Fimmtudagur 12. nóvember 2009 / 19:24 / 40vikur og 2 dagar
Vildi bara láta vita að það er ekkert að gerast hérna! Öllum líður mjög vel og krílið ekkert að láta hafa fyrir sér, finnst bara gott að kúra þarna inni. Þannig að það er bara að halda áfram að bíða rólegur:)
---
Annars þá fórum við Gunnar á tónleika í Íslensku óperunni um daginn í með Grétu, Jóhannesi og Árna Geir (frænda Jóhannesar). Þetta voru tónleikar sem heita "Frá suðri til norðurs með sópran í eftirdragi" og þetta voru held ég bara skemmtilegustu tónleikar sem ég hef farið á. Þarna var Óskar Pétursson, Jóhann Friðgeir og Diddú að syngja og síðan voru brandarar og spaug inn á milli, hef held ég aldrei hlegið svona mikið á tónleikum, alveg dásamlegt.
---
Annars þá heldur prjónaskapurinn áfram. Ég var að klára síða þykka peysu á mig úr tvöföldum plötulopa, á bara eftir að hekla bekk og setja tölur en það bíður þangað til mamma kemur suður svo hún geti kennt mér. Svo er ég líka byrjuð á peysu handa Gunnari úr einföldum plötulopa og einbandi, er rétt að klára búkinn en á eftir rest...Spurning hvort að allir fái heimferðasett með sér á sjúkrahúsið hehe.
---
Helga vinkona kom í mat um daginn og við tókum nokkrar bumbumyndir - þá komin 39vikur og 3 daga. Ég var nú nánast búin að gefa það upp á bátinn að taka bumbumyndir þar sem Helga var búin að vera með svo hrikalega flensu í næstum 3 vikur. Ég var hrædd um að vera bara búin að eiga áður en myndatakan yrði en sem betur fer þá náðum við að hittast og smella af nokkrum myndum. Ég var nú alveg nokkuð viss um að ég fengi einhverjar flottar myndir þar sem Helgan mín er nú vön að gera vel það sem hún gerir. Hægt er að sjá eitthvað af myndunum hérna. Takk Helga fyrir að taka þessar myndir:)
---
Annars þá er held ég bara allt að verða tilbúið hérna fyrir krílið, flest að verða klárt sem þarf að verða klárt.. á reyndar eftir að setja saman gömlu vögguna mín sem við ætlum að hafa inni í herbergi en það má alveg bíða þangað til við komum heim af sjúkrahúsinu.. liggur svo sem ekkert á - þannig að það er ekkert stress á þessum bæ:)
Þessi færsla er skráð í flokknum
/ Álit
Helga:
Þetta var nú bara hreinasta skemmtun að taka þessar myndir :)
15.11.09 16:10