baddy
fleiri myndir..
já Helga mín, ég er loxins búin að setja inn myndir frá ferðinni okkar góðu á Snæfellsnesið 8-10.ágúst. En ég er ekki búin að setja neinar á flickr.. það verður gert við betra tækifæri;)
myndir....
já það er ekki seinna vænna en að setja inn nokkrar myndir frá útskriftinni. Ég er eitthvað svo voða löt við að setja inn myndir á myndasíðuna en þetta kemur smám saman. Næst ætla ég að setja inn myndir frá síðustu helgi þegar við fórum á Snæfellsnes.. en meira um það seinna.
allt og ekkert og eitt brúðkaup
jæja já þetta sumar líður jafn hratt og öll hin sumurin. Alltaf nóg að gera í vinnunni. Alveg ótrúlegt hversu margir eru með krabbamein einhversstaðar á hálsi eða í andliti, þá oftast í einhverjum kirtlum eða góm eða því um líkt.. ojbjakk. Einnig kemur fyrir að einhverjir fái cancer á milli tása og þá getur þurft að fjarlægja tásu og meira vesen getur fylgt því. Því mæli ég með því að þið kíkið öll á iljarnar á ykkur og á milli tásanna og skoðið hvort þið séuð með einhverja fæðingabletti þar sem vert er að láta fylgjast með reglulega. Getur verið lúmskt! Annars þá er þetta allt mjög lærdómsríkt og gefur manni nýja sýn á lífið - er eiginlega bara meira lífhrædd ef eitthvað er:s
Ég og karlinn ásamt familíu og fleiri gestum fórum í eitt af skemmtilegri brúðkaupum sem ég hef farið í um ævina. Mundi bróðir og Svanhildur giftu sig í Grundakirkju í Eyjafirði þann 19. júlí síðastliðinn. Þar var alveg hörku stuð. Veðrið betra en hægt var að óska sér, maturinn yndislegur og snilldar partý á eftir. Þetta var alveg stórskemmtilegt og yndisleg helgi, já þetta var sko ekkert bara einn dagur heldur heil helgi nánast. Öllu var tjaldað til - svona eiginlega bókstaflega hehe - en tjaldstæðið var fullt af tjöldum, fellihýsum, tjaldvögnum og húsbílum og þar sváfu flestir gestana um nóttina, eða allavegana eftir að fylleríssöngnum lauk um kl hálf 6 um morguninn - já ég held að brúðhjónin hafi staðið sig best þar:) Já og síðast en ekki síst þá greyp ég brúðarvöndinn... jújú dá kerlu:)
Annars er allt gott að frétta af okkur skötuhjúunum í litla herberginu okkar í Víðilundinum. Veðrið er búið að vera mjög gott í allt sumar en við höfum nú samt aðeins misst af því sökum vinnu og í síðustu viku þegar hitametin voru slegin þá var ég lasin heima með hálsbólgu, hor og örugglega hita - hjúkkan á sko ekki hitamæli!!! og gat því lítið sem ekkert sólað mig - hefði hvort eð er bara verið að vinna!! En við ætlum að bæta úr þessu öllu með því að fara í útilegu um næstu helgi. Ég var líka búin að lofa Helgunni minni útilegu og það er eins gott að ég standi við það þannig að við ætlum að draga hana með okkur í Hellishóla í Fljótshlíðinni og spáin lofar góðu enn sem komið er..jibbbí.. ég er farin að hlakka svo mikið til:)
ég vona að þið hafið það gott elskurnar.. ég kannski skelli inn einhverjum myndum við tækifæri, ég reyni að smella af annað slagið.....
adios!
einn eftirmiðdagur í júlí
ég og bóndinn tókum okkur frí eftir hádegi á fimmtudag og fórum í bíltúr í blíðviðrinu. Ferðinni var heitið að Skógarfossi og Seljalandsfossi. Veðrið var mun betra hjá Seljalandsfossi - einhver skýjasúld var við skógarfoss en það er víst ekkert svo óalgengt!
Síðan grilluðum við okkur hamborgara og pylsur á tjaldsvæðinu á Hvolsvelli og héldum síðan í kvöldhressingu til Grétu mágkonu og Jóhannesar en þau voru á Flúðum á ferðalagi. Hægt er að sjá nokkrar myndir úr ferðinni hér.
