Hér kemur uppáhalds maturinn minn.
Hér kemur uppáhalds maturinn minn. þetta er vangefið gott eins og allt sem er með hvítlauk, engifer og chili. ég skora á alla að prófa.
Jarðhnetupasta með chilipipar engifer og hvítlauk
400 g tagliatelle eða spagetti
3 tsk engiferrót rifin
3 hvítlauksrif
1/2 msk ólífuolía
1 dl jarðhnetur
1 msk sojasósa
1 msk sykur
1 msk edik
1 tsk sesamolía
3 msk grænmetis eða kjúklingasoð
1 chilipipar
1 blaðlaukur
ferst kóríander (má sleppa)
Setjið engiferrót, hvítlauksrif, jarðhnetur, sojasósu, sykur, edik, sesamolíu og soð í matvinnsluvél og maukið í augnablik. Hitið ólífuolíu á pönnu. Fjarlægið kjarnan úr chilipiparnum og skerið hann í bita og blaðlauk í strimla. Mýkið í olíu í smá stund. Sjóðið pastað samkvæmt leiðbeiningum. Blandið heitu og nýsoðnu pasta saman við jarðhnetusósuna og hellið chilipipar og blaðlaukstrimlum yfir. Stráið fersku kóríander yfir. Berið fram með grófu brauði og salati.
heimild: Af bestu lyst
Flokkað sem
/ Álit
daia:
jömm jömm, átt'eikkvað með humri í?



RSS veita