Mánudagur 23. nóvember 2009 / 21:04 / Fjölskyldan komin heim
Jæja nú er litli kútur fæddur og orðinn viku gamall. Fæddist ss mánudaginn 16.nóv kl 18:14, var tekinn með bráðakeisara eftir mikinn rembing en ekkert gekk. Litla fjölskyldan kom síðan heim á föstudaginn og þrátt fyrir að þetta hafi farið öðruvísi en áætlað var þá heilsast öllum vel. Við erum núna bara að aðlagast nýja fjölskyldulífinu og læra öll inn á hvert annað. Drengurinn er eins og hugur manns á daginn en er ekki alveg á því að sofa á nóttunni og vakir bara en það kemur, bara smá þolinmæði:)
Mamma kom og var hérna hjá okkur um helgina og það var alveg dásamlegt, hefði helst viljað hafa hana í viku í viðbót. Alveg ómetanlegt að fá einhvern til að hugsa svona um mann á svona stundu. Takk mamma mín :*.
En næstu dagar fara bara í rólegheit og hver veit nema prjónarnir verði teknir upp aftur eða nokkrar jólakökur bakaðar, svona milli þess sem við horfum á litla prinsinn okkar sem er auðvitað sá fallegast í bænum sko.
Þessi færsla er skráð í flokknum
/ Álit
hahha... já kannast við þetta núna!! sjáðu bara hvenær þetta er skrifað. Hér er líka lítill einstaklingur sem ég er að kenna á klukku!!
bestu kveðjur
24.11.09 02:25
Hrabba:
Gott að heyra að allta gangi vel, minn prins var líka voða mikið fyrir að vaka á nóttunni og sofa vel á daginn, en þetta er allt að breytast. Tekur tíma og svo erfitt að stilla þau inn á einhvern tíma þegar þau eru svona lítil. Gangi ykkur vel og gaman að fylgjast með ykkur. Kv. Hrabba
25.11.09 20:56