Miðvikudagur 14. október 2009 / 12:26 / allt í rólegheitunum

Jæja ætli engar fréttir séu ekki bara góða fréttir. Hérna er allt í rólegheitunum. Ég er hætt að vinna og farin að slaka á. Verst að sinaskeiðabólgan sem ég fékk í vinstri úlnlið þegar ég var að þæfa ull með Sigrúnu fyrir 3 vikum síðan er að hindra mig í áframhaldandi prjónaskap. Ég er alveg komin með æði fyrir prjónum núna og búin að gera 3 peysur á krílið, tvær ullarpeysur og eina ungbarnapeysu (sem er reyndar heldur í stærri kantinum :p) Ég er komin með garn í eina enn ullarpeysu sem ég ætla að gefa í jólagjöf en ætla að hvíla úlnliðinn þangað til um næstu helgi. Mér skilst að óléttan geti líka verið haft sín áhrif á sinaskeiðabólgu en ég vona að þetta fari sem fyrst. Svo langar mig líka að gera peysu á mig og Gunnar er líka farinn að suða hehe þannig að það lítur út fyrir að ég hafi nóg að gera í fæðingarorlofinu. Síðan þarf ég eiginlega að læra að gera hæl og þumar svo ég geti gert vettlinga og ullarsokka. Ég elska prjónavettlinga og uppáhalds vettlingarnir mínir eru prjónavettlingarnir sem Lína frænka og co gáfu mér í jólagjöf, fæ ekki nóg af þeim enda notkunin aðeins farin að sjást á þeim en standa enn fyrir sínu:)
---
En litla krílið okkar Gunnars er komið í höfuðstöðu og búið að skorða sig þannig að það fer að verða tilbúið, ágætt að það fái samt aðeins lengri tíma í bumbunni til að þroska lungun almennilega og safna á sig smá forða fyrir heimkomuna:) Það fer líka allt að verða klárt hérna heima. Gamla vaggan sem Ingvar smíðaði undir mig er komin í hús en það er reyndar ekki búið að setja hana saman, skilst að maður eigi ekkert að vera að stressa sig á því of snemma. Bílstóllinn sem Daia og Óli eiga er komin suður og ég er búin að þvo fyrsta skammt af fötum sem ég fékk hjá Daiu. Það verður mjög hentugt ef þetta er strákur því ég fékk slatta af gömlum fötum frá Danna og Emil en ef þetta er stelpa þá þarf að endurskoða fatavalið:)
Við erum að verða mjög spennt og hlökkum mikið til - bara 27 dagar í settan dag, svo bara spurning hvort það láti bíða eftir sér en við erum komin með fullt af plönum til reka á eftir krílinu, ég get allavegana ekki beðið eftir að fá mér hot-wings á Ruby tuesday :D. Síðan er líka spenningur að vita hvort þetta verði stelpa eða strákur. Það eru skiptar skoðanir á því en það virðast fleiri hallast að því að þetta verði strákur, nema Gunnar hann heldur enn að þetta verði stelpa. Ég er á báðum áttum, dreymdi reyndar um daginn að við hefðum eignast strák en ég tek ekki mark á því því umræðan var búin að vera í þá áttina daginn áður - og samkvæmt draumráðningum þá er víst gott að dreyma að eigið barn sé sveinbarn þannig að ég túlka þennan draum þannig að hann hafi verið fyrir góðu gengi:)

Nýjustu peysurnar sem ég var að prjóna:
IMG_0556.JPG IMG_0559.JPG
IMG_0555.JPG IMG_0557.JPG


Þessi færsla er skráð í flokknum

/ Álit

Sveinbjörg M.:

Hæ skvís :o)

Vildi bara kvitta fyrir komuna sæta mín og óska þér alls hins besta á lokasprettinum og þegar krílið er komið :o) Þú ert nú algjör prjóna"kelling", ég er alltaf á leiðinni að rifja upp, a.k.a. læra upp á nýtt :D Þetta er alveg æðislegt hjá þér :)

Knús sæta bumbulína :o)

14.10.09 22:28


baddy:

Takk fyrir þetta Sveinbjörg mín. Prjónaskapurinn verður fljótur að rifjast upp fyrir þér - þetta er bara eins og að hjóla, kemur um leið, síðan eru svo margir prjónasnillingar í vinnunni sem geta leiðbeint þér:) Gott að byrja á einhverju einföldu eins og húfu:)

15.10.09 11:42


Hanna sys:

algjör snillingur!

25.10.09 10:20


© 2001-2007 Dagny Reykjalin