Nýjar myndir komnar í janúaralbúm
---
Fréttir af litlu fjölskyldunni
já tíminn líður sko hratt á þessu heimili. Ragnar Númi stækkar með hverjum deginum. Við vorum í ungbarnaverdinni á heilsugæslunni í dag og nú er hann orðinn 5490g og 60cm og fylgir kúrfunni alveg.
Okkur finnst hann þroskast helling á hverjum degi. Hann er farinn að fylgja öllu vel eftir, leikur sér að dótinu sem hangir fyrir framan hann, uppáhalds bókin hans er Brio bókin frá Báru ömmu því hún er svo litrík. En það allra skemmtilegasta um þessar mundir virðist vera handboltinn! Hann alveg starir á sjónvarpið og sveiflar höndum og skammar dómarana :) Alveg framtíðar handboltastrákur hér á ferð.
Hann er hættur að vera spar á brosið og maður fær nú yfirleitt bros þegar maður spjallar við hann og oftast kemur hjal með brosinu. Hann er náttúrulega bara langsætastur.
---
Rútínan er svona öll að koma, erum að reyna að færa háttatímann alltaf framar og framar. Í gærkvöldi þegar hann "sagði" mér að hann væri orðinn þreyttur (hann gerir ákveðið hljóð sem við vitum að það þýðir að hann er orðinn þreyttur - lærðum það á dunstan-babylanguage), þá bara lagði ég hann í rúmið kl 22, (þá nýbúinn að drekka) ruggaði honum pínu og söng og hann svaf til kl 5 í morgun til að drekka aftur. Algjör engill.
---
Baráttan við snuðið er líka á undanhaldi hérna og margar snuddugerðirnar hafa verið keyptar - hann er búinn að vera mjög "pikkí" á snuð og við búin að prófa öll snuðin á markaðnum og það síðasta sem eftir var virðist vera það sem hann vill. Hann hefur róast mikið á kvöldin við að fá það því sogþörfin hefur greinilega verið mikil og þumalputtinn óðum að rata rétta leið. En það þarf samt aðeins að minna hann á hvernig á að sjúga snuðið þegar það er sett upp í hann.
---
Hann er ekki farinn að velta sér af maganum og á bakið - líklega er það mömmunni að kenna því honum finnst svo leiðinlegt á maganum og byrjar alltaf fljótt að væla og mamman getur bara ekki pínt hann lengi til að vera á mallanum, en þetta kemur fljótlega:) En honum gengur vel að halda höfðinu.
---
Annars þá erum við á fullu að leita okkur að nýju húsnæði. Leigusamningurinn hérna rennur út 1.mars en við höfum ekkert fundið enn sem okkur líst vel á. En við erum enn bjartsýn:)
TrackBack
TrackBack URL for this entry:
http://www.reykjalin.com/mt3/mt-tb.cgi/1057

Skilaboð
frábært ad allt gengur svona vel með Ragnar Núma. Hann hefur stækkad svo mikid frá þvi ég skodadi myndirnar seinast.
knus og margir kossar fra okkur i NY
January 26, 2010 4:27 PM
Vá! svefn frá 22 til 5, æðislegt. Hún Elín Margrét er ekki alveg að gefa mömmu sinni svona langan svefn á milli gjafa en er þó að komast í góða rútínu og við erum að vinna í því að fá hana til að sættast við vögguna og hætta að sofa í hlýjunni hjá mömmu.
Eiga þau að vera farin að velta sér af maganum yfir á bakið núna? Er ekki alveg með á hreinu hvenær þau eiga að vera farin að gera hitt og þetta en Elín Margrét er alla vega ekki alveg búin að fatta þetta ennþá og eins og hjá ykkur þá er það sennilega mér að kenna því ég er ekki alveg nógu dugleg að láta hana brölta á maganum, sennilega allt of fljót að snúa henni á bakið þegar hún fer að kvarta.
En hún er líka mikill handboltaunnandi eins og frændi sinn, enda gólfið svo skemmtilega gult og blátt og litríkir búningar og svaka stuð.
Sjáumst í göngu á sunnudaginn.
January 27, 2010 4:02 PM
Berglind: já þetta er fljótt að gerast :)
Svanhildur: ég fæ sendar upplýsingar af Babycenter.com um hvað þau eiga að geta gert eftir ákveðið margar vikur þannig að það er ágætt að hafa eitthvað að miða við. Um þetta leiti eiga þau að geta lyft höfðinu og öxlum upp ef þau liggja á maganum og síðan kemur veltingurinn í kjölfarið
En það eru ekkert öll börn sem eru farin að gera þetta strax - fer eftir mömmunni líklega! :) Ragnar Númi er ekki enn orðinn nógu sterkur í höndunum til að lyfta sér upp enda mamman ekki nógu dugleg eins og áður sagði!!!
January 27, 2010 6:36 PM