Sunday 20. November 2011
Elísa Helga Reykjalín Gunnarsdóttir
Jæja þá er skvísan komin með nafn. Hún fékk nafnið Elísa Helga. Elísu nafnið er bara nafn sem mömmu og pabba fannst flott og svo er Helgu nafnið í höfuðið á Helgu ömmu, svo heitir líka föðursystir pabba Helga og vinkona mömmu og svo heitir mágur mömmu Ólafur Helgi þannig að það er hægt að tengja Helgu nafnið í margar áttir sem er mjög gaman. Skírnin var þann 12.nóvember í Stærra-Árskógskirkju og svo veilsa í Ásveginum á eftir. Þar sem Ragnar Númi varð síðan 2ja ára þann 16. nóv vorum við líka með afmæli fyrir hann. Reyndar varð hann lasinn og fékk hita þarna í kirkjunni og svaf mestu veisluna af sér og var síðan kominn með 40°hita seinna um daginn og daginn eftir þannig að hann var bara slappur og missti af herlegheitumun. Börnin fengu fullt af fallegum gjöfum og þökkum við kærlega fyrir þær:)
---
Við flugum síðan aftur suður á mánudeginum og Ragnar Númi var þá enn slappur og fór ekkert í leikskólann fyrr en á fimmtudeginum og var því bara heima á afmælisdaginn sinn (miðvikudeginum). Við gáfum honum bílabraut til að henga á vegginn í afmælisgjöf og það var leikið með hana en bílar eru í algjöru uppáhaldi hjá drengnum, eiginlega of ef eitthvað er:) Í leikskólanum fékk hann síðan afmæliskórónu og afmælisöng. Á þriðjudagskvöldinu var hann kominn með útbrot á kroppinn og smá í andlitið og mömmu og pabba grunaði að hann væri með sjöttu sóttina eða mislingabróðir þannig að við fórum með hann til læknis á afmælisdaginn og fengum staðfestingu á því.
---
En fjölskyldnan ætlar greinilega að taka haustið með smá flensuskít því mamman og pabbinn fengu magakveisu helgina eftir - akkúrat þegar við ætluðum að hafa annan í afmæli fyrri þá sem voru ekki fyrir norðan en það þurfti að fresta því um eina helgi eða svo.
---
En hún Elísa Helga okkar dafnar rosalega vel, hún er mjög vær og góð og bara drekkur, sefur og sýgur snudduna sína. Hún ætlar greinilega að taka ástfóstri við snudduna eins og stóri bróðir en hún er nú samt að svíkja lit og vildi ekki pussycat snuðið heldur MAM snuð. Hún er búin að fara í 6 vikna skoðunina og kom vel út úr henni, var 3890gr og rétt tæpir 54cm og því búin að þyngjast umrúmt kíló og lengjast um 6cm:). Síðan fer hún í 9 vikna skoðun í næstu viku.
---
Ragnar Númi er voða góður stóri bróðir. Biður stundum um að fá að kúra hjá henni og strýkur henni um kollinn og réttir henni snuðið. Svo er líka mjög spennandi að fylgjast með þegar verið er að skipa á henni og athuga hvort hún sé búin að kúka. Orðaforðinn hans Ragnars Núma er líka alltaf að aukast en við skiljum ekki alveg allt sem hann er að segja. Hann sagði t.d alltaf "búkei" þegar hann var að biðja um að fá að drekka og svo kallaði hann bangsana "Paa". Þetta er reyndar aðeins að breytast hjá honum núna. Svo finnst honum voða gaman að dansa og syngja og syngur t.d með lögum eins og afi minn og amma mín, ég ann þér og frost er úti fuglinn minn, mömmunni finnst þetta alveg eitt það krúttlegasta í heimi.
---
Okkur finnst við vera rosalega rík að eiga þessi börn.
