« Fréttir af litlu fjölskyldunni | Aftur á forsíðuna | Fyrsti hláturinn »

15. February 2010

Febrúar fréttir

Febrúar fréttir
Jæja núna er febrúar hálfnaður. Ragnar Númi verður 3.mánaða á morgun en við förum ekki í 3ja mán skoðun fyrr en 2.mars! Greinilega eitthvað mikið að gera á heilsugæslunni. En gaurinn okkar heldur bara áfram að stækka, svona gróflega tommustokksmæling segir að hann sé orðinn 63cm en það er spurning hvort mæligræjan á heilsugæslunni verði sammála.
---
Rútínan er alveg að komast í gang, hann fer að sofa milli 21 og 22 á kvöldin og drekkur 1-2 yfir nóttina, fer eftir því hvenær hann drakk áður en hann sofnaði. En hann er nú ekkert svo gráðugur drengurinn því ef hann er ekki svangur þá bara vill hann ekki borða! orgar bara á brjóstið ef ég kem með það nálægt honum..hann er greinilega strax orðinn ákveðinn ungur drengur :)
---
Aðal fréttin er samt sú að við erum komin með íbúð. Duttum niður á eina hérna í Garðabænum þannig að við erum ekki að fara langt. Verðum reyndar aðeins lengra frá Grétu mágkonu en bara steinsnar frá Hönnu systir. Það besta við nýju íbúðina er að hún er á jarðhæð þannig að ég get sagt bless við 4. hæðina þegar við flytjum héðan :) og konan sem á íbúðina sagði að í sól og blíðu þá væri alveg molla í garðinum þannig að þið sem vijið fara í sólbað þá komiði bara til okkar. En áætlaður afhendingardagur er 25.feb en við erum búin að pakka niður því helsta og fara með í geymsluna þannig að þetta ætti að ganga greiðlega. Amman og afinn af Hauganesinu ætla líka að koma í borgina og hjálpa okkur. Þannig að þetta ætti ekki að taka langan tíma.
---
Það er komið alveg helling af myndum í febrúar albúmið hjá Ragnari Núma. Endilega kíkið á myndirnar og kommentið það er svo gaman.

-

TrackBack

TrackBack URL for this entry:
http://www.reykjalin.com/mt3/mt-tb.cgi/1059

Skilaboð

Var að kíkja á febrúarmyndir - loksins! Hann er svo mikið bjútí þessi drengur.. á eftir að verða algjör heartbreaker hehehe
En ég gat bara kommentað við eina mynd og svo ekki meir - örugglega bara eitthvað tímabundið ves :)
Hlakka til að rölta í heimsókn!!

Vilt þú segja eitthvað?

(Ef þú hefur ekki sagt neitt áður þarftu kannski að bíða eftir að mamma samþykki þig og það sem þú segir, við viljum náttúrulega bara fá falleg orð hérna inni sko, takk fyrir að bíða :)


© 2009 - vefstjóri | Knúið af Movable Type 3.34