« Aprílfréttir - langt:) | Aftur á forsíðuna | Ofnæmisfréttir »

26. May 2010

Maífréttir

Maífréttir
--- myndir komnar í albúmið --- mamman var að setja inn heeeelling af myndum, endilega kíkið og kommentið:)
---
Já það lítur út fyrir að það verða bara sagðar fréttir hérna einu sinni í mánuði – það er kannski bara ágætt, þá koma allavegana einhverjar fréttir:)
Ragnar Númi er algjör gaur núna, hann er farinn að sitja sjálfur á gólfinu en við höfum nú samt púða í kring því hann á það til að leggja sig bara þegar hann er þreyttur og þá lætur hann sig bara gossa afturábak. Svo um daginn (12.maí) þegar pabbinn kom snemma heim úr vinnunni þá gerði litli gaur sér lítið fyrir og velti sér af maganum og á bakið, bara svona eins og hann hefði aldrei gert neitt annað. Pabbinn var voðalega ánægður að hafa verið heima þá. Hann er nú samt frekar rólegur á gólfinu þessi elska og er ekkert að gera sig líklegan til að lyfta rassinum upp í átt að því að skríða.
---
Ragnar er aðeins farinn að borða graut. Honum finnst hann ekki góður, bara harðlokar munninum eða lætur hann leka út, þetta litla sem ratar inn. Við erum búin að prófa nokkrar gerðir af graut og ávöxtum og alltaf sama sagan.
DSC_0381.JPG
En við prófuðum eina tegund og þá fékk Ragnar ofnæmisútbrot í andlitið sem er líklega út af mjólkurpróteinum sem eru í þessum graut en ekki hinum sem við vorum búin að prófa. En mamman heldur ótrauð áfram við að troða þessum mjólkurlausu grautun í gaurinn þangað til hann tekur þetta í sátt.
DSC_0022.JPG
En út af öllu þessu ofnæmis og útbrotsveseni þá erum við búin að fá tíma fyrir gaurinn í lok maí hjá ofnæmislækni sem getur vonandi útskýrt eitthvað fyrir okkur og hjálpað. Mamman er því búin að vera á mjólkursnauðu og fiskilausu fæði í nokkra daga og verður þangað til við mætum til læknisins. Útbrotin minnkuðu helling fljótt á eftir en komu síðan aftur núna – spurning hvort eitthvað mjólkurprótein hafi slysast í matinn hjá mömmu, það getur verið vandasamt að sneiða framhjá þessu.
---
En litli Keisarinn okkar er samt sprækur sem aldrei fyrr. Hann fór í 6 mánaða skoðun um miðjan mánuð og er orðinn 7220g og 68cm. Hann féll aðeins í kúrfunni sinni (var aðeins fyrir ofan meðal og datt niður á meðaltalskúruna) en hjúkkan sagði að það væri eðlilegt þar sem hann ef farinn að hreyfa sig mun meira núna. Hann er líka alltaf á fullu á daginn. Við fengum göngugrind hjá Ragga og Söndru (sem Sigga Bogga á víst) og hann alveg elskar hana. Hann var fljótur að finna út hvernig ætti að koma sér áfram og afturábak og til hliðar.
DSC_0986.JPG
---
Planið hjá okkur var að fara norður aftur um Hvítasunnuna en þar sem við fórum tvisvar norður í apríl og einu sinni í byrjun maí í afmælið hennar Gunnu langömmu á Króknum þá ákváðum við að spara pening og vera bara í borginni. Það var alveg dásamlegt veður alla helgina og í vikunni á eftir. Á Hvítasunnudag brunuðum við að Kleifarvatni og hittum þar Hönnu frænku og Lúlla vinnufélaga pabba, en þau voru þar með hundana sína. Já veðrið var alveg dásamlegt og erum við búin að vera meira og minna í sólbaði síðustu daga.
DSC_0230.JPG
---
Ef sumarið verður eitthvað álíka og síðustu dagar eru búnir að vera þá verður sko gaman hjá okkur. En þangað til næst, bless í bili:)

-

TrackBack

TrackBack URL for this entry:
http://www.reykjalin.com/mt3/mt-tb.cgi/1064

Skilaboð

Gaman að heyra :) Vonandi kemur eitthvað gott út úr þessu hjá lækninum samt varðandi ofnæmið, fylgist með..

Vilt þú segja eitthvað?

(Ef þú hefur ekki sagt neitt áður þarftu kannski að bíða eftir að mamma samþykki þig og það sem þú segir, við viljum náttúrulega bara fá falleg orð hérna inni sko, takk fyrir að bíða :)


© 2009 - vefstjóri | Knúið af Movable Type 3.34