Kjaramál
Þar sem kjarabarátta okkar hjúkrunarfræðinga er í hámarki núna og yfirvinnubann á næsta leyti langaði mig að deila með ykkur hérna smá vangaveltum.
Ég var að skoða íbúðir á mbl.is og gera útreikninga þar og eins og mér reiknast þá er kostnaðurinn við  húsnæðisrekstur um 200þús á mánuði með öllu. Ég sem nýútskrifaður hjúkrunarfræðingur með 4 ára háskólanám, svo ég tali nú ekki um allt það nám sem ég var í áður í framhaldsskóla, þá eru grunnlaun mín 226þús fyrir skatt. Jú inn í þetta á eftir að reiknast vaktarálag þar sem ég verð á þrískiptum vöktum svona þegar líða tekur á sumarið, en á móti kemur að það á eftir að taka af mér í skatt.
Þetta sýnir mér að ég á ca 26þús krónur í afgang af laununum mínum, ef við gerum ráð fyrir að vaktarálagið fari í skattinn, og þá á eftir að borga þetta blessaða bensín og eitthvað verð ég að eiga í mig og á. Stundum skil ég ekki afhverju ég var að fara í þetta nám, og afhverju það er ekki betur metið í þjóðfélaginu. En vinnan er áhugaverð og sem er plús en það borgar ekki reikningana, hvað þá LÍN þegar það kemur!! Hvað á maður að gera??!!
Mér finnst skammarlegt að stjórnvöld skuli ekki gera meira í málunum, þau virðast hunsa algjörlega niðurstöður atkvæðagreiðslunnar um yfirvinnubann, hjúkrunarfræðingar eru greinilega ásáttir við sýn kjör og það sem þeim hefur verið boðið. Þetta er alveg óásættanlegt.
Ekki vildi ég verða lasin á næstunni og þurfa á heilbrigðisþjónustu að halda! Úfff
algjörar dúllur
Ég, Rebekka, Gunni og lubbulína kíktum í heimsókn til Gústa og fjölskyldu í morgun. Ég bara verð að deila með ykkur mynd af krúttunum.. svo sæt:)
Síbrosandi Gústason og Lubbulína Gunnarsdóttir
(P.s Rebekka eftir að hafa skoðað þessar örfáu myndir sem ég tók þá finnst mér mamma þín eiga nokkuð mikið í dúllunni þinni!)
JÆJA!!!
jæja það lengjast alltaf pásurnar mínar! hehe
Ég er búin að vera í góðu yfirlæti í borginni hjá honum Gunnari mínum og fjölskyldu hans. Við erum að verða búin að koma okkur ágætlega fyrir hérna og mér líst mjög vel á þetta allt saman.
Það hefur ýmislegt á daga mína drifið síðustu vikur - já ég tala í fleirtölu!!!
Eitt föstudagskvöld fyrir nokkru síðan bauð Gréta mágkona mér í kvennareið og Erla (skásystir Gunnars :)) kom með okkur og um 130 aðrar kvennsur úr reiðfélaginu Fákur sem staðsett er í Víðidalnum.
Ég á Geisla, voða ljúfur og góður fákur
jújú ég var ekki kona meðal hesta-kvenna nema vera með smá dreitil í hönd.
Að sjálfsögðu þurftum við að styðja okkar fólk í Eurovision og var því haldin smá gleði hérna í Víðilundinum. Fámennt en mjög svo góðmennt og alveg þrususkemmtilegt kvöld.
það var sko sungið og dansað...
hérna erum við Erla að taka lagið "hvar ertu nú" og létum sko gula hanskann ekki vanta, Jóhannes sá um að taka viðlagið.