Thursday 13. October 2011
Litla systir

Ég er orðinn stóri bróðir
Litla systir ákvað að flýta sér aðeins í heiminn og kom eins og elding þann 27.sept kl 2:14. Hún var 2845gr eða rétt rúmar 11 merkur og 48cm. Aldrei datt mömmunni í hug að skvísan myndi láta sjá sig fyrir tímann en hún hefur greinilega verið eitthvað að flýta sér. Mamma og pabbi rétt náðu á fæðingardeildina áður en hún lét sjá sig. Gréta amma kom um nóttina og var hjá stráksa þangað til pabbinn kom heim. Skvísan þurfti síðan að fara á vökudeildina í ljósakassa því hún fékk mikla gulu enda marðist hún aðeins í látunum og er fyrirburi en þeir eru mjög útsettir fyrir gulu. En núna eru allir komnir heim og byrjaðir að aðlagast lífinu heima. Ragnar Númi skiptir sér voða lítið af skvísunni en finnur alveg að hann á ekki lengur alla athyglina. Amma Helga kom síðan í heimsókn og er búin að vera í um viku og verður fram yfir helgi og það er voða gott að hafa hana hérna, það er mikil hjálp í henni.
Aðrar góðar fréttir eru að ofnæmislæknirinn hafði samband við okkur og samkvæmt blóðprufu þá er stóri strákurinn laus við bæði eggja og mjólkurofnæmið. Hann er því aðeins farinn að kynnst mjólkur og eggjavörum og ég held að honum lítist bara vel á, reyndar svo vel að hann vildi ólmur smakka brjóstamjólkina hjá mömmunni um daginn, fannst hún eitthvað spennandi og vildi ekki fara að sofa um daginn fyrr en hann var búinn að fá kalda brjóstamjólk í pela og drakk eins og lítið barn, en hann hafði séð mömmu gefa litlu systir smá ábót úr pela í eitt skiptið:)
Þannig að héðan eru bara góðar fréttir:)
Thursday 1. September 2011
Seinni hluti sumars
Jæja sumarfríið leið alveg svakalega hratt. Við mæðgin fórum aftur suður í byrjun júlí og þar beið okkar blíðan, enda búið að vera mjög gott veður meðan við vorum á norðurlandinu. En við áttum bara rólega daga það sem eftir var af fríinu. Mamman og Ragnar Númi nutu veðursins en pabbinn vann. Sumarfrísplanið fór eitthvað úr skorðum þegar Ragnar Númi fékk pláss hjá dagmömmunni en við vorum búin að skipuleggja frí á öðrum tíma og strákarnir í vinnunni hjá pabbanum búnir að bóka sín sumarferðalög þannig að planið er að taka bara gott ferðasumar næsta sumar.
---
Um verslunarmannahelgina fórum við í sumarbústað við Úlfljótsvatn með Grétu, Jóhannesi, Báru, Hrannari og Hrannari Orra. Það er nú ekki hægt að segja að veðrið hafi leikið við okkur þar því það rigndi alveg svakalega nánast alla dagana sem við vorum þarna en það var næstum því heila viku. En við skoðuðum okkur nú samt aðeins þarna um og keyrðum að Nesjavöllum og skoðuðum Hellisheiðarvirkjunina. Strákarnir reyndu fyrir sér í vatninu en engin var veiðin og þegar stytti upp þá var haldið golfmótið “Flugan”. En eftir veru á golfvellinum komumargir hverjir alveg útbitnir heim – mýið þarna var mjög árásagjarnt og greinilega svangt! Fólk kom misjafnlega út úr þessu, held að pabbinn á heimililnu hafi fengið verstu útreiðina og núna um mánuði seinna má enn sjá bólgu og ummerki í húðinni eftir fluguna. Ragnar Númi og mamman sluppu alveg en reyndar þurfti mamman að skjótast í borgina að vinna á meðan flugan var sem verst. Slökun í pottinum var tekin nánast á hverju kvöldi þrátt fyrri rigninguna – það var mjög notarlegt.
---
Eftir bústaðaferðina fékk Ragnar Númi sitt herbergi. Hann var reyndar kominn með dótið sitt þangað en við ákváðum að flytja rúmið hans líka og láta hann sofa þar. Þessi breyting hefur gengið alveg lygilega vel og hefur hann ekkert kippt sér upp við það að sofa ekki í sama herbergi og mamma og pabbi. Og núna fer hann að sofa bara alveg sjálfur. Skoðar bók, förum með bænirnar og svo fer hann að sofa. En hann var orðin vanur því að einhver lá alltaf við hliðina á honum meðan hann sofnaði því mamman tók alltaf lúrinn fyrir næturvaktirnar með honum á kvöldin – en nú er hún hætt öllu næturvaktarstandi í bili.
