« Hverjum er ég líkur? | Aftur á forsíðuna | Maífréttir »

28. April 2010

Aprílfréttir - langt:)

Aprílfréttir - langt:)
Jæja þá koma aprílfréttirnar:) Í byrjun apríl skuppum við norður. Páskarnir voru fyrstu helgina í apríl og páskadagur akkúrat á afmælisdeginum hennar mömmu. Því var ákveðið að bruna norður á fimmtudagsmorguninn og halda upp á páska og afmæli þar. Ferðin norður gekk vel og við stoppuðum á Efri Mýrum og tókum Emblu frænku með á Hauganesið.
---
Á föstudaginn langa hittumst við frændsystkinin á Karlsá og áttum góðan dag þar. Við lékum okkur úti í snjónum á hinum ýmsu leiktækjum og borðuðum fuuuullt af góðum mat. Myndir frá Karlsárgleðinni má sjá hérna.
---
Laugardagurinn fór í slökun heima á Hauganesi en mamma og Helga amma voru að undirbúa afmælið sem var á Páskadag, 4.apríl. Þá komu nokkrir gestir í heimsókn og gæddu sér á kökum og góðgæti og mamma fékk fullt af flottum gjöfum - hún þakkar kærlega fyrir sig:) Myndir frá páskunum og úr afmælinu má sjá hérna. Síðan kom að því að við þurftum að fara aftur í borgina og þá tók hin venjulega rútína við.
---
Ég fór síðan á framhaldsnámsskeið í ungbarnasundinu. Mér finnst voða gaman að fá að busla í vatninu í stóru lauginni en mér finnst ekki gaman að kafa og verð bara fúll ef ég þarf þess en dótið sem er í sundlauginni hressir mig fljótt við og stundum er ég pínu frekur á það og vill fá að hafa það allan tímann.
---
Í byrjun apríl komu nokkrar vinkonur mömmu úr háskólanum í heimsókn með krílin sín - hún var voða dugleg að taka myndir af krökkunum en engar af stelpunum. En það var voða gaman að hitta alla þessa krakka.
---
Mamma ákvað líka að hafa annan í afmæli hérna í Reykjavík fyrir vini hennar og fjölskyldu hérna og því fengum við fullt af kökum aðra helgina í röð. Pabba fannst það sko ekki slæmt. En það kom fullt af fólki í heimsókn og voða gaman að hitta alla og spjalla. Aftur fékk mamma fullt af flottum gjöfum sem hún þakkar kærlega fyrir. Það voru teknar nokkrar myndir í afmælinu og fyrir afmælið og þær má sjá hérna.
Elín Margrét frænka mín kom líka í afmælið með mömmu sinni og pabba og það var tekin smá myndasería af okkur. Þessi frænka mín var nú aðeins handóðari en ég (ég er nefnilega alltaf svo stilltur sko) og foreldar okkar skemmtu sér konunglega yfir því að horfa á okkur hnoðast í sófanum. En alla myndaseríuna má sjá hérna. Mamma bara gat ekki valið úr:)
---
Síðan komu Villi og Sammi í pössun til okkar því Hanna frænka var í UK í hundaskólanum sínum. Það var voða gaman að hafa þá. Villi var nú ekkert mikið að abbast upp á mig og hélt sig í öruggri fjarlægð en Sammi var voða forvitinn. Þeim fannst nú ekkert leiðinlegt að vera hérna saman og stundum var þvílíkur ærslagangur og leikur í þeim. Best fannst þeim samt að kúra saman í sófanum. Myndir hér.
---
Ég fór í 5 mánaða skoðun 20 apríl. Hjúkkunni á heilsugæslunni leist bara vel á mig en nú er ég orðinn 7020gr og 67cm. Ég fékk eina sprautu núna (sama efni og síðast) og ég stóð mig eins og hetja, fann bara varla fyrir þessu og hélt bara áfram að skoða dótið mitt, en mér leið ekki nógu vel um kvöldið og var ennþá hálf slappur daginn eftir.
---
