lífið er yndislegt - semjið við ljósmæður!




Æji hvað lífið er eitthvað dásamlegt. Litli bumbubúinn kom í heiminn aðfararnótt sunnudags eins og lesendur síðunnar hans Danna hafa sennilega komist að. Núna er hann orðinn rúmlega 4 daga gamall og auðvitað finnst manni eins og hann hafi alltaf verið á svæðinu. Hann er einstaklega rólegur og þolinmóður, og duglegur að drekka sem sést á alveg einstaklega klípilegum bollukinnum. Bróðir hans er búinn að eldast og stækka allt í einu alveg óskaplega mikið og er afskaplega stoltur af þessu hlutverki.. vill helst fara að drífa hann með í sund og út að leika.


Það er ekki hægt annað en að njóta lífsins þessa dagana, ekki mikið annað sem kemst að. Ég verð samt sem áður að tjá mig eitthvað um ljósmæðraverkfallið því maður er eiginlega orðlaus yfir því að það sé ekki enn búið að semja!

Fimmtudagur 04. september 2008 kl. 16:02 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem: lífið sjálft (244 færslur) / 3

stay!

Ég er búin að díla við krakkann um að koma eftir viku. Í gær helltist yfir mig hálsbólga og hausverkur og kvef með tilheyrandi svefnleysi, og ég er ekki alveg að meika að fara að einbeita mér að því að anda með 'stíblað' nef. Ég er reyndar aðeins skárri í dag eftir heita baðið og öll teglösin en formið er ekkert sérstaklega gott samt sem áður. Ef til vill þurfti hann að fá smá búst í ónæmiskerfið sitt svona áður en hann heldur út í hinn stóra heim, en þá verður hann bara að hlýða og hreyfa sig ekki fyrr en ég er búin að hrista þetta úr mér.

Miðvikudagur 27. ágúst 2008 kl. 21:35 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem: lífið sjálft (244 færslur) / 4

Ísland er ofarlega í hugum margra...

...og hinir dönsku Wulffmorgenthaler láta ekki sitt eftir liggja:
striphandler.ashx.gif

Mánudagur 25. ágúst 2008 kl. 00:41 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem: netið (102 færslur) / 0

vöknuð til lífsins

Jæja, orðin tengd loksins og á góðri leið með að kljúfa mig í gegnum inboxið. Það voru smá byrjunarörðugleikar, fyrst hjá Vodafone sem voru ekkert að aftengja línuna og svo hjá TAL þar sem routerinn sem þeir sendu var vitlaust stilltur en komst í lag loksins á 10. degi.
En það var svosem allt í lagi, eiginlega bara fínt að vera netlaus í nokkrar vikur og ná að ganga frá dótinu í íbúðinni. Núna er eins og við séum búin að búa hérna í mörg ár, nema að margir skápar standa tómir... það er munur þegar maður flytur úr 86fm yfir í 170, aðeins meira pláss!


Veðrið er líka búið að vera dásamlegt, eins og Akureyringar hafa fundið fyrir alveg síðan við opnuðum gáminn okkar (það kom úr honum sko!). Óteljandi ferðir í Kjarnaskóg og sundlaugina, eins búin að fara í berjamó sem hefur skilið eftir sig bæði bláberjaostaköku og bláberjaskyrköku í frystinum. Dásamlegt.
Já, það er gott að vera á Akureyri. Við fundum það um daginn þegar við vorum í sundi, klukkan þá orðin 18 þegar Óli mundi eftir því að hann hafði skráð sig á rástíma í golfi kl 18:45. Við vorum komin uppúr kl. 18:20, þá áttum við eftir að græja kvöldmat og renndum niður á Nings. Vorum svo komin heim 10 min síðar með grjón og meððí og kallinn svo mættur á teig á réttum tíma. (Við búum ofarlega á Brekkunni en erum samt bara 4 min niður í bæ).


Þetta kallar maður hraða, það er nefnilega hinn mesti misskilningur að það sé einhver hraði í borg óttans því þetta hefði aldrei náðst þar á þessum tíma, hraðinn er allur úti á landi!
Þessa speki færði Mundi bróðir mér eitt sinn og hún er að sanna sig hvað eftir annað!


Nú er bara að bíða eftir bumbubúanum, eða eiginlega ekki bíða heldur njóta þess kannski að hafa tvær hendur nokkra daga í viðbót :) Samkvæmt sónar er hann væntanlegur í næstu viku - þó svo ég hefði viljað fá hann í dag því það er svo töff dagsetning (20 08 2008), en það er ekki mjög líklegt úr þessu.
En það er spurning hvað gerist í hádeginu á föstudag ef maður fer að horfa á handboltann.. ef þeir ætla að halda áfram að spila svona rosalega og hugsanlega fara að spila um gullið missi ég líklega vatnið í hádeginu á föstudaginn. Spennó!

Miðvikudagur 20. ágúst 2008 kl. 14:36 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem: lífið sjálft (244 færslur) / 3

netleysi

Langt liðið frá síðasta bloggi, enda er nettengingin ekki ennþá komin upp. Ég held að ég hafi aldrei á ævi minni verið netlaus svona lengi, en vonandi kemst það í lag strax eftir helgi. Ástæðan er sú að síminn sem var hérna fyrir var ekki aftengdur strax og það er búið að taka allan þennan tíma til að ná númerinu af línunni svo við getum tengt okkar inná. Kannski ekki forgangsatriði hjá Vodafone að aftengja fyrir okkur þar sem við ætlum ekki að vera í viðskiptum hjá þeim. Skítt með kerfið bara.