---
Ragnar Númi fór síðan aftur til Sigrúnar dagmömmu og hinna krakkanna um miðjan júlí og var þar í tæpan mánuð eða þangað til hann byrjaði á leikskólanum Sjáland þann15. Ágúst. Aðlögunin gekk mjög vel. Og fyrstu dagana valhoppaði hann inn til strákanna og fór að leika en síðan kom smá bakslag og hann varð smá sorgmæddur þegar mamma eða pabbi voru að fara en það tók bara örstutta stund og þá var hann farinn að leika við hina. Mamman og pabbinn eru alveg voðalega stolt af stóra stráknum þeirra. Svo er hann alltaf dansandi glaður þegar komið er að sækja hann og tekur alveg fullt af danssporum en er samt alveg tilbúin að fara heim.
---
Hvað varðar mömmuna og skvísuna þá heilsast þeim mæðgum vel. Kúlan stækkar bara og stækkar og skvísan hreyfir sig alltaf meira og meira. Ragnar Númi sýnir þessu engan sérstakan áhuga enda er hann örugglega ekkert að fatta hvað um er að vera. En þótt mamman sé að halda á og knúsa önnur börn þá verður hann ekkert afbrýðusamur. Um daginn hélt mamman á litla frænda (þeirra Örnu og Arnars) og hann bara labbaði að okkur og kyssti litla frændann á nebbann. En svo er bara spurning hvernig þetta verður þegar þegar hann fattar að litla krílið er ekki að fara neitt og er komið til að vera. Það verður gaman að sjá.
---
Við kíktum í smá heimsókn til skvísunnar þann 31. Ágúst – þá var hún 32 vikna og 5 daga. Hún var nú ekkert alltof hrifin af þessari truflun þarna í byrjun enda búin að vera á fullu með mömmunni í joga stuttu áður. Þannig að hún hafði bara hægt um sig í kúlunni og hjúfraði sig upp að fylgjunni og saug svo þumalinn. Síðan var naflastrengurinn alltaf eitthvað að flækjast í andlitinu þannig að erfitt var að ná góðri andlitsmynd. En við sáum nú samt að það er alveg svipur með þeim Ragnari – svona þegar skoðaðar voru 3D myndirnar hans Ragnar og svo hennar. Svo er bara spennandi að sjá hvort hún verði jafn lík sér í alvöru og á myndunum en það var sko alveg hægt að þekka Ragnar Núma strax. Það er hægt að sjá þrívíddamyndirnar af skvísunni sama albúmi og þrívíddarmyndirnar hans Ragnars Núma eru.
---
Hérna í Arnarásnum er því allt gott að frétta. Allir hafa það mjög gott eru eru spenntir að fá nýjan fjölskyldumeðlim í fjölskylduna. Hreiðurgerðin er aðeins byrjuð hérna en enginn asi á neinu, allir voða afslappaðir.
Það sem er helst á dagskrá næstu daga er það að Ragnar Númi á tíma hjá ofnæmislækni í næstu viku. Þá verður líklegast gert annað ofnæmispróf til að sjá hvort þetta ofnæmi sé ekki eitthvað að minnka eða það sem best væri að það væri bara alveg horfið en það kemur allt í ljós á fimmtudaginn.
Wednesday 6. July 2011
Sumarfrí
Fyrstu fréttirnar eru þær að mamman er búin að taka slurk í myndaalbúmunum og búin að bæta við alveg heilum helling af myndum:) Það er líka kominn nýr linkur hérna til hægri þar sem hægt er að skoða ýmis skemmtileg myndbönd af því sem við erum að bralla.
---
Jæja við mæðgin fórum í sumarfrí 17.júní - eða Ragnar byrjaði reyndar 15.júní, en þann 17.var brunað beint norður í frí. Pabbinn var reyndar ekki byrjaður í fríi en tók sér nokkra daga frí eftir helgina til að vera með okkur smá fyrir norðan. Veðrið lék nú reyndar ekkert við okkur og það var nú bara skítkalt þarna og allir með hálsbólgu, stíflaði nef og stíflaðar kinnholur.
