Nýjar fréttir.
Jæja hjúkrunarfræðingur frá ungbarnaverndinni kom til okkar á miðvikudaginn til að vigta drenginn og er hann núna orðinn 3500gr og því kominn yfir fæðingarþyngdina sem er mjög ánægjulegt, enda er hann rosalega duglegur að drekka. Hún var voða ánægð með þetta allt og síðan fer litli gaurinn í læknisskoðun á Barnaspítalanum í næstu viku, en barnalæknirinn vildi að hann kæmi þangað í smá eftirlit til að sjá hvernig hann er að dafna eftir þetta alltsaman. Við höfum því góða þyngdartölu til að sýna honum:).
Annars þá erum við búin að fara út í okkar fyrstu heimsókn. Förinni var heitið til Munda bróðir og Svanhildar en þau eignuðust litla skvísu 3 dögum eftir að prinsinn fæddist. Það var sem sagt systkinahittingur á Vökudeildinni því þeirra skvísa stoppaði þar í einn sólarhring eftir að hún kom í heiminn. Síðan fórum við í heimsókn til Grétu frænku/ömmu þannig að það var nóg að gera þann daginn.
hérna eru frændsystkinin saman.
---
Í dag fór síðan litli gaurinn í bað í fyrsta skiptið, honum fannst það ekki leiðinlegt og leið bara vel í vatninu eins og sjá má á þessari mynd. Við erum ekki frá því að það sé smá rauðleitur blær á hárinu.
---
Annars þá gengur bara vel hérna, regla komin á svefninn og því er bara drukkið um miðnætti, miðja nótt og síðan um morguninn og bara kúrt og sofið þess á milli og foreldrarnir liggja bara í leti og njóta þess að horfa á gullmolann sinn.
kveðja úr Hrísmóunum.
TrackBack
TrackBack URL for this entry:
http://www.reykjalin.com/mt3/mt-tb.cgi/1048

Skilaboð
;) gott gott
November 29, 2009 1:14 AM