Ég er búinn að fara í mína fyrstu flugferð - fór meira að segja í tvær á sama degi! Ég og mamma ákváðum að skreppa aftur norður og fara í afmæli til Danna frænda. Þegar við vorum rétt komin í loftið þá þurftum við að snúa við og lenda aftur í Reykjavík og bíða á meðan verið var að redda annarri vél því sjálfstýringin í hinni vélinni var eitthvað biluð, síðan biðum við líka smá í nýju vélinni á meðan verið var að laga einhvern míkrafón sem þurfti að vera í lagi. En síðan eftir um klst bið í það heila fórum við aftur í loftið og ég var bara hinn ljúfasti og svaf nánast alla leiðina norður - mömmu til mikillar ánægju:). Í flugferðinni suður var ég vakandi allan tímann og bara lék mér að dótinu mínu.
---
Við mamma vorum bara í algjörri slökun fyrir norðan. Vorum í góðu yfirlæti á Hauganesinu og höfðum bara hægt um okkur. Ég fékk að skoða allt flotta dótið sem Helga amma og Raggi afi eiga og mér fannst voða gaman að spila á litla píanóið og að sitja í Hókus Pókus stólnum og leika mér. Við fórum líka í afmæli til Danna frænda og svo ég hitti líka Fríðu þeirra Flóka og Öddu. Hún er alvegt svaka flott skvísa. Hún er 3 mánuðum yngri en ég en samt næstum því jafn stór og ég! Myndir frá norðurferðinni okkar mömmu má sjá hérna.
---
Ég er að verða voða duglegur að sitja og finnst það voðalega gaman en þarf ennþá smá stuðning. En það bólar ekkert á því að ég fari að velta mér af maganum og á bakið - ætli ég sé ekki bara of latur. En ég er samt mjög forvitinn um allt í kringum mig og vill helst fá að vera með í öllu en þá er best ef einhver heldur á mér. Ég er samt alltaf mjög hress og finnst mamma alveg sérstaklega fyndin sko. Ég er aðeins farinn að smakka mat. Þann 10. apríl fékk ég smá banana hjá mömmu og pabba. Það var nú frekar skrítið og fór nú held ég meira á smekkinn minn en ofan í mig. Síðan fyrir norðan fékk ég líka smá banana og það var bara alveg eins-hann var bara ekkert öðruvísi á bragðið:). Mamma og pabbi voru samt að bíða með að gefa mér graut að borða þangað til nýjustu tölur væru komnar í hús og núna eru þær komnar og því fékk ég í fyrsta skiptið graut 28.apríl (á afmælisdaginn hans Halla langaafa heitins). Ég var nú ekkert alveg viss hvað ég átti að gera við þetta jukk sem mamma setti upp í mig - þetta er vont en það venst!
---
Í dag á Dagný móðursystir afmæli og óskum við henni innilega til hamingju með daginn og ekki nóg með það þá eignaðist ég líka lítinn frænda í morgun. Elmar, bróðir pabba, og Hildur eignuðust ekkert smá flottan dreng kl 07:07 í morgun og hann var 3850 gr og 53cm. Við förum og kíkjum á þau öll þegar þau verða komin heim og búin að kynnast hvert öðru aðeins.
---
Annars þá er hægt að skoða allar myndirnar, sem mamma er búin að likna á hérna í þessum pisli, í myndaalbúminu mínu - þar er líka hægt að kommenta við myndirnar og okkur finnst voðalega gaman þegar það er gert:)


Sumarkveðja til ykkar allra:)
bless í bili - Ragnar Númi Reykjalín

-

TrackBack

TrackBack URL for this entry:
http://www.reykjalin.com/mt3/mt-tb.cgi/1063

Vilt þú segja eitthvað?

(Ef þú hefur ekki sagt neitt áður þarftu kannski að bíða eftir að mamma samþykki þig og það sem þú segir, við viljum náttúrulega bara fá falleg orð hérna inni sko, takk fyrir að bíða :)


© 2009 - vefstjóri | Knúið af Movable Type 3.34