---
Þegar pabbinn var farinn aftur suður þá fóru við mæðgin með Helgu ömmu og Ragga afa í heimsókn til Hönnu frænku í nýja húsið þeirra Inga á Reyðarfirði. Það var nú sama veðrasagan þar en stuðið var alveg rosalegt eins og sjá má á myndunum í júníalbúminu. Það var ýmislegt brallað þarna samt sem áður enda amman og afin komin til að hjálpa til við að ditta að húsinu og á meðan dunduðu strákarnir sér við ýmislegt. Þarna var alveg risastórt bað sem rúmaði vel fjóra stráka og skemmtu þeir sér alveg svakalega þarna en Ragnar Númi fór í fyrsta skiptið í freyðibað. Svo var smíðaður bátur og farið að tjörninni og síðan var miklum tíma eytt á trampólínunu. Þar lærði Ragnar Númi að hoppa jafnfætis og er hann núna óstöðvandi í hoppinu.
---
Eftir þetta stopp á Reyðarfirði fórum við aftur á norðurlandið en þar beið okkar lúpínan á Karlsá en hinn árlegi lúpínusláttur fór fram laugardaginn 2.júlí-reyndar restin tekin á sunnudeginum. Þá loksins kom sólin góða og skein á okkur allan daginn og tók með sér hlýja vinda. Það voru því sólbrendir en sælir vinnumenn sem fóru að sofa þá um kvöldið. Reyndar tóku Ragnar Númi og Friðrik Ingi smá dans við undirspilið hjá Birnu þá um kvöldið - greinilega enn fullir af orku eins og sjá má af þessu videoi.
---
Pabbinn kom norður á föstudeginum og var að bílast eitthvað með frændum sínum en keyrði síðan með okkur suður á sunnudeginum.
Saturday 4. June 2011
Lítil skvísa væntanleg 20. október
Þriðjudaginn 31. maí fóru mamma og pabbi í 20 vikna sónar. Allt kom ljómandi vel út. Mamman og pabbinn sáu nú bara strax að það væri skvísa á leiðinni, svo skvísulegt andlitsfallið, enda voru þau búin að hafa það á tilfinningunni allan tímann. En til að vera alveg viss þá báðum við ljósmóðirina að kíkja og hún sagðist sjá það nokkuð greinilega en þetta er nú ekki alveg 100% fyrr en krílið kemur í heiminn:) En það eru allir himinsælir með þetta - nú er loksins hægt að prjóna skvísuföt.
---
Við höfum verið að tala um litla barnið (og núna litlu skvísuna) við Ragnar Núma en hann sýnir þessu engan áhuga, vill bara vera í bíló eða leika sér með fótbolta:) En stelpur geta líka verið í bíló - allavegana lék mamman sér oft í bíló þegar hún var lítil en hafði reyndar minna gaman af fótboltanum:)
---
Vildum bara setja nýjustu upplýsingarnar hérna inn fyrir þá sem slysast til að kíkja inn:)
Tuesday 10. May 2011
Smá fréttir í þögninni
Jæja það er nú meiri letin hérna, en það er nóg að gera hjá okkur hérna í Arnarásnum. Held að ég byrji nú bara á því að stikla á stóru þaðan sem frá var horfið.
Stóri strákurinn okkar er að dafna vel. Hann var farinn að labba með öllu um jólin en heldur ragur við að sleppa sér en lét sig svo hafa það rétt fyrir 14.mánaða afmælið sitt. Núna hleypur hann um allt, hoppar, dansar og labbar upp á tá. Svo kann hann líka að labba "eins og gamli karlinn" - alveg eins og Emil frændi gerði - það vekur mikla lukku hjá nærstöddum. Á afmælinu hennar mömmu fórum við út að borða ásamt, Grétu, Jóhannesi, Elmari, Hönnu og Inga og þar var okkar maður í feyknar stuði og algjör skemmtikraftur þarna á Fabrikkunni. Hann ýmist sveiflaði höfðinu í takt við tónlistina eða steppaði með fótunum þar sem hann var að labba á milli borða.
