« Mitt fyrsta bros | Aftur á forsíðuna | Fréttir af litlu fjölskyldunni »

11. January 2010

Rútína í bígerð

Rútína í bígerð

Jæja þá erum lífið allt að komast í venjulegt horf ef svo má segja. Við erum mætt aftur í borgina og pabbinn farinn aftur að vinna og við mæðginin því bara hérna heima. Við erum að reyna að koma á einhverri rútínu - þá sérstaklega hvað varðar nætursvefninn. En hann Ragnar Númi er svo duglegur, hann er farinn að sofa alveg 8 tíma í einu á nóttunni, reyndar vekur mamman hann stundum fyrr til að drekka en svo sofnar hann bara aftur og sefur því í allt að 12 tíma yfir næturtímann. Við erum síðan að vinna í því að færa háttatímann fram. Núna erum við að byrja að hátta um kl 22:30 og ætlum síðan smám saman að byrja fyrr að hátta. Mamman er líka gjörn á að sofa bara með litla manninum - því væri gott ef við færum fyrr í háttinn og á fætur fyrir hádegi:)
---
Mamman er núna byrjuð í mömmuleikfimi tvisvar í viku og Ragnar Númi kemur bara með og sefur annað hvort í bílstólnum á meðan eða liggur á dýnu - hingað til hefur hann bara sofið í stólnum sínum. Síðan erum við að gæla við það að fara í ungbarnasund. Ragnari Núma finnst alveg svakalega gott að fara í bað og því finndist honum örugglega gaman líka í sundi, en það verður ekki alveg strax, þurfum að kynna okkur þessi mál aðeins betur.
---
Látum þetta gott heita í bili...hér er svo ein mynd sem var tekin í dag þegar Ragnar Númi fékk sér smá kríu í vagninum.
IMG_0972.JPG

-

TrackBack

TrackBack URL for this entry:
http://www.reykjalin.com/mt3/mt-tb.cgi/1056

Skilaboð

Helga amma:

Er mamma þín alltaf að trufla þig með flassinu, engin svefnfriður :)

Vilt þú segja eitthvað?

(Ef þú hefur ekki sagt neitt áður þarftu kannski að bíða eftir að mamma samþykki þig og það sem þú segir, við viljum náttúrulega bara fá falleg orð hérna inni sko, takk fyrir að bíða :)


© 2009 - vefstjóri | Knúið af Movable Type 3.34