En eftir dágott frí í borginni og starf í nýrri vinnu - bruna-/lýta og HNE (háls-, nef og eyru) deildinni, héldum við skötuhjúin norður á land í útskriftina mína. Jújú ég var að útskrifast sem hjúkrunarfræðingur:D
stórglæsilegar bekkjarsystur hér á ferð, ég veit ekki hvort kjóllinn minn sést en hann er sko sérsaumaður af mér og ástu:)
síðan kemur ein mynd af okkur nesó-gellunum
Um kvöldið var ég með grill fyrir systkyni og nána vini. Þetta var alveg ótrúlega skemmtilegt kvöld og ég vil þakka öllum kærlega fyrir mig:)
Nú tekur bara alvaran við, kvöldvakt í kvöld og vinna alla helgina:D
ein mynd hérna í lokinn af okkur skötuhjúunum.
hin langþráða stund runnin upp
Lokaritgerðin okkar var sótt í prentun í hádeginu í dag og við Andrea drifum okkur upp á barnadeild til Sísíar þar sem hún er í verknámi og við skrifuðum þar undir öll 7 eintökin. Síðan brunuðum við drean með allt heila klabbið upp í skóla og skiluðum til Láru skrifstofustjóra heilbrigðisdeildar. Það voru nú heldur blendnar tilfinningar þegar sú stund rann upp að við þyrftu að láta ritgerðirnar af hendi. Vorum heldur tregar til að slepptum að lokum takinu:)
Ótrúlegt að þessu sé að ljúka. Mér finnst svo stutt síðan ég var að byrja í þessu námi en samt eitthvað svo langt og ég trúi ekki að þetta sé búið og ég sé að fara að útskrifast! við eigum reyndar eftir að halda kynningu á niðurstöðum rannsóknarinnar í lokaritgerðinni og það verður föstudaginn 30.maí en það er ekkert til að stress sig yfir. Ég er bara ekki enn að trúa að þetta sé búið:)
nýjar myndir og fleira
Ég er búin að vera að leika mér svolítið með nikon D80 vélina mína (svona síðan ég fór að geta loftað henni eftir viðbeinsbrotið) og ég er svo ástfangin. Það er svo gaman að fikta - ég er nú reyndar ekki orðin nógu dugleg við það ennþá en þetta kemur smám saman. Ég var að setja nokkrar myndir inn á myndasafnið mitt svona ef ykkur langar að kíkja.
Annars þá er bara allt í rólegheitunum hérna. Líf mitt einkennist af bið þessa dagana, ég er alltaf að bíða eftir einhverju og er bara að dangla mér á daginn. Biðin eftir skilum skilum á heildaryfirlestri frá leiðbeinanda var á enda í dag. Þetta var ss síðasti lesturinn hjá leiðbeinanda fyrir lokaskil. Það voru nú mjög fáar athugasemdir þannig að við vorum ekki lengi að yfirfara þetta og nú erum við að bíða eftir að Björn sé búinn að lesa yfir málfræðina og þá er bara allt klárt í prentun. Við erum að vonast til að ná að henda þessu í prentun fyrir helgi og helst fá þetta tilbaka á föstudaginn rétt fyrir lokun því eins og svo oft áður þá ætlum við Andrea að skella okkur suður á sunnudaginn. Held að það sé að verða hefði hjá okkur að fara alltaf saman suður á vorinn þegar skólinn er búinn - skella togga í græjurnar og syngja með - klikkar aldrei.
Ég hef orðið mikið vör við frönsku herþoturnar hérna og mér stendur nú ekkert allt of mikið á sama. Þvílíki hávaðinn í þeim og ég get ekki sagt að ég upplifi verndartilfinningu af því að sjá þær þarna í loftinu. Mér verður reyndar bara hugsað til þeirra landa þar sem stríð ríkir og hversu hræðileg tilfinning það hlýtur að vera að heyra í svona vél og vita ekki hvort hún sé að koma með næstu sprengju eða ekki. Mér finnst þetta svo óhugnalegt. Mér verður illt við tilhugsunina um það hversu grimmur þessi heimur er og er oft mjög þakklát fyrir að hafa fæðst á Íslandi og eiga svona góða fjölskyldu og vini. En þessar herþotur sem eru á sveimi minna mann á að þrátt fyrir að við búum á afskekktri eyju út á ballarhafi þá erum við jafngott skotmark og hvert annað land!
fréttir!
Jæja það er nú langt síðan ég hef dritað niður orðum hérna. Kannski er mál til komið huhh! Við skvísurnar í lokaverkefnahópnum erum bara búnar að vera að dunda okkur í verkefninu.
Tókum okkur rúma viku í frí og ég kíkti suður til míns heittelskaða og við fórum í fataskápaleiðangur og festum kaup á einum fataskáp og einni kommóðu – ágætis kaup þar. Ég ætla síðan að flytja suður eftir lokaskil á ritgerðinni og vera hjá honum Gunnari mínum. Gréta mágkona og Jóhannes ætla að vera svo góð að skjóta yfir okkur skjólshúsi eitthvað fram á veturinn, jafnvel vorið – allt eftir því hvernig lánamálin fara í landinu.