Allavega, kannski má þakka netleysinu það að allir kassar eru tómir, öll húsgögn samansett, gluggatjöldin komin upp og myndir á veggina, ég saumaði jafnvel utanum einn púða í gærkvöldi, þvílíkt afrek.


Í dag erum við svo stödd á Dalvík, þar sem fiskidagurinn mikli verður haldinn á morgun. Hann erum við að upplifa í fyrsta sinn og mér sýnist þetta eigi eftir að verða frekar skrautlegt, bærinn er að fyllast af húsbílum og jeppum með löngum skuldahölum.

Föstudagur 08. ágúst 2008 kl. 16:30 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem: lífið sjálft (244 færslur) / 0

flutningar, part 2

Það hlaut að koma að því að við yrðum óheppin í þessum flutningsferli. Gámurinn kom til landsins á þriðjudaginn í síðustu viku. Þegar gellan í tolladeildinni hjá skipafélaginu sá að við vorum með einn kassa af Carlsberg á tollaskýrslunni (er hægt að finna betri minjagrip frá Danmörku?) fékk hún flogakast eins og árið væri 1988 og hún hefði ekkert fengið nema bjórlíki... og sagði að við þyrfum að borga áfengisgjald, ca 2600kr (fyrir bjór sem kostaði 1600kr) nú þyrfti þetta að fara í skýrslu upp í toll og sendillinn kæmi á morgun til að sækja skýrsluna því guðminngóður ekki fer ríkisstofnun að nota eitthvað tæknilegt eins og tölvupóst eða þaðan af verra.
Við signuðum okkur bara hérna heima, fyrir að vera svona heiðarleg, því önnur dama sem við töluðum við seinna hjá skipafélaginu var aðeins léttari á því og sagði að "yfirleitt væri fólk ekkert að gefa þetta upp".
En já, svo kom miðvikudagur og tilheyrandi hringingar og eftirspurnir.. gámurinn okkar á hafnarbakkanum í borg óttans og "skýrslan" komin í bunkann hjá Dilbert og félögum á Tryggvagötu. Fimmtudagur, kom í ljós að gámurinn er kominn í "vöruskoðun", sé bara fyrir mér gúmmíhanskann á lofti með stórum smelli, og "sennilega gerist ekkert fyrr en eftir helgi".


Alltílæ, ég er bara komin 34+ vikur á leið, á ekki eftir nema; að skrúfa saman barnarúmið, skiptiborðið, þvo sængurföt, allan fatnað (og strauja nema hugsanlega gef ég það eftir þar sem þetta er barn #2) og taubleiur, viðra dýnur og sængur og kodda og þvo himnasæng og hlífðarkantinn.
Fyrir utan annað sem fylgir flutningum svona yfirleitt, svosem að sauma til og setja upp gardínur, raða í eldhúsið, þvo og raða í fataskápana og koma einhverskonar skipulagi á heimilið.
Einmitt, ekkert stress hr. tollur. Mig langar heldur ekkert til að komast í rúmið mitt!


En íbúðin okkar er annars æðisleg. Dásamleg. Mikið pláss og mjög snyrtileg. Við Danni vorum þar í gær í dágóða stund á meðan Óli fór í golf. Danni uppgötvaði garðslöngu í garðinum og þráir núna að fá að skrúfa frá og "fá að vökva blómin" en þar sem við vorum ekki með nein aukaföt gaf mamman sig ekkert. Í staðinn skoðaði hann nokkra kassa með gömlu baby-dóti sem voru í geymslu á Dalvík, og ég fór aðeins í gegnum barnafatakassana sem við skildum eftir og tók það minnsta uppúr sem að fer í þvott fljótlega. Við fengum nýja þvottavél frá tengdó þar sem þau eru með okkar og hún verður send heim þegar við verðum eitthvað í íbúðinni.
Bíllinn er kominn, tengdó voru fyrir austan um helgina og tóku hann með norður.
Núna áðan kom svo símhringing frá skipafélaginu og einhver gögn voru send í tollinn (til dæmis kassainnihaldslýsingin sem við gerðum, sem telur upp allt sem er í hverjum kassa fyrir sig sem og lausamuni, ekki nema 3 síður í excel) þannig að vonandi fara hjólin eitthvað að snúast núna.

En við erum samt búin að hafa það rosalega gott þessa fyrstu daga á Íslandi. Danni er búinn að vera á útopnu síðan við komum enda frábært að hafa svona marga í kringum sig og mikið um að vera, útisund og ömmu og afadekur á hverjum degi.
Það er bara vonandi að þetta blessist og dótið okkar komi allt og í heilu lagi einhverntíman áður en krakkinn ákveður að koma.

Mánudagur 21. júlí 2008 kl. 10:28 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem: danmörk (76 færslur) / heimilið (58 færslur) / lífið sjálft (244 færslur) / 8

lyklalaus

Í dag skiluðum við lyklunum að íbúðinni, værum á götunni ef ekki væri fyrir góða granna sem betur fer því það er búið að rigna ágætlega síðustu daga og gerir enn.
Óli framkvæmdi ein þau mestu þrekvirki við flutningana, þar sem hann bar nánast allt sjálfur niður, fékk reyndar hjálp eitt kvöldið hjá nágrönnum við þetta allra stærsta.
Við vonum bara að gámurinn komi í svipuðu ástandi og hann fór.

gamurinn.jpg


Ótrúlegt að þessum tíma í Danmörku sé lokið, ótrúlegt.

Fimmtudagur 10. júlí 2008 kl. 14:35 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem: danmörk (76 færslur) / 2