« Alltaf að stækka | Aftur á forsíðuna | Mitt fyrsta bros »

28. December 2009

Jól og skírn

Jól og skírn

Jæja það er búið að vera nóg um að vera hjá litlu fjölskyldunni. Þar sem allir voru í frí og varahluturinn í bílinn kom óvænt snemma þá ákváðum við að bruna norður sunnudaginn 13.des og kíkja á fjölskylduna fyrir norðan. Það er alltaf svo dásamlegt að koma norður og því gott að eiga nokkra daga fyrir jólin til að stússast og kíkja í heimsóknir. Helgina fyrir jólin var mamman svo óheppin að fá brjóstastíflu í annað brjóstið og með því fylgdi nærri 40° hiti og því tilheyrandi. Þannig að sú helgin fór bara í að hrista það slen af sér með hjálp sýklalyfja, nú þarf bara að passa sig enn betur að verða ekki kalt!.
---
Jólin komu svo með allri sinni gleði. Það var margt um manninn í Ásveginum. Raggi bróðir kom með sínar skvísur og Dagný systir með sína gaura. Annað eins pakkafljóð hefur aldrei sést í sólskálanum áður og það var aldeilis gleðin við að opna alla þessa pakka. Litli prinsinn svaf þetta reyndar að mestu af sér en rak einu sinni upp eitt nett öskur bara svona til að minna á sig og fékk þá að vera smá stund með í gleðinni eða þangað til augun sigu aftur. Við fengum alveg fullt af fallegum gjöfum og þökkum alveg kærlega fyrir okkur.
---
Á jóladag var jólaboð hjá Báru ömmu og þar var pabba-mafían samankomin og borðuðum við dýrindis hangikjét. Mamman fékk sér meira að segja slatta og það fór ekkert illa í litla prinsinn.
---
Á annan í jólum var hið árlega Karlsárjólaboð í móðurfjölskyldunni. Við komumst reyndar ekki þangað þar sem pabbinn fékk einhvern skít í sig og hélt engu niðri né uppi! Og það var búið að snjóa svo mikið að drossían okkar sat föst í snjónum. Það þarf nú reyndar ekki mikið til að hún festist en það var búið að kyngja niður alveg hellings snjó hérna á norðurlandinu. Því voru við mæðginin bara heima að hugsa um pabbann og undirbúa skírnina.
---
Skírnadagurinn.
DSC_1390.JPG

Loksins kom að því að litli prinsinn fengi nafn. Skírnin fór fram í Stærra Áskógskirkju og sá Séra Hulda Hrönn um athöfnina. Þetta var bara lítil og nett athöfn með nánustu fjölskyldumeðlimum og síðan kaffiboð í Ásveginum á eftir. Reyndar var nokkuð um forföll sökum veikinda. En litli prinsinn fékk nafnið Ragnar Númi Reykjalín. Það er í höfuðið á báðum öfunum. Þeir voru báðir mjög hissa á þessu en alveg himinsælir með þetta. Það voru reyndar all margir búnir að gíska á þessa nafngift enda ekki annað hægt þar sem þessi nöfn passa svo vel saman. Skírnavottar voru Hanna systir og Sigursteinn frændi. Nú þarf því ekki lengur að nota litli prins, stubbur, gaur og allt það, nú er loksins hægt að nota nafnið Ragnar Númi.

CSC_1471_a.jpg

-

TrackBack

TrackBack URL for this entry:
http://www.reykjalin.com/mt3/mt-tb.cgi/1051

Skilaboð

Kristjana Hreinsdóttir:

Bestu hamingjuóskir með nafnið. Kveðja allir á A-4

Vilt þú segja eitthvað?

(Ef þú hefur ekki sagt neitt áður þarftu kannski að bíða eftir að mamma samþykki þig og það sem þú segir, við viljum náttúrulega bara fá falleg orð hérna inni sko, takk fyrir að bíða :)


© 2009 - vefstjóri | Knúið af Movable Type 3.34