Síðan fékk ég mér eitt stykki vinnu í sumar. Ég mun því verja sumrinu í 80% vinnu á bruna og lýtalækningadeildinni í Fossvoginum. Ég er voðalega spennt fyrir því. Og ef ég verð áfram spennt þá get ég fengið að vinna þar áfram.
Ég nýtti mér þjóðargjöfina í gær og keypti mér 3 bækur. Eina matjurtabók þannig að ég og Gréta getum spreytt okkur í matjurtaræktun, uppskriftarbók með kjúklingaréttum og bók um teygjur svo ég geti nú teygt á eftir garðvinnuna og kjúklingaátið.
Núna þurfum við bara að leggja lokahönd á ritgerðina. Hún er núna í yfirlestri hjá bæði kennaranum og Birni, fyrrverandi tengdapabba Hönnu sys, hann ætlar að fara yfir málfræðina fyrir okkur. Við gerum því ráð fyrir að skila henni á tilsettum tíma. Bara ljúft.
En ég ætla að skreppa eitthvert og reyna að gera eitthvað. Það er sól úti núna- um að gera að nýta sér það.
lítill frændi fæddur
Mig langar að óska ellý, alla og sigmari til hamingju með litla drenginn þeirra sem fæddist í nótt. 15merkur og 51cm. Stæðilegur drengur þar á ferð.
Kaldbaksmyndir
Jæja loksins lét ég verða að því að setja inn nokkrar af fáu myndunum sem ég tók í Kaldbaksferðinni góðu á föstudaginn langa (sorry sys hvað þetta tók langan tíma - tótally forgot skilurrru!)
Annars þá er allt gott að frétta af mér. Verkirnir eru loksins að minnka og hreyfifærnin í hendinni kemur smám saman. Ég er alltaf að reyna að þjálfa hendina til að fá styrkinn aftur í vöðvana og til að styrkja beinið en þetta kemur smám saman. Hendin er strax farin að rýrna pínu sökum notkunarleysis. Alveg ótrúlegt hvað þetta gerist hratt! Ég get notað suma vöðva en ekki alla. Ég get t.d ekki lyft hendinni beint upp - alveg fáranlegt sko og ég get ekki haldið á neinu þungu en ég get pumpað bicepinn og klætt mig í bol og jakka nánast alveg sjálf - ef fötin eru teygjanleg og víð.
Þrátt fyrir þessa óheppni að brotna þá finnst mér ég samt vera heppnasta manneskjan í öllum heiminum. Ég á nefnilega svo góðan og æðislegan kærasta. Hann stóð sig eins og hetja við að hjálpa mér eftir byltuna - fór fram með hverja ælufötuna á fætur annarri og skolaði fyrir mig (ég hélt ég væri með magapesti því þetta var svo oft en verkjalyfin voru víst sökudólgurinn), klóraði mér á stöðum sem ég náði ekki til, knúsaði mig þegar ég mér leið svo illa út af verkjum, hjálpaði mér að rísa úr rekkju og leggjast aftur (og það var svo ógeðslega vont) og svo margt margt fleira. Ég bara vissi ekki að svona strákar væru til og ég er svo skotin í honum! Síðan var hann líka svo sætur að gefa mér útskriftar/afmælisgjöfina fyrirfram (þökk sé falli krónunnar!) og nú á ég Nikon D80 myndavél og hún er svo falleg, nema ég hef ekkert getað prófað hana því ég lofta henni ekki ennþá með hægri!! en við ætlum sko að fara í ferðalög í sumar og taka þónokkrar myndir, ekki spurning.
já lífið er dásamlegt:)
svona fór sú ferð...
