Norðurlandið góða
Jæja núna erum við búin að eyða rúmri viku hérna á norðurlandinu okkar. Við mæðgin komum í síðustu viku en pabbinn kom bara rétt yfir helgina og var að fara aftur suður að vinna í dag. Hans er sárt saknað hérna. En við ætlum að vera hérna í tæpar tvær vikur í viðbót og þá kemur pabbi aftur og sækir okkur á bílnum - Það verður fínt að keyra þetta aftur tilbaka því við erum nefnilega alltaf með svo mikið dót með okkur.
---
Í tilefni af 7 mánaða afmælinu þann 16.júní þá fékk gaurinn sína fyrstu klippingu. Mamman klippti toppinn og snyrti hárið í kring um eyrun - við erum ekki frá því að hann hafi elst alveg helling við þetta.
Þannig að gaurinn tók á móti þjóðhátíðardeginum nýklipptur og fínn en við héldum upp á hann á Akureyri með Helgu ömmu og Ragga afa, Emil og Danna og fjölskyldu og Grenó liðinu og svo komu líka bræður Helgu ömmu í mat í Heiðarlundinn. Það var sko svaka fjör þarna hjá okkur eins og vant er þegar allir koma saman og maturinn rosalega góður.
Föstudagurinn fór síðan í slökun og sólbað á Hauganesinu enda veðrið alveg meiriháttar gott og um kvöldið kom síðan pabbinn til okkar.
---
Á laugardaginn fórum við í sund á Hrafnagili með bræðrum. Veðrið lék við okkur og það var gaman að busla í stóru sundlauginni. Danni og Emil fóru í rennibrautina og skemmtu sér konunglega. Á meðan við mæðgin vorum að busla þá var pabbi að bílast með frændum því jú það voru bíladagar á Akureyri og Sigursteinn frændi og Arnar frændi báðir að keppa. Þeir unnu reyndar ekkert þetta árið en stóðu sig samt sem áður vel.
---
Sunnudagurinn (20.06) fór ekki alveg nógu vel hjá okkur. Eftir morgunmat og morgunverkin var farið út í garð að leika, eins og svo oft áður. Fjótlega tókum við síðan eftir því að Ragnar Númi var orðinn frekar rauður aftan á hálsinum og síðan þegar betur var að gáð þá var allur búkurinn orðinn rauð flekkóttur og greinilegt að þetta voru ofnæmisviðbrögð við einhverju. Mömmunni leist nú ekki alveg á blikuna og því var ákveðið að bruna beint á slysadeildina hérna á Akureyri. Þegar þangað var komið var allur búkurinn orðinn rauður og roðinn farinn að leita meira niður á fætur, út hendur og upp á háls og áleiðis upp andlitið. Því þurfti litli strákurinn okkar að fá stera og ofnæmilslyf. Hann var nú ekki alveg sáttur þegar verið var að fá hann til að gleypa þetta, litla skinnið, en það hafðist og hann tók síðan bara lúrinn sinn og svaf þessa sjúkrahúsdvöl af mestu af sér. Lyfin virkuðu greinilega vel á strákinn því roðinn fór strax að hjaðna og var lítið eftir þegar við yfirgáfum slysadeildina um 4 tímum seinna. Við vitum ekkert hvað kom þessu af stað því hann fékk hvorki egg né mjólk um morguninn þannig að eitthvað annað var að kalla fram þessi viðbrögð. Við fengum líka lyf með okkur sem hann þarf að taka í nokkra daga. Það góða við þetta allt er að allt húðvesenið er farið, þ.e. allur roði sem var í húðinni og exemið, það er því vonandi bara að þetta sé allt búið og gerist ekki aftur.
---
Litli strákurinn okkar er því búinn að vera pínu litill í sér síðan þetta gerðist en hann var allur að koma til í dag, er að verða líkari sjálfum sér. Hann er farinn að hlaupa um í göngugrindinni, finnst sko æði að geta ferðast aðeins um húsið. Hann leikur sér að dótinu hérna en er alls ekki hrifinn af því að liggja á maganum, í staðinn mjakar hann sér áfram á rassinum. Besti maturinn hans er epli-peru-og sveskjumauk blandað í grautinn og mangó-og bananamauk. Síðan finnst honum rosalega gott að naga harðar kringlur - þær klóra vel í góminn. Hann er líkur mömmu sinni með það að honum finnst gott að sofa frameftir á morgnanna (jább sofum stundum alveg til að verða kl 10!) - sérstaklega ef hann fær að koma uppí - og þá kúrir mamman bara með :)
---
Við ætlum svo að reyna að gera eitthvað meira skemmtilegt hérna í fríinu okkar á norðurlandinu eins og að fara upp í Mývatnssveit, kíkja út á Karlsá og jafnvel fara í ferð inn í Flateyjardal ef veður leyfir. Svo ef það eru einhverjir hérna sem vilja hitta okkur mæðgin þá bara endilega sláið á þráðinn til mömmu:)
TrackBack
TrackBack URL for this entry:
http://www.reykjalin.com/mt3/mt-tb.cgi/1067

Skilaboð
Skemmtilegar myndir af Norðurlandinu, þið eruð greinilega búin að hafa það gott fyrir norðan :) Hlakka til að sjá ykkur mægðinin sem fyrst! Vona að gangi vel með ofnæmisfæðið.. :)
August 2, 2010 8:18 PM