---
Mamman byrjaði síðan að vinna í janúar. Þá var pabbi heima með strákinn sinn því við vorum hvorki búin að fá dagmömmu né leikskólapláss. Svona gekk þetta þangað til kallið kom í mars en þá hafði ein dagmamma samband við okkur og sagðist eiga laust pláss 1.apríl sem við þáðum. Aðlögunin gekk alveg glimrandi vel, en eftir langt helgarfrí og veikindi þá kom smá bakslag í okkar dreng og þá var pínu erfitt að sjá á eftir mömmu og pabba en það var nú bara rétt á meðan þau voru að fara. Dagmömmurnar eru 2 saman með 8 börn og því fullt af fjöri hjá þeim. Það er samt skemmtilegast að leika með boltana þarna og stundum er erfitt að ná gaurnum heim því hann vill bara taka alla boltana með. Það er mikill kostur að þær eru bara hérna rétt hjá þannig að það tekur bara rétt um 10 mín að labba til þeirra.
Við erum líka búin að fá leikskólapláss lok sumars og byrjar Ragnar Númi í leikskólanum Sjáland þann 15.ágúst. Hann er líka í hverfinu en aðeins lengra í burtu. Hann er alveg við sjóinn og því stutt að fara í fjöruferðir og ylströndina sem er hérna í Garðabæ.
---
Nýjustu dýravinirnir hans Ragnars Núma eru hestar. En hann fer flesta laugardaga í hesthúsið með Jóhannesi afa. Hann fær að fara á hestbak og hefur fengið að fara með afa smá reiðtúr en það er nú samt skemmtilegast að sópa heyið. Hann er búinn að fá sinn eiginn kúst sem hann ræður vel við og við þetta dundar hann sér sæll og glaður.
---
Á sumardaginn fyrsta vorum við fjölskyldan alveg í sumargrírnum og festum hjólasæti handa Ragnari Núma á hjólið hjá Gunnari og fórum í hjólreiðatúr til ömmu og afa í Víðilundi. Veðrið var nú ekkert að leika við okkur þennan fyrsta sumardag ársins en við létum okkur hafa það að hjóla í vindi og rigningu! Ragnari Núma fannst þetta alveg meiriháttar skemmtilegt og skríkti af gleði á leiðinni.
---
Mamman var að vinna alla páskana þannig að feðgar voru mestmegnis í Víðilundinum, síðan kom mamma bara þangað eftir lúrinn sinn. Það var keypt konsum páskaegg með dökku súkkulaði svo að Ragnar gæti fengið smá smakk en þegar mamman fór að lesa betur á innihaldslýsinguna þá stóð að það væri mjólk í innihaldinu. Hún hélt nú reyndar að það væri bara í namminu sem var inní. En þegar búið var að opna eggið þá var byrjað á því að lesa á málsháttinn sem hljóðaði svona: "Allur varinn er góður". Því fékk Ragnar Númi ekkert páskaegg þetta árið!
---
Nýjustu fréttirnar eru síðan þær að Ragnar Númi er að verða stóri bróðir. Hann er að fara að eignast lítið systkini í október. Hann hefur nú lítið vit á þessu og skilur ekkert hvað við erum að tala um þegar við spyrjum hann hvar litla barnið sé. En hann veit alveg hvar bílarnir hans og boltarnir eru:)...ætli áhugasviðið hans liggi ekki frekar þar:)
---
Við kíktum í norðurferð núna um síðustu helgi (5-9maí) og áttum góða daga þar, nema þá síðasta daginn því þá nældi mamman sér í ælupesti og eyddi heillri nótt (aðfaranótt mánudags) með andlitið í klósettinu á klukkutíma fresti, reyndar var amman eitthvað slöpp líka og var á "kisu" klósti því hitt var upptekið! Og svo í fluginu á leiðinni aftur suður þá var ókyrrð alla leiðina, mömmunni var nú ekkert farið að lítast á þetta og var með ælupokann tilbúinn en sem betur fer var ekki þörf fyrir hann. Síðan var afinn ælandi á mánudagskvöldið og Ragnar Númi kom með eina gusu í hjónarúmið núna í morgun (þriðjudag). Þannig að það er hægt að segja að það hafi verið pínu ástand á heimilunum!