Jæja þá er föstudagurinn langi liðinn með sinni Kaldbaks-hefða-ferð. Eins og í fyrra þá var fjölmennt í troðarann og síðan haldið af stað upp. Sólin var aðeins farin að gæjast  út úr skýjunum um hádegisbilið en þegar upp var komið var skyggnið akkúrat ekkert. En við létum okkur hafa það og héldum niður á leið. Stiga-sleða liðið náttúrulega bara hvarf niður fjallið og sáum við þau ekki fyrr en á fyrsta stoppi, en ég, Hanna sys og Sandra dóluðum þetta á snjóþotunum og diskum og skemmtum okkur alveg konunglega við það... það var alla veganna mikið hlegið á leiðinni. Diskurinn sem ég var á var nú reyndar ekki alveg að gera sig þannig að ég og Hanna sys renndum okkur bara saman á einni snjóþotu með tilheyrandi byltum og hlátrasköllum. Mér fannst nú þessi ferð ganga hraðar fyrir sig en ferðin í fyrra en þetta er alltaf jafn gaman. Síðan biðu okkar þvílíku kræsingarnar hjá Siggu systir mömmu, það klikkar nú sjaldan á því heimilinu, ég get nánast sagt að ég hafi etið á mig gat þarna.
Hörðustu naglarnir í ferðinni ákváðu síðan að skella sér aftur í fjallið og fara í stígasleðakeppni. Þorsteinn Eyfjörð sá um að ferja liðið upp Grenivíkurfjallið síðan voru brekkurnar og gilin testuð. Ákveðinn aðili var búinn að mana mig svo upp í race niður síðasta spottann og hrúturinn í mér þarf sko ekki mikið til að láta kveikja í sér. Síðan var bara allt gefið í botn og brunað niður. Mér leist nú ekkert á blikuna þegar sleðinn var kominn á mígandi siglingu þannig að ég reyndi að stoppa mig og endaði á því að fljúga all svakalega fram fyrir mig og heyrði þegar small í hægra viðbeininu og þá vissi ég um leið að það var farið í sundur. Ég get ekki sagt að það hafi verið gott en samt ekki eins vont og það sem koma skyldi. Því miður var ég ekki eins verkjadeyfð og síðast þegar ég brotnaði. Þannig að þessi sleðaferð endaði á slysó eins og sjá má hér.
þessi er tekin beint framan á
tekin með 10°halla og ég fiffaði litinn smá
minni hringurinn sýnir ekki brot heldur venjuleg samskeyti en stærri hringurinn er utanum brotið.
Og við þessu eru bara fatli og verkjalyf – sem fara í hausinn minn = pínu sloj, og í magann = búin að kasta upp einu sinni!! Jú og ég er verkjaminni! síðan heyri ég stndun smella í beinunum þegar þau nuddast saman!
Annars þá held ég að ég eigi æðislegasta kærasta í öllum heiminum. Hann er svoleiðis búinn að dekra við mig allan tímann, ég var alveg klökk yfir því í gær hvað hann var góður við mig.
Ég hefði varla getað trúað því hvað það er vont að brotna á þessum stað, ótrúlegt hvað maður notar vöðvana þarna í kring mikið og hvað allar hreyfingar taka mikið í. Ég finn samt hvað það kemur sér vel að við Andrea erum búnar að vera mjög duglegar í ræktinni síðustu daga og fætur og magi mun sterkari fyrir vikið.
p.s þessi færsla var í boði vinstri handar þar sem sú hægri er í fatla!
Við viljum launahækkun!
já það er ekki bara á Íslandi þar sem hjúkrunarfræðingar eru ósáttir við launin sín. Hjúkrunarfræðistéttir á Norðurlöndunum eru líka mjög ósáttar með sína stöðu og stefnir allt í allsherjar verkfall á Norðurlöndunum, að undanskildum Finnum þar sem þeir náðu fram 28% launahækkun á næstu fjórum árum.
Grete Christensen, 1. varaformaður danska hjúkrunarfélagsins segir m.a:
"Laun hjúkrunarfræðinga hafa dregist svo verulega aftur úr að ef þau verða ekki leiðrétt nú stöndum við ekki bara uppi með vandamál hér heldur með Norrænt vandamál af stærðargráðu sem á sér enga sögulega samsvörun. Alls staðar og um allt of langan tíma hafa þessar kvennastéttir verið beittar of miklum þrýstingi".
Það er kominn tími til að sýna samstöðu! það er löngu kominn tími til að stjórnvöld vakni af sínum væra blundi og fara að taka ábyrgð á heilbrigðiskefinu og hætta að varpa henni yfir á starfsfólkið.
spurning um að hætta að drekka kók??
...eða bara allt gos?!