Marsfréttir
Jæja það lítur út fyrir að það komi bara fréttir hérna einu sinni í mánuði!
En við erum flutt:) komin niður á jörðina. Bára amma frestaði USA förinni sinni svo hún gæti hjálpað okkur að þrífa og Helga amma og Raggi afi komu og hjálpuðu til við restina af flutningunum og að taka upp úr kössum. Jóhannes "afi" var ötull við að hjálpa til við kassa og húsgagnaflutningarnar. Sem betur fer fengum við íbúðina örlítið fyrr en áætlað var en það var mjög gott því það fór að snjóa alveg heilan helling þessa síðustu helgi í febrúar og þurfit að moka frá útidyrunum til að komast inn. Reyndar var þetta enginn heill hellingur sem hafði safnast fyrir hurðinni en nóg! En snjórinn staldraði ekki lengi við.
Nýja íbúðin er mjög notarleg, við erum að verða búin að koma okkur fyrir að mestu - bara smá dytt eftir sem kemur smám saman.
---
Ragnar Númi fór í 3mánaða skoðun 2. mars og fékk þá sína fyrstu bólusetningu (barnaveiki, stífkrampi, kíghósti, mænusótt og hib (barnainfluensa)). Hann var nú ekkert alveg sáttur við það - leit á lækninn með svona "hvað ertu að gera mér kona!" - svip og grét smá en síðan var það bara búið. En um kvöldið fékk hann 38 stiga hita og fékk þá stíl en svaf þetta síðan bara af sér - algjör hetja þessi elska. En þarna var hann orðinn 6140gr og 62,5cm og stækkar alveg eftir kúrfunni. Ekkert smá flottur strákur.
---
Við erum síðan byrjuð í ungbarnasundi sem er tvisvar í viku í mánuð . Okkur hlakkaði mikið til að byrja því Ragnari Núma finnst svo gaman að busla og sparka í baðinu og vatnið skvettist út um allt þegar hann er í tekur sig til við sprikklið. Við erum búin að fara í tvo tíma núna og honum finnst voða gaman. Hann var reyndar mjög alvarlegur í fyrsta tímanum og var mikið að skoða ljósin þarna og glampann á vatninu. Síðan er köfunarviðbragðið æft í hverjum tíma og þegar sundkennarinn er ánægður með viðbragðið hjá hverju og einu þá er prófað að setja þau pínu í vatnið og síðan alltaf meira og meira smám saman. Ragnar Númi fær líklegast að prófa að setja andlitið í vatnið í næsta tíma, en hann verður alveg uppgefinn eftir sundtímann og fær sér þá smá kríu eftir sundið.
---
En litli sporðdrekinn okkar er að verða frekar ákveðinn drengur og það er margt sem honum líkar og líkar ekki.
Það sem er ekki skemmtilegt núna er t.d
Liggja á maganum - en þráðurinn þarna er óðum að lengjast og því lætur hann sig hafa það að vera í smá tíma á maganum.
Láta klæða sig í fötin og þá sérstaklega útifötin og að fá húfu - það er bara ekki gaman!.
Bíða eftir að mamma lagi sig til áður en mjólkin kemur - ef hann er svangur þá nennir hann ekkert að bíða!
Láta halda á sér í fanginu eins og litlu barni - hann er sko orðinn stór strákur.
En það sem er gaman:
Spjalla - það er gaman að fá ALLA athyglina
Fara í bað - það er svo gaman að busla
Sprikkla á skiptiborðinu - helst með enga bleiu, en þá kemur líka oftast pissubuna, eins gott að vera ekki fyrir!
Þegar mamma gerir skrítin hljóð - mjög gaman að reyna að herma eftir hljóðunum.
Horfa á Simpson - svo flottir litir.
Og rétt áðan lærði Ragnar Númi að velta sér af maganum yfir á bakið.
TrackBack
TrackBack URL for this entry:
http://www.reykjalin.com/mt3/mt-tb.cgi/1061

Skilaboð
Ji minn, snúllan. Sveinn var alveg eins, fannst og finnst ömurlegt að láta klæða sig í útiföt, bíða eftir mjólk og svo að vera á maganum. Hann er reyndar OFUR duglegur núna að setja sig á magann en verður fljótt leiður á því sem er bara fyndið.
Knús til ykkar
March 16, 2010 1:34 AM