---
En fyrir norðan fundum við tvo jaxla hjá Ragnari Núma, sem eru komnir uppúr, og einn sem á bara smá eftir. Við höldum líka að það sé stutt í þann fjórða. Já hann ætlar greinilega að taka þessa jaxla með stæl. Enda gott að fá fleiri vinnukonur svona fyrir grillsumarið. En þetta skýrir allt sleferíið og hversu tregur hann hefur verið til að borða en það fer nú vonandi að lagast fljótlega.
---
Látum þetta gott heita í bili.
Héðan biðja allir kærlega vel að heilsa!
---
p.s Mamma var að setja inn fullt af myndum í myndaalbúmið endilega kíkið og kommentið:)
Saturday 15. January 2011
Loksins koma myndirnar!
Jæja mamman er loksins byrjuð að vinna í myndamálunum og núna eru komnar helling af myndum í nóvember möppuna. Það væri voðalega gaman ef þið myndum vilja kommenta við einhverjar myndir svo við sjáum hverjir eru að skoða já eða kvitta í gestabókina:)
En góða skemmtun!
Monday 10. January 2011
Myndaleysi!!
Þetta myndaleysi hérna á síðunni er ekki bara vegna leti sko!! Við vorum að fá okkur borðtölvu og ég var ekki búin að flytja myndirnar á milli tölva og að sjálfsögðu þá gleymdist hleðslutækið af gömlu tölvunni fyrir norðan um jólin þannig að það hefur lítið verið hægt að gera í myndamálum hérna á heimilinu! En við förum vonandi að nálgast þetta blessaða hleðslutæki og þá er hægt að hlaða inn myndum:)
Wednesday 5. January 2011
Desembergleði
Jæja þá er nýja árið gengið í garð og allir hressir hérna. Það var nóg að gera hjá okkur í desember. Við mamma fórum norður um rétt fyrir miðjan des og áttum góða tíma á norðurlandinu. Pabbi kom svo á þorláksmessumorgun. Það var rosalega gaman að hitta allt frændfólkið okkar hérna og mikið leikið. Á þorláksmessu fórum við í heimsókn til ömmu og afa í Furulundinum og þar labbaði Ragnar Númi alveg sjálfur frá sjónvarpinu í stofunni og inn í herbergi þar sem jólapakkar og dót var geymt. Hann er alveg búin að labba nokkur skref sjálfur í smá tíma og labbar á milli en er samt ekki alveg á því að vilja sleppa sér alveg og vill helst fá putta til að labba við en gleymir sér annað slagið - sérstaklega ef það er kex í báðum lófum. Ltili strákurinn okkar er með frekar lítið hjarta og vill vera öruggur með sitt áður en haldið er í svona hættuför eins og að labba sjálfur.
---
Á aðfangadag vorum við á Hauganesinu hjá ömmu og afa, en þar voru líka Raggi, Sandra og Embla - sem var rosalega dugleg að leika við mig, og svo komu Hanna frænka og Ingi. Síðan voru líka nokkrir ferfættlingar hjá hérna eða Hilda, Sammi, Villi og Max þannig að það var nóg um að vera.
Á aðfangadagsmorgun komu tveir jólasveinar í heimsókn með pakka handa mér og Emblu og kort handa ömmu og afa. Mér fannst nú bara best að vera hjá pabba og fylgjast með þessum gaurum í fjaska. Embla var líka pínu hrædd en þessir jólasveinar sem komu voru mjög rólegir og vingjarnlegir og því ekkert að óttast. Rjúpurnar stóðu alveg undir sínu og smakkaði Ragnar Númi rjúpu sem hann borðaði þótt það hefði nú ekki verið mikið. Enda alltof mikið stúss í gangi til að sitja við borðið og borða!
Það var ekkert lát á pakkaflóðinu hérna og fór jólatréð nánast á kaf í pökkum. Við erum ekki frá því að all margir pakkar hafi tilheyrt litlu fjölskyldunni í Arnarásnum. Við fengum fullt af fallegum gjöfum og þökkum kærlega fyrir okkur. Sá stutti var nú ekkert á því að fara að sofa snemma á aðfangadagskvöld og þegar gerð var tilraun um kl 22 þá var bara hoppað og skríkt í rúminu. Það var því ekki háttatími hérna fyrr en um miðnætti - enda aðfangadagskvöld.
