Hvað má borða

Mjólkurofnæmi
Mjög lítið magn af mjólkurprótínum getur gefið ofnæmiseinkenni hjá næmum einstaklingum. Jafnvel minnsta mjólkurmengun annarrar matvöru eða innandað mjólkurduft getur valdið alvarlegum einkennum.

Þegar brjóstamjólkur nýtur ekki við, er rétt að ráðleggja vatnsrofna þurrmjólk (Nutramigen) hjá barni innan við 12 mánaða aldur.(Hún er mjög bragðvond og það getur e.t.v þurft að setja vel af hrásykri saman við hana fyrst um sinn og minnka það síðan smám saman og hafa hana í heitara lagi).Einnig er hægt að nota soyja þurrmjólk frá SMA. Hún er ekki eins bragðvond en það eru ekki öll börn sem þola hana og hún getur valdið ofnæmi þá er nutramigen helsti kosturinn. Þegar börnin eldast er oft hægt að bæta upp mjólkurmissinn með prótínum og fitu úr annarri fæðu. Sum börn þurfa Nutramigen eða soja í nokkur ár.

Mjólkurprótín er í:
Öllum mjólkurvörum, sætabrauði, kexi, kökum, bökum, unninni matvöru, sælgæti, súkkulaði, mörgum tegundum af morgunkorni, smjöri og ostum. Muna bökunarsmjör inniheldur mjólk!

Innihaldsmerkingar sem benda til þess að mjólkurprótín sé í matvöru:
Butter, caramel flavor, casein, caseinate, cheese, cream, curds, lactalbumin, milk, "high protein flavor", lactose, "natural flavoring", rennet casein, shortening, solids, sour cream, whey og yogurt.
Í einstaka tilfellum er mjólk notuð til að mýkja mat og er þá e.t.v. merkt sem "emulsifier" eða "protein". "Vegetarian cheese" þýðir aðeins að ostahleypir, sem notaður var við framleiðsluna sé af jurtatoga. Jurtarjómi sem fæst í búðum inniheldur casein og því er ekki óhætt að nota hann.

Danskur Listi
animalsk fedtstof, animalsk protein, margarine, bagermargarine, inddampet mælk, kalcium kaseinat, kalium kaseinat, natrium kaseinat, lactalbumin, mælkebestanddele, mælkepulver/mælketorstof, ost, risbagemel, skummetmælkspulver, södmælkspulver, törmælk, valle, vallepulver/valleprotein.
---
Eggjaofnæmi
Ofnæmisvaldurinn er í eggjahvítunni. Það er hins vegar aldrei hægt að treysta á að eggjarauðan sé ómenguð. Það hafa skapast hættuleg tilvik þar sem eggjarauða var notuð í mat sjúklings með eggjaofnæmi.

Eggjaprótín er í:
Brauði, kökum, pasta, spagetti, majónesi, ís, sósum og unnum kjötvörum. Innihaldsmerkingar sem benda til þess að eggjaprótín sé í matvöru: Albumin, binder, coagulant, emulsifier, globuline, lecitin livetin, lyzozym, ovomucoid, ovovithellin, vitellin.

Ekki allt pasta/spagetti inniheldur egg skv innihaldslýsingu á pakkningum en sjálf er ég ekki mikið fyrir slíkt og hef því ekki kynnt mér þetta nákvæmlega. Oft er samt pasta bara búið til úr hveiti og þá er það í lagi.
---
Á einhverjum pakkningum stendur "may contain traces of" og þá ætti að vera í lagi fyrir þá sem eru með vægt ofnæmi að borða það. En ég hef ákveðið að láta allt slíkt í friði fyrir Ragnar Núma allavegana fram að næsta ofnæmistékki sem er á næsta ári og meta síðan stöðuna þá.
Fyrir þá sem þurfa að taka mjög hart á þessu getur verið gott að hafa efnisheitin með sér í búðina til að vera viss, eða bara kaupa íslenskt.
---
Matvörur
Þrátt fyrir að ég taki hér til ákveðnar vörur þá er mikilvægt að lesa samt alltaf á umbúðir ef innihaldið hefur breyst. Þetta er ekki eins mikið mál og virðist í upphafi en það getur þurft smá lagni og þetta verður auðveldara ef maður nennir að stússa smá í eldhúsinu. Mundið að óhætt er að borða almennan „kvöldmat“ sem maður útbýr sjálfur og gott að hafa vel af grænmeti með. Passa þarf samt upp á allar tilbúnar sósur og slíkt. Það sem mér finnst vera erfiðast er millibitinn en þá koma ávextirnir að góðum notum. Ég tók þessu sem tækifæri til að betrumbæta matarræðið mitt.
---
Ef þið hafið einhverjar upplýsingar handa okkur sem ykkur finnst eiga heima hérna þá megiði endilega senda okkur tölvupóst á reykjalin@gmail.com og við getum bætt þeim við.

