baby


Ragnar Númi Reykjalín Gunnarsson

Ég kom í heiminn þann 16.nóvember Kl 18:14 á Landspítalanum, áætlaður fæðingardagur samkvæmt 20 vikna sónar var 10.nóvember, ég var því 6 dögum á eftir áætlun. Ég var tekinn með bráðakeisara því ég var skakkur í grindinni og komst ekki út þrátt fyrir mikinn rembing hjá mömmu og pabbi var mjög duglegur að hjálpa henni. Ljósmæðurnar sem voru með mömmu og pabba í þessu á Hreiðrinu hétu Hrafnhildur, hún var ljósmóðurnemi sem var með okkur alla morgunvaktina, en síðan tók Jóhanna ljósmóðir við og var með okkur þangað til mamma fór á skurðstofuna. Þær voru báðar alveg yndislegar. Á skurðstofunni var það Guðríður ljósmóðir af fæðingarganginum sem aðstoðaði við að taka á móti mér. Guðlaug Sverrisdóttir fæðingalæknir sá um að ná mér út og Alma svæfingarlæknir svæfði mömmu. Ég var frekar slappur í eftir allt þetta bras og þurfti því að fara beint á Vökudeildina og pabbi fylgdi mér þangað. Ég var þar í tæpa fjóra daga meðan ég var að ná jafnvægi á söltin í líkamanum og ná að drekka vel. Ég fékk toppeinkunn hjá lækninum á útskriftardegi, fjögurra daga gamall var ég farinn að drekka alveg helling hjá mömmu.
---
Þegar ég fæddist var ég 3320grömm eða rúmar 13merkur og 51cm. Hárið mitt var dökkbrúnt og augun dimmblá með brúnu ívafi. Mamma og pabbi halda að augun eigi eftir að verða brún en liturinn er voða blandaður svona í fyrstu. Ég er alveg lang sætastur.
---
Pabbi minn heitir Gunnar Smári Sveinbjörnsson og mamma mín heitir Ingibjörg Hulda Reykjalín Ragnarsdóttir en er alltaf kölluð Baddý. Við búum öll saman í Garðabænum því pabbi á Smurfyrirtæki í Hafnafirði og mamma er hjúkrunarfræðingur á Landspítalanum í Fossvogi. Þar sem þau eru bæði að norðan og eiga fjölskyldur þar vildu mamma og pabbi endilega gera þessa síðu svo fólkið okkar gæti fylgst með okkur og svo get ég líka skoðað þegar ég er orðinn eldri.
---
Endilega sendið póst ef þið viljið (reykjalin(hjá)gmail.com) einnig er hægt að kommenta á síðuna og við myndirnar eða skrifa í gestabókina:)


Skírnin
Ég var skírður þann 27.desember 2009 í Stærra Árskógskirkju og sá Séra Hulda Hrönn um skírnina. Ég fékk nafnið Ragnar Númi Reykjalín og er það í höfuðið á báðum öfum mínum, Ragnari Reykjalín og Núma Sveinbirni. Svo heitir besti vinu pabba Ragnar og bróðir mömmu heitir líka Ragnar og Emil Ragnar frændi þannig að það eru margir sem eiga smá í mér. Mamma og pabbi voru búin að ákveða nafnið áður en ég fæddist og fannst það rosalega fallegt og passa mér mjög vel. Skírnavottar voru Jóhanna móðursystir og Sigursteinn frændi. Skírnarveislan var haldin hjá ömmu og afa á Hauganesi og komu nánustu ættingjar í veisluna. Ég fékk fullt af fallegum gjöfum – Takk kærlega fyrir mig.


Flutningar
Fyrstu tæpa 3 mánuði lífs míns bjó ég með mömmu og pabba í Hrísmóum í Garðabænum. En síðan þurftum við að flytja og færðum okkur aðeins um set eða í Arnarás 4 í Garðabæ – já við vildum sko ekki fara langt. Gréta amma og Jóhannes afi búa líka hérna í Garðabænum og Hanna móðusystir og hennar strákar búa líka bara rétt hjá okkur.

Mataræði
Ég var á brjósti til mánaða aldurs
Ég fékk D dropa frá 6 vikna aldri
Ég fékk ábót við mjólkina í fyrsta sinn
Ég fór að borða fasta fæðu (kjöt, fisk, kartöflur, grænmeti) __ mánaða gamall.
Ég fór að geta borðað sjálfur __ mánaða. Byrjaði að borða sjálfur með skeið __ mánaða.
Uppáhaldsmaturinn minn fyrsta árið er:

Tanntaka
Fyrsta tönnin fannst
Í tannfé fékk ég: .
2. tönnin fannst
3. og 4. tönnin.
5. tönnin fannst
6. tönnin fannst
7. tönnin fannst
8. tönnin fannst
9. tönnin fannst
10. tönnin fannst
Ég á __ framtennur og __jaxla __ gamall
Allar barnatennur eru komnar um __ aldur

Tanntöku lauk __ mánaða.
Ég fékk flúortöflur __mánaða
Ég fór í fyrsta skipti til tannlæknis __ þá var ég __árs.
© 2009 - vefstjóri | Knúið af Movable Type 3.34