---
Á jóladag fórum við í matarboð til Báru ömmu og þar voru frændur mínir líka (mafían:p). Þar var í matinn alveg rosalega gott hangikjöt og allt tilheyrandi en Ragnar Númi var hrifnastur að því að borða bara beint upp úr kæfudollunni og stakk einum og einum kjötbita upp í sig inn á milli.
---
Á annan í jólum var hið árlega jólaboð á Karlsá. Þar var sko fjör. Eins og venja er þá fórum við út á snjóþotu og sleða og renndum okkur í brekkunni við húsið. Ragnar Númi og mamma fóru nokkrar ferðir niður og það var alveg rosalega gaman, en það tók aðeins á að labba aftur upp brekkuna. Síðan var farið inn að leika meira og borða helling. Það var því þreyttur lítill strákur sem fór að sofa um kvöldið.
Því miður misstum við af hinu árlega jólaballi í Árskógi og misstum líka af jólaballinu í Garðabænum þannig að við verðum bara að eiga það inni þangað til um næstu jól.
---
En allt tekur enda og þann 28.des flugum við öll aftur suður. Mamma og pabbi voru að fara í brúðkaup hjá Rebekku vinkonu mömmu þann 1.janúar þannig að ákveðið var að eyða áramótunum í kósýheit í Víðilundinum hjá Grétu ömmu og Jóhannesi afa. Ég var mjög ánægður að sjá allt dótið mitt aftur þegar heim var komið og fór beint í að skoða dótið og leika.
Á gamlárskvöld var alveg svakalega góður mat og setti það alveg punktinn yfir átið þessi jólin. Ragnar Númi vakti alveg fram yfir miðnættið en leist ekkert á þessa flugelda - alltof mikill hávaði í þeim og var bara inni hjá Grétu ömmu á meðan pabbi, afi og mamma horfðu á sýninguna. Við gistum síðan öll í Víðilundinum alla helgina því Ragnar Númi var í pössun þar á meðan mamma og pabbi fóru í brúðkaupið.
---
Núna eru komnar 4 tennur. Hin framtönnin kom í byrjun desember, þannig að það er aðeins auðveldara að bíta í matinn. Mamma sér samt glitta í tönnslur sitthvoru megin við framtennurnar uppi þannig að þær fara vonandi að láta sjá sig fljótlega.
---
Ragnar Númi er mjög duglegur að borða en hann á alveg sitt uppáhald og annað sem hann kærir sig ekkert um. Hann er sólginn í blóðmör, fisk og kæfuna vill hann helst borða með skeið beint upp úr dallinum og eins og sannur karlmaður þá er hann mjög hrifinn af kjötmeti en finnst grænmetið ekkert spes. Hann borðar þó grænmeti sem er steikt á pönnu. Hann er lítið fyrir ávexti og finnst þeir of slepjulegir og kartöflur vill hann helst ekki sjá, nema þá einna helst með fiskinum. Mamma er alltaf að reyna að lauma meiru grænmeti með en það frussast bara aftur út, og hann tínir jafnvel aftur upp í sig þá kjötbita sem skiluðu sér út með grænmetisfrussinu.
---
Núna er mamma farin að vinna og pabbi komin í smá orlof. Við erum ekki ennþá búin að fá pláss á leiksskóla eða hjá dagmömmu þannig að þetta verður eitthvað pússluspil hérna á heimilinu fyrst um sinn. Við erum búin að hringja út um allt en allsstaðar eru biðlistar. En við höfum ákveðið að taka pollýönnuna á þetta og segjum bara "þetta reddast". Það er allavegana komið pláss á leikskólanum í sumar, vonum bara að það losni aðeins fyrr en þá:)
---
Mamma ætlaði að vera miklu duglegri við að setja myndir inn en við vorum að fá okkur nýja heimilistölvu og því þarf aðeins læra inn á hana og búa til gott myndasystem. Síðan er Ragnar Númi svo mikill tölvukarl að það er aldrei vinnufriður, hann er alltaf kominn um leið og vill fá að prófa líka. Þetta gerist hægt en gerist þó.
---
Jæja við kveðjum þá í bili héðan úr Arnarásnum.
myndir
---
