« Maífréttir | Aftur á forsíðuna | Nýtt efni á síðunni »

4. June 2010

Ofnæmisfréttir

Ofnæmisfréttir

Jæja við erum búin í tímanum hjá ofnæmislækninum og Ragnar Númi stóð sig eins og hetja, var svo stiltur og þægur og duglegur. En það kom í ljós að litla gullið okkar er ekki bara með ofnæmi fyrir mjólk eins og við vorum búin að komast að heldur líka fyrir eggjum. Þetta þýðir að mamman þarf að taka mjólk og egg úr fæðunni sinni á meðan hann er á brjósti, sem verður eitthvað áfram. Þetta virkaði frekar snúið fyrst um sinn að taka þetta út en við ákváðum að taka þetta bara á bjartsýninni og gera ekkert mál úr þessu.
Í þessa nokkra daga sem við erum búin að taka út mjólkina og eggin þá hefur allt batnað mikið. Barnaexemið sem Ragnar Númi var með á kroppnum er nánast alveg horfið - vorum reyndar líka með krem til að bera á það - og kláðinn og pirringurinn í andlitinu er búinn að minnka alveg rosalega mikið og ég er ekki frá því að það sé léttara yfir öllum hérna.

Mjólkur- og eggjaofnæmi er algengasta ofnæmið hjá svona litlum krílum og mestu líkurnar á að þau vaxi upp úr því - og við vonum að sú verði raunin hjá okkur. Annars þá hafa það allir bara rosalega gott hérna í blíðunni í borginni og við hlökkum til sumarsins:)

-

TrackBack

TrackBack URL for this entry:
http://www.reykjalin.com/mt3/mt-tb.cgi/1065

Vilt þú segja eitthvað?

(Ef þú hefur ekki sagt neitt áður þarftu kannski að bíða eftir að mamma samþykki þig og það sem þú segir, við viljum náttúrulega bara fá falleg orð hérna inni sko, takk fyrir að bíða :)


© 2009 - vefstjóri | Knúið af Movable Type 3.34