« Skoðun hjá barnalækni | Aftur á forsíðuna | Jól og skírn »

8. December 2009

Alltaf að stækka

Alltaf að stækka
Við viljum byrja á því að þakka öllum fyrir allar fallegu sængurgjafirnar sem stráksinn er búinn að fá, allt kemur að góðum notum og er alveg yndislegt. Takk kærlega fyrir okkur.
---
Hjúkkan frá ungbarnaverndinni kom í gær til að vigta drenginn og hann er nú ekki lengur litli keisarinn okkar heldur frekar stóri keisarinn okkar:) Hann er núna orðinn 4250gr og því búinn að þyngjast um tæpt hálft kíló á innan við viku eða 440gr. Það er því greinilegt að hann er að dafna vel hérna, enda er hann kominn með undirhöku og bollukinnarnar stækka óðum.
---
Annars þá gengur vel hérna - stóri gaurinn ætlar greinilega að vera nátthrafn eins og mamman því hann vill helst ekkert fara að sofa á kvöldin, vill bara vaka og spjalla og vælir reyndar smá, var með smá verki í mallanum í fyrradag og en það er verið að vinna í þessu með öllum ráðum, honum leið betur í gær og vonandi verður kvöldið í kvöld ljúft.
---
Stráksinn er búinn að fara í pössun í fyrsta skiptið. Gréta amma var að passa meðan nýbökuðu foreldrarnir fóru í jólagjafaleiðangur. Það var nú ekki mikið mál að passa þennan gutta, hann bara svaf eins og engill allan tímann enda er svo gott að vera hjá Grétu ömmu:).
---
Síðan er búið að plana skírn fyrir norðan milli jóla og nýárs. Þetta verður bara lítil athöfn í Stærra Árskógskirkju og síðan smá kaffiboð fyrir þá nánustu í Ásveginum. Það er búið að velja nafn og við erum búin að vera að máta það við hann hérna heima, erum að passa okkur á að missa það ekki út úr okkur þegar það eru gestir hérna og enn hafa engin slys orðið:) Annars þá fer að líða að norðurferð og þá verður nú gaman að knúsa alla og kyssa.
En þar til næst -
kveðja frá stráksa sem fær bráðlega nafn og þá er hægt að hætta að kalla hann stráksa/gutta/keisara/stubb og allt það:)

-

TrackBack

TrackBack URL for this entry:
http://www.reykjalin.com/mt3/mt-tb.cgi/1050

Skilaboð

Sigga Tryggva:

Gaman að sjá að allt gengur vel Baddy mín. Hafið það gott fyrir norðan.

Vilt þú segja eitthvað?

(Ef þú hefur ekki sagt neitt áður þarftu kannski að bíða eftir að mamma samþykki þig og það sem þú segir, við viljum náttúrulega bara fá falleg orð hérna inni sko, takk fyrir að bíða :)


© 2009 - vefstjóri | Knúið af Movable Type 3.34