Brauðmeti:
Flest allt samlokubrauð er í lagi, bæði mjólkur- og eggjalega séð, en þó er mjólkurduft í einhverjum brauðum og því mikilvægt að lesa á það ef maður er að kaupa nýja tegund. Sætabrauð inniheldur flest allt egg þannig að ég kýs að baka bara það sætabrauð sem við borðum hérna og það er ekki eins mikið mál og menn halda. Hægt er að fara í bakarí og spyrjast fyrir um hvað sé mjólkur- og eggjalaust. (þá frekar smærri bakarí, ekkert úrval í Bakarameistaranum).
Fyrir þá sem eru bara með mjólkurofnæmi þá er Myllan með margar vörur sem innihalda ekki mjólkurvörur og þau nota mikið smjörlíki í stað smjörs en það eru notuð egg í mörgu af sætabrauðinu frá þeim sem er ekki gott fyrir þá með eggjaofnæmi.
Hægt er að nálgast innihaldslýsingar á heimasíðu Myllunnar.
Hamborgarabrauðin og pylsubrauðin frá Myllunni eru bæði mjólkur- og eggjalaus.
Pana naan brauðið frá Pride Valley er í lagi og það fæst í Bónus (svartar umbúðir með grænum eða gulum stöfum).

Uppskriftaráð:
Bakstur þarf ekki að vera mikið mál ef maður veit hvað hægt er að nota í staðinn fyrir það sem ekki má. En það getur verið ágætt að finna sér líka uppskriftir sem innihalda ekki ofnæmisvakana.
Ég vel mér frekar uppskriftir sem innihalda engin eða fá egg og í staðinn er hægt að nota eplamauk eða banana og jafnvel bæta við smá lyftidufti. Einnig er til eggjalíki (No Egg -keypti í Hagkaup í bökunarvörudeildinni) sem hægt er að nota í staðinn fyrir egg, það gefur meiri lyftingu.
1 tsk. eplamauk = 1 egg
1 vel þroskaður banani = 1 egg
Í staðinn fyrir mjólkina er hægt að nota hrís-, soja-, eða möndlumjólk. Sjálfri finnst mér möndlumjólkin bragðbest. Ég kýs að auka ekki á sojavöruneysluna hérna og hrísmjólkin getur verið of þunn. Einnig er til hrisrjómi, hann er þykkur eins og súrmjólk en ég hef ekki prófað hann.
Í stað smjörs nota ég smjörlíki eða olíu.
Það er í lagi að nota Nóa Siríus suðusúkkulaði og flest kakómikil súkkulaði (56% og 70%) en ekki rjómasúkkulaði.

Kex:
Nánast allt kex inniheldur mjólkurvörur, sérstaklega ef það er súkkulaði í því. Hægt er að fá hrökkbrauð í Maður lifandi sem er í lagi (lesa á umbúðir). Korni flatbröd er í lagi og FinCrisp hrökkbrauð. Ég hef enn ekki rekist á neitt annað kex sem er í lagi (Pólókex inniheldur undanrennuduft).

Drykkir:
Þar sem ég er enn með Ragnar Núma á brjósti þá þarf ég líka að passa hvað ég drekk. Safar og allir drykkir nema mjólk, skyrdrykkir og aðrir drykkir sem innihalda mjólkurvörur. Ég drekk stundum möndlumjólk, finnst hún bragðbest og nota hana í bakstur en er lítið fyrir hrís- eða sojamjólk.

