9 mánaða gaur og tíminn alveg flýgur áfram
Jæja núna er gaurinn 9 mánaða og dafnar vel. Sumarið er búið að vera viðburðaríkt hjá okkur. Við erum búin að fara í 2 útilegur í sumar og Ragnar Númi skemmti sér konunglega. Búinn að sjá tvær flugeldasýningar sem voru ekkieins skemmtilegar því ég er pínu hræddur við hvellina. Annars þá erum við mæðgin búin að eyða bróðurparti sumarsins á norðurlandinu á Hauganesinu – vorum þar allavegana meira en við gerðum ráð fyrir í upphafi sumars.
---
Stóri strákurinn okkar er voða duglegur en varkár drengur. T.d um daginn þá var hann að hella úr dótakassanum og þá rakst hann í andlitið á honum og hann fór að gráta smá. Stuttu seinna var hann aftur að tosa í kassann og aftur fór hann í andlitið á honum með tilheyrandi gráti. Í þriðja skiptið sem hann tosaði í kassann var hann svo viðbúinn því að fá hann í andlitið að hann var kjökrandi allan tímann sem hann tosaði í kassann. Litla krúttið. Hann er samt ekkert hættur að sturta út kassanum en fer mjög varlega að því og er greinilega viðbúinn öllu.
---
Hérna koma nokkrar 9 mánaða montfréttir frá Ragnari Núma:
- Ég get klappað saman lófunum og það heyrist smellur og allt. Þetta geri ég oft og sérstaklega þegar ég er búinn að vera duglegur og mamma segir „Veeeiiiiiiiii“.
- Ég er kominn með tvær tennur niðri og nota þær óspart, stundum bít ég í puttann á mömmu eða pabba, þá koma alveg grettur og ég hristist eins og ég sé að bíta voða fast en það er bara í þykjustunni því ég bít voða varlega.
- Ég er loksins farinn að fá almennilegan mat, mér fannst þetta mauk sem mamma var að gefa mér ekkert spes en núna fæ ég bara sama mat og mamma og pabbi eru að borða og líkar það vel.
- Fínhreyfingarnar eru alveg komnar á fullt hjá mér og ég er rosa duglegur að tína upp í mig cheerios eða brauðbita með kæfu, svo er ég alltaf að nota vísifingur til að benta eða ýta á hluti.
- Ég er alltaf að æfa mig í að fara í skriðstöðu en fer mjög varlega svo ég detti ekki á andlitið, en finnst samt skemmtilegra að fá bara putta að halda í og labba um allt sjálfur. Síðan get ég líka hoppað smá áfram á rassinum ef ég þarf að komast eitthvað.
- Er farinn að æfa mig í að reisa mig upp sjálfur en það er auðveldast þegar ég nota mömmu eða pabba til að tosa mig upp.
- Ég er voða duglegur að dunda í dótinu mínu og finnst sérstaklega skemmtilegt að hreyfa til stóra hluti. Bíllinn sem Númi afi smíðaði er voða skemmtilegur þessa dagana, því það er hægt að halda í hann og labba með, ýta honum fram og til baka eða bara sitja í honum.
- Baðið er mikið í uppáhaldi hjá mér og finnst mjög gaman að busla og skvetta í vatninu.
- Fyrir norðan gerði ég fyrsta listaverkið mitt, enda finnst mjög mjög gaman að halda á penna og sjá strikin koma á blaðið.
- Mér finnst mjög gaman að vera í kringum aðra krakka og fylgist mikið með því hvað þau eru að gera. Ég er líka mjög athugull á umhverfið og finnst gaman að skreppa með mömmu í búðir, þar er svo mikið að sjá.
- Finnst mamma mín oft fyndin því hún er svo oft að gretta sig eða ærslast með mig.
- Ég á uppáhalds bangsa og vill helst ekki fara að sofa nema vera með bangsann minn hjá mér því það er svo gott að knúsa hann.
- Ég er voða duglegur að sofa á nóttunni og er hættur að drekka á nóttunni, en elska að koma uppí til mömmu og pabba á morgnanna og fá sopann minn og kúra smá, stundum sofnum við öll aftur saman og það er voða gott.
- Ég er stundum svolítið óþolinmóður og ef það er eitthvað sem ég vill þá get ég verið ákveðinn og látið heyra í mér en annars þá er ég mjög geðgóður og mömmu og pabba finnst ég mjög meðfærilegur.
---
Þetta er svona það helsta að frétta gaurnum okkar þessa dagana en það næsta á dagskrá er að sortera myndir og skella nokkrum hérna inn minningar um sumarið sem senn er á enda.
Kveðja
Ragnar Númi
TrackBack
TrackBack URL for this entry:
http://www.reykjalin.com/mt3/mt-tb.cgi/1068
