Skoðun hjá barnalækni
Jæja fórum í skoðun til barnalæknis í dag. Hann vildi smá eftirfylgni með gaurnum svona til að sjá hvort hann væri ekki að þyngjast og dafna vel og það er hann svo sannarlega að gera. Herberti lækni leist svona rosalega vel á strákinn, hann er orðinn 3810gr og því búinn að þyngjast um næstum hálft kíló síðan hann fæddist og er hann bara 16 daga gamall. Hebbi gaf honum því grænt ljós og vildi ekkert sjá hann aftur :) nú er það bara venjulegt eftirlit hjá ungbarnaverndinni. Síðan kíktum við aðeins upp á Hreiður til að freista þess að hitta á ljósurnar sem voru með okkur í fæðingunni en hvorug þeirra var að vinna - bara Rósa deildarstjóri en hún fylgdist líka með okkur þarna. Við báðum hana því um að skila kveðju til stelpnanna og færðum þeim smá nammi og kort.
TrackBack
TrackBack URL for this entry:
http://www.reykjalin.com/mt3/mt-tb.cgi/1049

Skilaboð
enda ertu svo yndislegur elsku frændi! Hlakka til að knúsa þig næst þegar ég kem í heimsókn! ;)
December 2, 2009 6:28 PM