Ragnar Númi var bara á brjóstamjólk til rúmlega 11mánaða aldurs. Ég fór að gefa honum Soya þurrmjólk með mat og í grautinn nokkru áður svo hann myndi venjast henni en hann tekur henni ekkert sérlega vel - þ.e bragðlega séð, hún virðist alveg fara ágætlega í magann á honum og fær ekki útbrot. Hann var ekkert að nenna þessu brjóstastandi lengur og því var ákveðið að nota tækifærið og hætta bara meðan áhuginn var svona lítill og það hefur gengið vel. Ef soyaþurrmjólkin er ekki til þá hefur hann fengið venjulega soyjamjólk en sem er kalkbætt. Hann lætur sig hafa það að drekka hana en er ekkert mjög spenntur fyrir henni heldur. Hrísmjólkin er heldur næringarsnauð og inniheldur ekki eins mikið af góðum próteinum. En hana er einnig hægt að fá kalkbætta og það má alveg prófa að nota hana þegar hann verður aðeins eldri og sjá hvort honum líki hún betur.

Grænmeti og ávextir:
Allt grænmeti og ávextir eru í lagi og um að gera að nýta sér það á milli mála. Ef grænmeti er steikt á pönnu er mikilvægt að nota olíur en ekki smjör á pönnuna. Talað er um að ávextir sem eru með sterkan rauðan lit eins og tómatar, jarðaber og rauð paprika geti ert upp barnaexem.

Álegg:
Í mörgu áleggi er undanrennudufti eða öðru mjólkurdufti bætt í vöruna og stendur það oftast utan á umbúðunum. Margir framleiðendur nota kartöflumjöl í sínar kjötvörur og er það í lagi. Goðapylsur eru ekki með mjólkurvörum í en SS-pylsur innihalda undanrennuduft. Ali og Kjarnafæði er með mikið af mjólkurlausum áleggjum en mikilvægt er að lesa á umbúðirnar en það er samt margt til af áleggjum. Flest allt brauðsmjör inniheldur einhverja mjólkurvöru en hægt er að fá smjör frá Rapunzel sem er úr olíum, sjálfri finnst mér sólblómasmjörið gott.

Pakkamatur:
Mikið af pakkamat, eins og sósur, súpur og slíkt inniheldur mjólkurvörur af einhverju tagi og því kýs ég að sleppa því. Í staðinn bý ég bara til mínar eigin sósur og sleppi rjómanum/mjólkinni. Það er mjólkursykur í AROMATI og ostur í einhverjum kryddum frá Pottagöldrum t.d Töfrakryddinu og Kryddi lífsins
Jalfrezi indversk sósa frá Patakas er í lagi og Rogan Josh.

Nammi:
Nánast allt nammi inniheldur mjólkurvörur (ekki líklegt að það innihaldi egg!), það er einna helst hægt að finna hlaup, lakkrís og mola/brjóstsykur sem etv innihalda ekki mjólkurvörur, en ath að hlaup með hvítu á, þar gæti verið mjólkursykur. Nóa síríus suðusúkkulaði er í lagi því það inniheldur kókossmjör, dökkar Californíu súkkulaðirúsínur ættu að vera í lagi, en annars þá bara að búa sér til sitt eigið nammi! Hægt að að fá rándýrt nammi í heilsubúðum sem inniheldur ekki mjólkurvörur.

Ég hef búið mér til nammi sjálf. T.d gert rískökur og nota þá smjörlíki í stað smjörs. Það er líka hægt að setja ýmsar hnetur eða saxa niður þurrkaða ávexti og setja saman við til að fá tilbreytingu. Síðan er hægt að gera ýmiskonar konfekt til að eiga fyrir gesti og þá geta allir gætt sér á.

Snakk:
Ekki er óhætt að borða allt snakk, sérstaklega ekki sem er með sourcream and onion eða með ostakryddi. Einnig er eitthvað af mjólkurvörum í kryddinu á Lay´s snakkinu. Það þarf að skoða popp hvort notað sé smjör eða olíur og ostapopp er augljóslega ekki í lagi. Ég hef keypt Bónussnakk en skv innihaldslýsingu ætti það að vera í lagi.

Unnar matvörur:
Lesa þarf vel á allar innihaldslýsingar á unnum matvörum og tilbúnum réttum, bæði kjöt og fiskvörur, því það getur leynst mjólkurafurðir eða jafnvel egg í t.d sósunum eða blandað í vörurnar sjálfar . Sjálf hef ég lítið skoðað þessar vörur.

© 2009 - vefstjóri | Knúið af Movable Type 3.34