það er ekki jafn einfalt og margir halda og um daginn sagði hún meiraðsegja frá því­ að til er fólk sem getur hreinlega ekki lesið myndasögur nema textinn segi nákvæmlega frá því­ sem er að gerast á myndinni. sorglegt.

Mánudagur 16. september 2002 kl. 21:35 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem

í­ dag er liðið eitt

í­ dag er liðið eitt ár sí­ðan við óli Helgi gerðum tilboð í­ í­búðina sem við svo keyptum. áhugaverð frétt er á mbl um það að á árinu hefur raunverð fasteigna hækkað um 3.3%. Og við sem héldum að við hefðum keypt á toppnum en sí­ðan þá hefur í­búðin hækkað um rúmar 300.000kr
hmm..

Miðvikudagur 11. september 2002 kl. 10:57 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem

montblogg

ég er að rifna úr monti. Mynd eftir mig hefur ratað inn í­ bókina North by north sem er gefin út af Gestalten Verlag í­ þýskalandi og hefur að geyma allt það nýjasta sem er að gerast í­ grafí­skri hönnun í­ Skandinaví­u. Að launum fyrir að senda inn efni (var beðin um það í­ e-n tí­man í­ mars) fékk ég 3 bækur sem eru um 250bls að stærð. ég á bls 118.. alla!
þeir aðrir í­slendingar sem eiga efni eru t.d. Gunni bekkjarfélagi, Oscar, Goddur kennari minn, CAOZ fyrirtækið, ámi og þormar sem eru báðir í­ skólanum, Kata iðnhönnuður og kennari ásamt fleirum.

Mánudagur 09. september 2002 kl. 21:12 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem 2

Ein gæs féll fyrir byssukúlum

Ein gæs féll fyrir byssukúlum kærasta mí­ns í­ gær. Guð blessi minningu hennar.

Sunnudagur 08. september 2002 kl. 10:13 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem 1

núna er ég að fara

núna er ég að fara í­ innflutningspartý til ásu. Kí­kti inn á sí­ðuna hennar til að athuga hvort hún væri ekki örugglega búin að mála og svona..
óli Helgi fór í­ gæs með Siffa, óla Magg og Villa upp á heiði og í­ Borgarfjörðinn. ég var samt ekkert að taka til í­ frystinum því­ ég er eiginlega búin að missa alla von um að fá neitt í­ búið. þrátt fyrir það er óli Helgi búinn að kaupa sér bæði heiðagæsa og grágæsaflautu (ég veit ekki hvað nágrannarnir halda um okkur) og spólu (kasettu) frá 1984 um það hvernig á og hvernig á ekki að brúka svoleiðis tól. þetta er nefnilega örlí­tið flóknara en blokkflauturnar í­ gamla daga.
áhugavert.
En jæja, best að fara og byrja að taka sig til...

Laugardagur 07. september 2002 kl. 19:47 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem

ég er fangi markaðsafla póstmódernismans.

ég er fangi markaðsafla póstmódernismans.
Nokia 3210 sí­minn minn, sem annars er ágætur og virkar vel og var ~good looking~ fyrir ca. 2 árum, er núna orðinn úreldur í­ augum þeirra sem framleiða fronta á sí­mann. ég fæ hvergi nýtt look á gemsann minn, sem mér finnst vera 'krúsjal' atriði og er það atriði sem mest áhersla var lögð á í­ markaðssetningu nokia sí­manna. Sembeturfer lagði ég frontinn sem fylgdi með til hliðar á fyrsta degi þannig að nú er hann eins og splunkunýr. Eftir nokkra mánuði finn mig eiginlega nauðbeygða til að kaupa nýjan gemsa og þá horfi ég aðallega í­ áttina að þessum hérna: nokia 3650 sem er með innbyggðri myndavél. því­lí­kar unaðssemdir!

Laugardagur 07. september 2002 kl. 10:32 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem

RCA

ó, talandi aðeins meira um stóra-bretland þá benti Oddur mér á ansi athygliverðan vef um daginn.. Computer Related Design í­ Royal Collage of Art í­ London. ég held ég hafi aldrei slefað jafnmikið yfir einu námi eins og þessu... ekki sí­ðan í­ leikskóla held ég.

Föstudagur 06. september 2002 kl. 13:47 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem

skotland

Við óli erum að undirbúa ferð til Skotlands en við ætlum að heimsækja Lilju systur hans og fjölskyldu en þau eru flutt tí­mabundið þangað út. þau eru í­ Glasgow þar sem Lilja er að læra alþjóða markaðsfræði á meðan Svavar og Palli litli sjá um heimilið. Við vorum að spá í­ að fara helgina 27-29 sept en þann 30-asta er mikil heilmikil yfirferð hjá mér í­ skólanum þannig að sennilegast förum við ekki fyrr en í­ október. það gefur óla aðeins meiri tí­ma til að reikna út bestu golfvellina á svæðinu, en þeir munu vera nokkrir...

Föstudagur 06. september 2002 kl. 13:44 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem

ég ákvað að breyta útlitinu

ég ákvað að breyta útlitinu örlí­tið, þessi myglugrámi var ekki alveg að meikaþað. Svo vona ég lí­ka að með nýju lúkki fari Eva að skrifa eitthvað, hún er ví­st búin að liggja í­ flensu eins og ég. Lí­st ykkur ekki annars ágætlega á?
Svo tók ég lí­ka veðurstelpuna út. það er hvortsemer alltaf fjandans rok úti og ekkert skemmtilegt að minna mann sí­fellt á það.

Föstudagur 06. september 2002 kl. 12:37 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem

TIL HAMINGJU MEð AFMæLIð



TIL HAMINGJU MEð AFMæLIð í­ gær ELSKU áSA. ég mundi þetta auðvitað þegar ég fattaði hve gleðilegur afmælisdagurinn þinn var fyrir fimm árum.

Föstudagur 06. september 2002 kl. 11:17 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem

ArwenIf I were a character

Arwen

Arwen

If I were a character in The Lord of the Rings, I would be Arwen, Elf, the daughter of Elrond.

In the movie, I am played by Liv Tyler.

Who would you be?
Zovakware Lord of the Rings Test with Perseus Web Survey Software

Miðvikudagur 04. september 2002 kl. 14:47 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem

Nú um þessar mundir eru

Nú um þessar mundir eru liðin 5 ár sí­ðan við fórum í­ MA útskriftarferðina okkar til Mexico. það var um svipað leyti og Dí­ana prinsessa dó, því­ lí­tið var annað hægt að lesa á flugvöllum heimsins þá dagana en um ævi hennar og örlög. ástæða þess að ég er að fá þetta dejavú er sú að ég rakst á Dagbókarvef útskriftarfara MA 2002 en litlu börnin eru farin til Krí­tar. þetta fjandans veður úti fær hugann til að reika á suðlægari slóðir og myndirnar hans Tryggva færa manni margar minningarnar.

Sunnudagur 01. september 2002 kl. 14:06 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem