Fimmtudagur 25. febrúar 2010 / 21:02 / Allt að gerast

Jæja við erum búin að finna okkur nýja íbúð af því að við þurftum að flytja úr þessari. Við fórum nú ekkert langt, höldum okkur ennþá í Garðabænum, því þar er svo gott að vera:) Við verðum bara rétt í næsta nágrenni við Hönnu systir eða rétt um 400m frá henni. Við erum búnar að lofa hvor annarri að vera duglegar að fara saman í hunda og barnavagnagöngur og hittast og sauma, það mun gerast sko:)
En planið var að flytja restina í dag, en veðurguðirnir ákváðu að það myndum við ekki gera. Það er ss búið að kyngja niður snjó hérna í allan dag, umferðin mjög hæg en samt alveg brjálað að gera hjá Gunnari þannig að hann komst ekki fyrr heim úr vinnunni. En þetta hefst allt saman. Mamma og pabbi koma síðan á morgun og hjálpa okkur með restina, þau verða jú að hafa eitthvað að gera:) Ég er síðan búin að þræla tengdó út hérna í þrifum og er mest allt að verða búið við verðum snögg að klára restina.
En þessi íbúð sem við fengum er alveg æðisleg og það besta er að hún er á jarðhæð:) ég var alveg komin með nóg af því að þramma með barnið og innkaupapokana upp á 4.hæð. Síðan er líka smá grasflötur fyrir utan þannig að við getum setið í sólbaði í allt sumar. Bara yndislegt.


Þessi færsla er skráð í flokknum

© 2001-2007 Dagny Reykjalin